Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samfylkingin bannar hæðni – „Verður þeim vísað á dyr?“

Samfylkingin bannar hæðni – „Verður þeim vísað á dyr?“
Logi Ein­ars­son. Mynd/Hallur Karlsson.

„Þetta er með nokkrum ólík­indum. Fólk má sem­sagt ekki segja annað hér en það sem völdum ein­stak­ingum líkar? Hann metur vænt­an­lega hvað telst „mál­efna­legt,“ að ég nefni nú hæðn­is­fullt. Mér verður senni­lega bannað að kalla félaga Mörð „gæzk.“ – Gilda þessar reglur líka á fundum flokks­ins? Verður þeim vísað á dyr sem eru þar ómál­efna­legir eða hæðn­is­fullir?“

Þetta skrifar Karl Th. Birg­is­son fjöl­miðla­maður innan lok­aðs hóps Sam­fylk­ing­ar­innar á Facebook. Á slag­inu níu í kvöld munu þar taka gildi gíf­ur­lega harðar reglur til að sporna gegn „dóna­skap og jafn­vel ein­elti“, eins og það er orðað í langri til­kynn­ingu. Hæðni verður til að mynda bönnuð.

Hópurinn telur ríf­lega þús­und manns og getur ekki hver sem er kom­ist inn í hóp­inn, hvað þá skrifað inn­legg þar. Þrátt fyrir það virð­ist úlfúðin innan hóps­ins gíf­ur­lega. Í það minnsta ef marka má yfir­lýs­ing frá stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar innan hóps­ins. Hana má lesa í heild sinni hér fyrir neðan en tvisvar er ein­elti nefnt sem ástæðu þess að stjórnin bregst svo við. „Óvið­eig­andi, stuð­andi, hæðn­is­fullar og meið­andi athuga­semdir eru ekki leyfðar,“ segir á einum stað.

NÝJAR REGLUR UM SAMSKIPTI Í LOKUÐUM FACEBOOK HÓPI FÉLAGA SAMFYLKINGARINNAR

Góðir félagar,

Hér fer á eftir yfir­lýs­ing frá stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar.

Lokaður hópur á Facebook fyrir félaga í Sam­fylk­ing­unni hefur verið til staðar um nokk­urra ára skeið. Þar hafa farið fram gagn­legar, upp­byggi­legar og frjóar sam­ræður og rök­ræður um stjórn­mál, Sam­fylk­ing­una, jafn­að­ar­stefn­una og leiðir til að bæta okkar sam­fé­lag.

Því er ekki að neita að stundum fara umræður út fyrir það sem eðli­legt er og æski­legt í svona hópi. Þar er átt við óvið­eig­andi ummæli um aðra félaga í hópnum, virð­ing­ar­leysi, dóna­skap og jafn­vel ein­elti.

Nokkur fjöldi félaga hefur komið þeirri skoðun á fram­færi við for­ystu­fólk í flokknum að hér verði að grípa í taumana og setja hópnum reglur sem hygla sam­skiptum sem byggja á mál­efnum og virð­ingu fyrir skoð­unum ann­arra, á kostnað dóna­skapar, ásak­ana og almennt óvið­eig­andi ummæla. Þeirri skoðun hefur einnig verið komið á fram­færi að loka beri hópnum, og þá vísað í for­dæmi ann­arra flokka sem ýmist eru að taka ræki­lega til í sínum hópi, eins og Píratar, eða eru ekki með sam­bæri­lega hópa, heldur ein­göngu opin­bera og opna Facebook síðu.

Okkur er ljóst að allt orkar tví­mælis þá gert er. Okkur er ljóst að línan milli þess sem er við­eig­andi og óvið­eig­andi, æski­legt og óæski­legt, upp­byggj­andi og nið­ur­ríf­andi, er ekki skýr. Það breytir ekki því að flokk­ur­inn ber ábyrgð á því sem fram fer innan hans eigin veggja.

Þess vegna hefur verið ákveðið að setja hópnum eft­ir­far­andi reglur:

Upp­hafsinn­legg þarf sam­þykki stjórn­enda áður en það birt­ist.

Stjórn­endur eru 6 starfs­menn flokks­ins auk 6 full­trúa í fram­kvæmda­stjórn, kos­inna á lands­fundi sbr. gr. 8.03 í lögum flokks­ins.

Reglunum skal komið skýrt á fram­færi í Facebook hópnum. Þar skal vera hlekkur á siða­reglur flokks­ins og áber­andi til­mæli til þeirra sem þar eru að þeir geti komið athuga­semdum og kvört­unum á fram­færi við stjórn­endur með því að senda póst á [email protected].

Eft­ir­far­andi reglur gilda um athuga­semdir við upp­hafsinn­legg:

  • Passaðu að sýna virð­ingu í því sem þú skrifar.
  • Athuga­semdir þínar eiga að tengj­ast upp­hafsinn­legg­inu.
  • Sýndu öllum virð­ingu í skrifum þínum. Ef þér mis­líkar eitt­hvað sem hér er skrifað ertu hvattur/hvött til að til­kynna það.
  • Ómál­efna­legar athuga­semdir eru ekki leyfðar.
  • Óvið­eig­andi, stuð­andi, hæðn­is­fullar og meið­andi athuga­semdir eru ekki leyfðar.
  • Árásir á ein­staka félaga og ein­elti er ekki leyft.
  • Aug­ljós­lega rangar upp­lýs­ingar og lygar eru ekki leyfðar.

Skrifum og athuga­semdum sem brjóta gegn þessum reglum verður eytt og höf­undar þeirra eiga á hættu á að verða úti­lok­aðir frá hópnum. Minnt er á siða­reglur flokks­ins. Samfélag okkar er á ábyrgð okkar allra – verum gott sam­fé­lag!

Við vonum að þetta verði til að bæta and­rúms­loftið innan hóps­ins og draga úr skrifum og athuga­semdum sem eru bein­línis skað­leg fyrir flokk­inn.

Regl­urnar taka gildi mið­viku­dag­inn 31. mars kl. 9.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi