Íbúar höfuðborgarinnar halda áfram að lýsa yfir óánægju sinni yfir hvar fólk skilur við rafmagnshlaupahjól sem það hefur tekið á leigu. Hlaupahjólin hafa bæði verið skilin eftir í bílastæðum og einnig skilið við þau á miðjum gangstéttum, sem gerir gangandi vegfarendum erfitt um vik að komast fram hjá, nema þá að fara út á götu.
Sumum finnst það óþarfa röfl þegar fólk er að deila myndum af illa lögðum hlaupahjólum á Facebook og finnst sjálfu það vera lítið mál að færa þau til hliðar.
Aðrir benda á að það eigi ekki allir jafn auðvelt með að færa hlaupahjólin, eins og til dæmis fólk í hjólastól, aldraðir og einnig er bent á að hlaupahjólin geti skapað hættu fyrir sjónskerta.
Vilhjálmur nokkur setti mynd af rafmagnshlaupahjóli inn í Facebook hóp íbúa miðborgarinnar á dögunum. Hafði hjólið verið skilið eftir á miðri gangstétt og spyr hann hvort þetta sé boðlegt.
Eins og stundum áður eru skoðanir fólks skiptar, en sumum virðist ekki finnast athugavert við lagninguna.
Skemmtikrafturinn Margrét Erla Mack svarar: „Færðu það bara um þessa spönn sem munar.“
Steingrímur nokkur svarar Margréti: „Þú færir það ekki spönn þegar þú ert í hjólastól, hvað þá mörg í einni ferð. Hér skilar svona umræða sér kannski örlítið til vitundarvakningar sem augljóslega er þörf á.“
Þá svarar Margrét: „Ég veit að Vilhjálmur sem setti þetta hér inn er fær um að færa hjólið. Þau sem búa í Miðbænum ganga yfirleitt ekki svona um hjólin, heldur eru það, eins og fram hefur komið, fyrirtækin sem eiga það til að skilja svona við þau eða fólk verður batteríslaust á miðri leið. Ég sem einn af stjórnendum þessa hóps ætla að leita til forsvarsmanna þessara fyrirtækja, bjóða þeim í hópinn og þá er hægt að hafa sérþráð eða albúm fyrir svona tilkynningar – því þessir póstar um þetta eru orðnir mjög þreyttir.“
Hrafnhildur nokkur skrifar: „Ég bý fyrir ofan Hlemm, það eru alltaf 1-2 hjól fyrir framan húsið hjá mér og oftast eru þau skilin eftir á miðri gangstétt. Á þessu svæði er töluverð „umferð“ af fötluðu fólki og ömurlegt að horfa upp á það komast ekki fram hjá. Held það þurfi ekki endilega reglur – frekar að vekja fólk til umhugsunar hvers vegna skutlurnar eru betur geymdar upp við hús eða á ákveðnum stöðum.“
Annar spyr: „Af hverju gengur fólk vel frá sínu eigin hjóli, en illa frá þessum leiguhjólum?Svipað og maður heyrði oft um bílaleigubíla: „Þú getur böðlast á þessum bíl því þú átt hann ekki…“Þetta heyrði maður óþægilega oft. Fólk virðist bara í alvörunni oft á tíðum tapa allri ábyrgðartilfinningu þegar það leigir sér farartæki.“
Róbert nokkur spyr: „Erum við samt ekki orðin pínu gömul þegar við nennum að röfla yfir svona hlutum? Ef þetta var svona mikið fyrir af hverju tókstu ekki að þér að færa hjólið ?“
Honum er svarað: „Í mínum huga fjallar málið ekki um þetta einstaka tilvik. En hér hefur komið fram að í næsta húsi við býr blind kona sem gengur þarna mikið um – vona að umhyggja fyrir öðrum eldist ekki af okkur.





















Athugasemdir