„Hey #foreldratwitter leikiði mikið við börnin ykkar? Og já þetta er safe space þráður þar sem engin má shame-a neinn fyrir að leika of mikið eða lítið. Er bara að velta þessu fyrir mér,“ skrifar Sigrún Skaftadóttir, öfgafemínistinn, eins og hún kallar sig sjálf og fyrrverandi formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar á Twitter.
Margir deila því hvernig leikstundirnar á þeirra heimili séu og er ansi misjafnt hvernig og hvort leikið sé saman. En orðið leikur getur verið tvírætt og eflaust misjafnt hvað fólk flokkar sem leik.
Iðunn nokkur spyr:
„Hvað er átt við með leik? Ef það er það sem ég held þá svara ég nei en ég les mikið fyrir minn 5 ára, svara nánast öllum hans spurningum (þær eru margar), ræði mikið við hann, geri tilraunir með honum, baka planta blómum osfrv. En þetta er sennilega ekki inni í hugtakinu „leikur”.“
„Ég er pabbi barnanna minna. Ekki leikfélagi. Þau eiga vini til þess. Vil að þau geti alltaf leitað til mín með allt og að ég bakki þau upp í lífinu. Eyði alveg tíma með þeim en horfi ekki á það sem leik,“ skrifar einn.
„Já frekar mikið. Raunar vildi ég stundum óska þess að dóttir mín væri betri í að dunda sér sjálf, og reyni að styðja hana í því eftir því sem hún sjálf vill. Hún er svona að verða aðeins betri í því hægt og bítandi,“ svarar pistlahöfundurinn Hrafn Jónsson.
„Nei ekki núna, er að bíða eftir að hann verði nógu gamall til að skilja Olsen Olsen,“ skrifar Inga nokkur.
Einn lýsir yfir vonbrigðum sínum yfir að eiga ekki barn eftir að hafa lesið þráðinn:
„Ég á ekki barn og leik bara við stóru vini mína sem eiga heldur ekki börn (eða ok, einhverjir af þeim eiga börn). og eftir að hafa farið í gegnum þennan þráð grenja ég yfir því að eiga ekki barn. já, ég veit. það er komið eggjastokkahljóð í mig…“
Ein skrifar: „Já ágætlega, byrja oft að kubba með honum og færi mig hægt og rólega til baka og þori ekki að anda. Er svona að þjálfa dund þolinmæðina hjá blessuðu barninu. En annars lesum við mjög mikið saman.“
„Nei. Á þrjú börn og ég er bara ekki mamman sem planar stöff fyrir börnin eða leikur við þau. Pabbi þeirra er hinsvegar mikið duglegri en ég að vera með þeim en hann hefur gaman að því á meðan ég hef það ekki (mammviskubitið er hræðilegt),“ skrifar ein.
„Myndi klárlega segja já rosa oft þá er ég að lesa fyrir hana, gera æfingar frá talmeinafræðingnum, þjálfa hana í fínhreyfingum með leik. Hún er rosa góð í að snúa öllu á hvolf ein, ekki svo mikið dunda sér við það,“ skrifar faðir.
„Ég lék við mína á meðan þeir voru mjög litlir, en svo fundu þeir bara út úr því sjálfir að leika sér svona 2-3 ára og þurftu ekki mína hjálp til þess, en auðvitað spilaði, las og teiknaði með þeim reglulega, en þeir voru sjálfstæðir í leik,“ svarar Vala.
Nína segir: „Ég spila og púsla og lita með þeim, enda svo heppin að stýra vinnutímanum sjálf. Gerði það miklu sjaldnar þegar ég var í 9-5 dæmi, enda oftar þreytt. Oftast verða minnis-spil fyrir valinu, eða langavitleysa eða eitthvað þannig einfalt. Svo bara eltinga- og feluleikur.































Athugasemdir