Guðmund Rúnar Pétursson þekkja líklega fæstir. Hann er þó á meðal ríkustu Íslendinga um þessar mundir. Hann hefur búið í Filippseyjum svo árum skiptir og rak þar fjártæknifyrirtækið Coins.ph ásamt viðskiptafélaga sínum Ron Hose. Fyrir tveimur árum seldi hann sinn hlut í því fyrir um tíu milljarða króna. Til samanburðar þá er auður Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem er líklega ríkasti Íslendingurinn, metinn á 254 milljarða íslenskra króna.
Viðskiptablaðið greinir frá velgengi Guðmundar. Í viðtali við blaðið segist hann í raun vera pabbi í fullu starfi þessa dagana. Það starf er þó líklega ekkert grín þar sem hann eignaðist þríburadrengi árið 2019 og er nú einstæður faðir.
Guðmundur rekur ástæðuna fyrir því að hann endaði á að búa í Filippseyjum.
„Ég og Ron komumst báðir að þeirri niðurstöðu um svipað leyti að staða Filippseyja væri einstök í Asíu hvað varðar tækifæri frumkvöðla frá Vesturlöndum. Ríkið er fjölmennt, nær allir tala ensku og sprotaumhverfið er þróað og opið fyrir utanaðkomandi aðilum. Við vissum ekki alveg hvernig fyrirtæki við vildum stofna en eftir að hafa kastað á milli okkar nokkrum hugmyndum ákváðum við að lokum að leggja áherslu á Bitcoin og síðar greiðslumiðlun,“ segir Rúnar en fyrirtækið auðveldaði þeim fjölda fólks sem starfi utan Filippseyja að senda pening heim til fjölskyldu sinnar.
Hann hyggst þó snúa aftur heim til Íslands, í það minnsta á sumrin, drengjanna þriggja vegna. Í fyrra keypti Guðmundur hinn þekkta bæ Hlíðarendakot í Fljótshlíð og stefnir hann á að vera þar á sumrin. Bærinn er þekktur vegna samnefnds ljóðs sem hefst á á orðunum „Fyrr var oft í koti kátt“. „Þegar strákarnir mínir fæddust vildi ég að þeir hefðu ekki bara sterka tengingu við Ísland heldur ákveðinn samastað á Íslandi,“ segir Rúnar.





















Athugasemdir