Rúmenskur karlmaður hefur verið úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald vegna rannsóknar á andláti Daníels Eiríkssonar. Samkvæmt verjanda mannsins, sem RÚV ræðir við, þá segist maðurinn hafa ekið á Daníel fyrir slysni.
Tveir aðrir Rúmenar voru handteknir í gær en aðeins einn úrskurðaður í gæsluvarðhald. Ekki er vitað hvernig Daníel hlaut áverkana en lögregla rannsakar hvort hann kunni að hafa orðið fyrir bíl.
Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir við RÚV að samskipti hafi átt sér stað á milli Daníels og Rúmenans í aðdraganda atviksins. Heimildir Mannlífs herma að þeir hafi átt í deilum.































Athugasemdir