Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vistheimilið Breiðavík – Hömlulaust ofbeldi gegn drengjum í aldarfjórðung

Vistheimilið Breiðavík – Hömlulaust ofbeldi gegn drengjum í aldarfjórðung

„Klefinn var glugga­laus og ekk­ert nema myrkrið. Þar var eng­inn kollur og ekki beddi. Aðeins galtómt svart­hol. Þetta var hel­víti á jörð,“ sagði einn af Breiða­vík­ur­drengj­unum í við­tali árið 2007 þegar Kastjós og DV drógu upp skelfi­lega mynd af þeim aðstæðum sem þeir urðu að búa við á upp­held­is­heim­il­inu í Breiða­vík. Sú sýn sem birt­ist lands­mönnum var stjórn­völdum til skammar.

Einangrun við ysta haf

Breiða­vík er vík á Vest­fjörðum sem liggur milli Látra­víkur og Kolls­víkur. Næsta byggða ból er Pat­reks­fjörður í 50 kíló­metra fjar­lægð. Þar var stofnað upp­eld­is­heim­ili fyrir drengi á vegum rík­is­ins árið 1953 og rekið allt fram til 1979. Í upp­hafi var heim­ilið hugsað fyrir drengi á aldr­inum 14 til 18 ára en í reynd­ina voru flestir þeirra mun yngri eða frá 10 til 14 ára. Sumir voru 7.

Ekki var nein ein ástæða fyrir því að drengir voru sendir til Breiðu­víkur. Það gat verið allt frá því að koma frá brotnum heim­ilum og upp í að hafa framið afbrot. Strax frá upp­hafi var heim­ilið nokkuð umdeilt og vör­uðu sér­fræð­ingar við því að ein­angrun út við ysta haf væri ekki besta leiðin til að hjálpa pilt­unum. Ekki var hlustað á þær raddir og ekki leið á löngu til að Breiða­vík­ur­heim­ilið fékk á sig orð fyrir harð­neskju, ofbeldi og slæman aðbúnað.

Svört skýrsla grafin

Við upp­ljóstrun Kast­ljóss komu fram upp­ýs­ingar sem höfðu verið faldar í ára­tugi. Má þar nefna skýrslu Gísla Guð­jóns­sonar rétt­arsál­fræð­ings, sem hann vann sem BA verk­efni árið 1975. Þar gagn­rýndi hann harð­lega aðbún­að­inn í Breiðu­vík og kom fram með slá­andi töl­fræði. Þar kom meðal ann­ars fram að fimmta hvert barn var vistað án ástæðu og að lang­flestir pilt­anna urðu afbrota­menn. Með slíka fal­leikunn á upp­eld­is­hlut­verk­inu hefði hver sem er átt að átta sig á að eitt­hvað mikið væri að á Breiðu­vík. En skýrslan var stimpluð trún­að­ar­mál, grafin, og hið opin­bera hélt áfram að vista drengi út í ofbeldið í norð­inu. Ekki tókst að fá aðgengi að skýrsl­unni fyrr en 22 árum síðar.

Fyrir sýn­ingu Kast­ljóss­þátt­ar­ins höfðu ein­stak­lingar komið fram og tjáð sig um hryll­ings­dvöl­ina á Breiða­vík þótt ekki hefði það farið hátt. Í bóknni Litróf lífs­ins, þar sem Anna Kristine Magn­ús­dóttir rit­aði meðal ann­ars ævi­þátt Sig­ur­dórs Hall­dórs­sonar sjó­manns árið 2002, lýsti hann vist­heim­il­inu sem fanga­búðum og greindi frá illri með­ferð þar.

Eins og fangelsi

Sprengjan sprakk ekki fyrr en 2007. Daginn sem umfjöll­unin hófst kom fram milli fjöldi manna sem lýstu dvöl sinni.

„Ég hef alltaf átt erfitt með að treysta yfir­völdum eftir þetta,“ sagði einn Breiða­vík­ur­drengj­anna í við­tali við DV dag­inn sem umfjöllun hófst um vist­heim­ilið. „For­stöðu­mað­ur­inn lamdi okkur sundur og saman ef þannig lá á honum,“ sagði annar Breiða­vík­ur­drengur um einn for­stöðu­manna heim­il­is­ins.  Menn­irnir fengu loks áheyrn þegar þeir lýstu mis­þyrm­ingum og pynt­ingum, illri með­ferð og harð­neskju að ógleymdu kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Sveinn Allan Morthens, sem síðar var for­stöðu­maður með­ferð­ar­heim­il­is­ins í Háholti, lýsti Breiðu­vík sem ein­hvers konar síber­ísku gúlagi. Kristján Sig­urðs­son, for­stöðu­maður í Breiðu­vík í eitt ár á sjötta ára­tugnum, sagði að sér hefði hrein­lega blöskrað þegar hann hefði séð aðstæður við kom­una þangað árið 1955. „Ég vildi koma fram við börnin eins og fólk, ekki eins og dýr,“ sagði hann í við­tali, ríf­lega hálfri öld síðar.

Heimilið sem framleiddi ógæfumenn

Umfjöllun fjöl­miðla stóð yfir lengi og tjáðu sig margir um vist sína. Meðal þeirra sem dvöldu á Breiða­vík urður síðan lands­þekkt nöfn í afbrota­málum og má þar nefna Lalla Johns, sem varð frægur þegar heim­ild­ar­mynd var gerð um hann, og Sævar Ciesielski sem sak­felldur var í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

Bárður R. Jónsson var sendur þangað aðeins 10 ára gam­all. „Mér fannst allan tím­ann sem ég var þarna á Breiða­vík að þetta væri refsi­vist og hún var það sann­ar­lega. Nema hvað maður vissi ekki hvenær henni lyki,“ sagði Bárður í við­tali. „Þetta var and­rúms­loft ofbeldis, þetta var and­rúms­loft níð­ings­skapar. Svo var það ein­hverju sinni í hádeg­is­hlénu að ég sofn­aði og mætti ekki á réttum tíma í vinn­una. For­stöðu­mað­ur­inn kom og sótti mig og gekk svo­leiðis í skrokk á mér að ég hélt að hann dræpi mig“.

Bárður lýsti einnig í við­tal­inu örlögum eins mann­anna sem voru í Breiða­vík. Þegar hópur þeirra ætl­aði aftur til Breiða­víkur vegna gerðar heim­ild­ar­myndar um atburð­ina þar skil­aði mað­ur­inn sér ekki í ferð­ina. Seinna kom í ljós að hann hafði svipt sig lífi. Næstu daga birt­ust við­töl við fleiri menn sem sendir höfðu verið á vist­heim­ilið í Breiða­vík sem börn.

Stjórnvöld vakna

Í kjöl­farið var farið að líta til ann­arra vista­heim­ila á vegum hins opin­bera svo sem á Sil­unga­polli, Bjargi, Kumb­ara­vogi og í Heyrn­leys­ingja­skól­anum. Þar blasti heldur ekki við fögur sjón og steig fjöldi fólks fram til að segja fá lík­am­lega, and­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Árið 2009 bað Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, vist­heim­ila­börn afsök­unar fyrir hönd íslenskra stjórn­valda og ári síðar stigu fram 90 menn sem kröfð­ust sann­girn­is­bóta frá rík­inu eftir dvöl í Breiðu­vík. Því miður höfðu margir fallið frá langt fyrir aldur fram og átak­an­lega margir fyrir eigin hendi. Ári síðar voru sett lög um greiðslu sann­girn­is­bóta vegna ofbeld­is­ins sem börnin þurftu að þola.  Ríkið greiddi rúma tvo millj­arða í bætur til Breiða­vík­ur­drengj­anna og ann­arra fórn­ar­lamba á vist­heim­ilum.

En skað­inn var skeður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi