Fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, Jónmundur Guðmarsson hefur verið ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum. DV greinir frá.
Segir í ákærunni að Jónmundur hafi skilað inn efnislega röngum skattframtölum samlagsfélags sem er 99% í hans eigu.
Má álykta að hann hafi komist hjá því að borga allt að 19 milljónir í skattgreiðslu. En á árunum 2014-2015 greiddi Polygon, félag Jónmundar, 93.358.753 krónur til félagsins Kennel Consulting Ltd, sem skráð er með aðsetur í Þýskalandi. Eru þau útgjöld sögð tilhæfulaus í ákærunni.
Segir að með því að auka bókfærð rekstrargjöld hafi félagið dregið úr hagnaði sem dregur úr tekjuskattsstofni. En á Íslandi er tekjuskattur samlagsfélaga 20%.
Er Jónmundur einnig sagður hafa látið Polygon greiða fyrir vörur og þjónustu sem var rekstri félagsins algjörlega óviðkomandi.
Hér að neðan má sjá þær færslur sem sagðar eru nema í heild 94.951.819 krónum:
2014:
Franch Michelsen ehf. – 49.500 kr.
World Class Iceland – 116.480 kr.
2015:
Svefn og heilsa (fyrning skráð á rekstrarreikning félagsins) – 266.268 kr.
Samsung setrið (fyrning skráð á rekstrarreikning félagsins) – 194.758 kr.
Elko – 74.990 kr.
Franch Michelsen ehf. – 48.065 kr.
Samsung setrið – 16.065 kr.
Harpa tónlistarhús – 71.920 kr.
Síminn – 213.685 kr.
2016:
Hugo Boss – 188.916 kr.
Herragarðurinn Kringlunni – 52.752 kr.
Svefn og heilsa (fyrning skráð á rekstrarreikning félagsins) – 173.074 kr.
Samsung setrið (fyrning skráð á rekstrarreikning félagsins) – 126.593 kr.
Í dag starfar Jónmundur fyrir Kviku eignastýringu, en samkvæmt heimildum DV er hann hvergi að finna á listum yfir starfsmenn Kviku og var hann sagður vera í orlofi, sem þó útskýrir ekki hví hann er ekki að finna á neinum starfsmannalista.





















Athugasemdir