Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðlaugur í Steinstúni bregður búi: „Ömurlegt að þurfa að sitja undir skítkasti, drullu og lygum“

Guðlaugur í Steinstúni bregður búi: „Ömurlegt að þurfa að sitja undir skítkasti, drullu og lygum“
Guð­laugur í Steins­holti, hyggst bregða búi og njóta helga í París.

„Það er gjör­ó­líkt líf að á vera á Suð­vest­ur­horn­inu. Þar ertu vaf­inn í bóm­ull og ert nobody. Mig er farið að langa til að verða nobody,” segir Guð­laugur Ágústs­son, yngsti bónd­inn í Árnes­hreppi á Ströndum. Guð­laugur hefur ákveðið að bregða búi þegar sauð­fjár­ár­inu lýkur í sept­em­ber en halda eign­ar­haldi á jörð­inni. Brott­hvarf Guðlaugs úr hópi sauð­fjár­bænda í Árnes­hreppi er áfall þar sem þá standa aðeins þrjú bú eftir.

Guð­laugur segir ákvörð­ina ekki hafa verið auð­velda en hann tók hana í sam­ráði við einka­dóttur sína. „Ég er fjórða kyn­slóðin hér á Steins­túni, sem er flottasta bæj­ar­stæði á Íslandi, og er orð­inn yngstur sauð­fjár­bænda, 56 ára gam­all, reyndar á besta aldri. Það voru hér yngri bændur sem fóru 2016. Þetta er að tæm­ast innan frá.“

Þreytandi að vera bundinn

„Vissu­lega er ofboðs­lega gaman þegar fjöl­skyldan kemur í sauð­burð og smala­mennsku en ég er orð­inn leiður á að vera svona bund­inn. Mig langar í helg­ar­ferðir til Parísar, geta skot­ist frá hvenær sem er og notið lífs­ins.” Guð­laugur segir engan geta dregið fram lífið á sauð­fjár­rækt og þar sé hann engin und­an­tekn­ing.

„Ég er í tveimur öðrum störfum, ræ til strand­veiða auk þess sem ég er flugupp­lýs­inga­maður á flug­vell­inum hérna og sé alfarið um hann. Fjár­hags­lega gengur þetta upp og þetta er drauma­djobb fyrir par en erf­ið­ara að standa í þessu einn, sér­stak­lega yfir vetr­ar­tím­ann. Ég þarf til dæmis alltaf að vera til staðar fyrir allar komur og brott­farir.“ Guð­laugur segir þetta ekki líf fyrir ungt fólk. „Unga fólkið vill menntun, geta skot­ist til vina sinna eða farið í afmæli. Það er ekki í boði á stað þar sem sam­göngur geta lok­ast í hvelli.“

Hvalárvirkjun skar samfélagið

Það hefur einnig áhrif að miklar deilur komu upp í sveit­ar­fé­lagnu vegna fyr­ir­hug­aðrar Hval­ár­virkj­unar en sveit­ar­fé­lagið log­aði í deilum í kjöl­farið og tóku ætt­ingjar og vinir sitt hvora afstöð­una sem skar sam­fé­lagið hrein­lega í sundur. Guð­laugur er þung­orður um þessa stöðu og segir að vissu­lega eigi hún sinn þátt í að hann hafi ákveðið að bregða búi. „Það er ömur­legt að þurfa að sitja undir skít­kasti, drullu og lygum fólks sem ég vil hrein­lega meina að sé ill­gjarnt inn að beini.“

Guð­laugur er reiður. „Ég eyddi 10 árum ævi minnar í að tryggja mér atvinnu­rétt­indi vél­fræð­ings en það er svo maka­laust að eng­inn gat hugsað sér neitt hræði­legra en að ég, búandi í sveit­inni, fengi hugs­an­lega starf hjá þess­ari virkjun. Og það sem verra er, að dóttir mín, sem er að ljúka námi í véla- og orku­tækni­fræði, fengi starf þar. Í stað­inn fékk ég kæru sem var byggð á hauga­lygi og sargi og pexi í þessu liði.“

Guð­laugur situr í sveit­ar­stjórn og byggði kæran á því að hann væri fylgj­andi virkjun gegn atvinnu­lof­orði. Hann segir það af og frá og rök­leysu frá upp­hafi til enda.

„Með­stjórn­andi minn í sveit­ar­stjórn var fylgj­andi virkjun en tók síðan u-beygju. Ég sýndi því virð­ingu því hann færði rök fyrir sínu máli, þannig tekur full­orðið fólk á málum.“

Til tíð­inda dró í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2018. „Það fyllt­ist allt af ein­hverju vit­leys­inga­liði sem skráði lög­heim­ili sitt á eyði­stað til að koma í veg fyrir virkj­un­ina. Og þegar það er marg­sannað að virkj­anir séu þeim sam­fé­lögum til góða þar sem þær eru byggðar. Bæði eykst þjón­usta og sam­göngur. Það getur verið að aðrir þoli þennan djöf­ul­gang en ég vil bara vera í félags­skap góðs og skemmti­legs fólks. Í lok dags er verið að ræða um vatn sem rennur fram að kletti. Þetta er ekk­ert annað.”

Einagrun kostur og galli

Ein­angr­unin getur orðið mikil á Ströndum enda er hætt að moka veg­inn um ára­mót og fram að apríl. Það gerir það að verkum að nálægðin litla sam­fé­lag­inu er mikil sem getur vissu­lega verið bæði kostur og galli að mati Guðlaugs.

„Hér hjálp­ast allir að. Það er ekki eins og í Reykja­vík þar sem þú getur bara hringt í ein­hvern ef raf­magnið fer, þakið fýkur eða vatn­veitan gefur sig. Við bara keyrum í þetta og björgum okkur. Það eru ein­tómir töffarar sem búa hérna og geta all­ann and­skot­ann. Það þarf bara mann­skap til stjórna þessu vel. Á móti kemur að svona deilur hafa mikil áhrif á fjöl­skyldu­bönd og vin­skap sem ég vil ekki taka þátt í lengur. Fólk sem býr í sveit­inni lagð­ist lágt. Báðum megin borðs. Það var engum til sóma.”

Guðlaugi þykir vænt um kind­urnar sínar og hefur ásamt dóttur sinni unnið stað­fast­lega í því að gera aðbúnað dýr­anna sem allra bestan. „Það er ekk­ert skemmti­legra en að standa í sauð­burði og smölun með allri fjöl­skyld­unni og það verður erfitt að sjá á eftir þeim í bíl á leið í slát­ur­húsið en ég er ekki búinn að gefa upp von­ina að fá kaup­endur af þeim yngri. En ég er búinn að taka mína ákvörðun og er harð­á­kveð­inn. Mig langar að njóta þess að vera í vit­leys­ingur í góðum og skemmti­legum hópi ann­ara vit­leys­inga,” segir Guð­laugur Ágústs­son, bráðum fyrr­ver­andi bóndi að Steins­túni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi