Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gunnari yfirlögregluþjóni gengur vel með Covid og gos: „Auðvitað er alltaf einn og einn fýlupúki“

Gunnari yfirlögregluþjóni gengur vel með Covid og gos: „Auðvitað er alltaf einn og einn fýlupúki“
Gunnar Schram yfir­lög­reglu­þjónn hefur í nógu að snú­ast í kringum gosið og veiruna.

„Auðvitað höfum við gert fullt af mis­tökum. En þetta er lær­dóms­ferli og við lærum á hverjum degi,” segir Gunnar Schram, yfir­lög­reglu­þjónn á Suð­ur­nesjum. Mikið hefur mætt á Gunnari og kol­legum hans hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum. Dagarnir hafa við langir frá því  að eld­gosið við Fagra­dals­fjalli hófst. Mannlíf náði tali af Gunnari á milli funda og ann­arra gostengdra mála og gaf hann sér tíma til að segja hvernig ástandið liti út frá honum séð.

Gunnar er poll­ró­legur yfir stöð­unni og segir að allt ganga bara vel.

„Við áttum alls ekki von á þessu gosi þótt það hafi ekki þurft að koma á óvart,”  segir hann.

Sem betur fer voru Gunnar og félagar öllu við búnir.

„Við fengum ekki sama und­ir­bún­ings­tíma og var fyrir Þjóð­veld­is­há­tíð­ina en við vorum vel staddir. Við vorum byrj­aðir að virkja áætl­anir þegar atburða­rásin hófst með skjálft­unum í grennd við Keili í jan­úar í fyrra. Þá stóðum við frammi fyrir að sama staða myndi koma upp og í Geld­inga­dölum. Við vorum til­búnir með rým­ing­ar­á­ætlun fyrir Grinda­vík”.

Íslendingar stökkva á gos

Gunnar segir mann­fjöld­ann á gos­s­töðv­unum ekki hafa komið á óvart.

„Við þekkjum öll Íslend­inga. Þegar kemur gos stökkva þeir stað. Þetta gos er hálf­tíma akstur frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu svo það er ekk­ert skrítið að það skuli vera ásókn í að sjá það.  Þótt gos­inu sé streymt beint virð­ist það eng­inn áhrif hafa á mann­fjöld­ann“.

Gunnar bætir því við að stað­setn­ing goss­ins hefði ekki getað verið betri. „Þar hafi lukkan verið með okkur.

Gunnar situr dag­lega fundi með við­bragðs­að­ilum þar sem farið er allar mögu­legar aðstæður sem upp hafa komið eða upp gætu komið upp.

„Þarna sitja til dæmis aðilar frá Lands­björg og vís­inda­menn veð­ur­stof­unnar því veðrið er auð­vitað lyk­il­þáttur í öllu. Það má segja að vind­áttin stjórni alveg gjörðum manns dag frá degi.” Gunnar segir það mik­inn heiður að fá að starfa með björg­un­ar­sveit­ar­mönnum. „Það má segja að það sé gaman. Þetta er svo mikið fag­fólk og frá­bært að fylgj­ast með því. Við höfum fengið til okkar björg­un­ar­sveit­ar­fólk alls staðar að af land­inu sem hefur lagt okkur lið. Umferð­ar­deild og sér­sveit lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa einnig lagt til hjálp. Með sam­vinnu gengur þetta vel hjá okkur. Með þessum mann­skap getur útkoman ekki verið annað en góð.“

Svo kom Covid

Snemma var stikuð göngu­leið upp að gos­inu og fljót­lega bætt­ist önnur við. „Það er ekki úti­lokað að við bætum þeirri þriðju við. Við erum alltaf að breyta og bæta. Í sam­starfi við land­eig­endur höfum við náð að gera bíla­stæði fyrir 700 bíla.“

Þegar við­talið var tekið við Gunnar kl. 2 í eft­ir­mið­dag­inn sagði hann bíla­stæðin einmitt vera að fyll­ast. „Þetta er bara verk­efni sem við tök­umst á við, dag frá degi.”

Þegar ekki var hægt að ímynda sér að verk­efnið yrði umfangs­meira skall á fjórða bylgja Covid-19 á, með öllum sínum þunga og fjölda­tak­mörk­unum. Gunnar segir það ekki hafa ein­faldað störfin.

„Þetta eru síbreyti­legar aðstæður en Covid flækti auð­vitað hlut­ina. Núna held ég að við séum komin með gott skipu­lag og við ætlum að halda því, alla­vega í bili. Við stoppum bíla við Grinda­vík og hleypum inn eftir því sem stæði losna. Núna þarf grímu, spritt­brúsa og við mæl­umst til að fólk hafi mann­brodda. Annað vegna Covid og hitt vegna þess að göngu­leið­irnar er klaki þaktar.“

Fólk bara rólegt

Aðspurður segir Gunnar ekki hafa verið erfitt að taka á móti öllum þessum mikla fjölda sem hefur farið á gos­s­töðv­arnar kveðst hann svo ekki vera.

„Nei, það hafa eng­inn alvar­leg mál komið upp. Þetta hafa verið göngu­tengd mál. Fólk er að togna eða fá önnur ökkla­meiðsli. Sumir eru líka illa útbúnir en við höfum sem betur fer sloppið við alvar­legri mál en það.“

Gunnar segir fólk taka tak­mörk­un­unum vel.

„Auðvitað er alltaf einn og einn fýlu­púki, það er eitt­hvað sem lög­reglan og allir þekkja vel. En það virð­ist vera ágætis skiln­ingur hjá lands­mönnum á hvernig staðan er og að ákveðnum fyr­ir­mælum verði að fylgja. Svo tökum við bara stöð­una, dag frá degi,“ segir Gunnar Schram, yfir­lög­reglu­þjónn á Suð­ur­nesjum, sem hefur í mörg horn að líta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi