Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásgeir Þór var aðeins 46 ára: „Vá hvað ég finn mikið til í hjarta mínu og öllum líkamanum“

Ásgeir Þór var aðeins 46 ára: „Vá hvað ég finn mikið til í hjarta mínu og öllum líkamanum“

Ásgeir Þór Ásgeirs­son, hús­gagna­smiður frá Akranesi, verður bor­inn til grafar í dag en hann var aðeins 46 ára gam­all er hann lést. Hann varð bráð­kvaddur þann 22. mars síð­ast­lið­inn.

Ásgeir Þór fædd­ist 13. febr­úar 1975 á Akranesi. Á ung­lings­árum flutti hann með fjöl­skyldu sinni til Sví­þjóðar og þaðan útskrif­að­ist hann sem hús­gagna­smiður. Ásgeir starf­aði að mestu við bygg­inga­iðnað, bæði erlendis og hér­lendis. Þá vann hann lengi hjá Norð­ur­áli en undir það síð­asta var hann í starfsend­ur­hæf­ingu. Hann átti sex systk­ini: Þrjár systur og þrjá bræður. Síð­ast­liðin ár bjó hann á Vest­ur­götu 111 á Akranesi ásamt sam­býl­is­konu sinni Krist­björgu Smára­dóttur Hansen og hund­unum Sísí og Gucci.

Rut Eiríks­dóttir, systir Ásgeirs, minn­ist hans með hlýjum orðum í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu. „Elsku Geiri bróðir, ég vil ekki trúa því að þú sért far­inn og ég fái aldrei að hitta þig aftur. Í gegnum öll tárin hef ég líka brosað yfir öllum góðu minn­ing­unum. Ég dýrk­aði þig og dáði og vildi alltaf vera með þér. Lífið var þér ekki alltaf auð­velt og þú týndir oft sjálfum þér en þú rataðir aftur á rétta braut. Það eru margar spurn­ingar sem ég fæ aldrei svör við og það er svo sárt að vita að sál­ar­ang­istin var svo mikil að þú sást ekki aðra leið, en minn­ing um hjarta­hlýjan og góðan mann lifir í hjörtum allra sem þekktu þig. Hvíldu í friði elsku bróðir minn,“ segir Rut.

Ríkey Jóna Eiríks­dóttir ritar einnig fal­leg minn­ing­ar­orð um bróður sinn. „Síðustu dagar hafa verið í þoku og óraun­veru­legir. Stundum tel ég þetta allt vera draum og bráðum mun ég vakna og þú ert enn hér. En raun­veru­leik­inn kippir mér niður á jörð­ina og minnir mig á að þú ert far­inn. Vá hvað ég finn mikið til í hjarta mínu og öllum lík­am­anum, sem lýsir því hversu mik­il­vægur þú ert mér. Þú varst svo ótrú­legur klettur í lífi margra og besti vinur sem hugs­ast getur. Ég trúi því að þótt þú sért ekki lengur hér þá hald­irðu áfram að vera vernd­ar­eng­ill­inn minn og passir upp á mig þar sem þú ert,“ segir Ríkey og bætir við:

„Þú pass­aðir svo ótrú­lega vel upp á alla í kringum þig að þú gleymdir sjálfum þér. Ég vona að þú hafir vitað það hvað ég var stolt af því að vera litla systir þín því ég held ég hafi bara gert ráð fyrir að þú myndir alltaf vera hér. Ég trúi því að þér líði vel þar sem þú ert og þú sért umkringdur ást­vinum sem þú hefur misst. Ég sakna þín svo sárt elsku Geiri og frá­fall þitt skilur eftir sig stórt skarð í hjarta mér og allra sem þekktu þig.“

Útförin Ásgeirs Þórs fer fram í Akra­nes­kirkju í dag klukkan 13 og verður henni streymt hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi