Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, fer ekki fögrum orðum um Hannes Hólmstein Gissurarson né nýútgefna bók hans eða útgefanda bókarinnar. Tveggja binda bók Hannesar „Twenty-Four Conservative-Liberal Thinkers“ er gefin út af hugveitunni New Direction í Brussel.
Gunnar Smári skrifar:
„Útgefandi að bók Hannesar Hólmsteins um 24 hugsuði, sem hann vill flokka sem skoðanabræður sína, þ.m.t. Snorra Sturluson, er hugveita harðra íhaldsflokka í Evrópu sem margir hverjir eru virkir í niðurbroti mannréttinda og lýðræðis. Stjórnarfólk í þessari hugveitu kemur úr flokkum á borð við Bræður Ítalíu, Lög og réttlæti í Póllandi og Vox á Spáni, einn er fyrrum liðsmaður Alternative für Deutschland þótt sá flokkur sé ekki í sömu flokkasamtökum og Sjálfstæðisflokkurinn hefur kosið að ganga til liðs við. En þar er svo sem nóg af háskalegum skoðunum; þetta er klúbbur flokka sem vilja sem minnst ríkisvald (svo hin ríku þurfi ekki að borga skatta og geri farið sínu fram í fyrirtækjarekstri), styðja íhaldssöm persónu- og samfélagsgildi (eru margir andsnúnir þungunarrofi, hjónabandi samkynhneigðra, vilja kenna þjóðrækni og andkommúnisma í skólum) og eru á móti innflytjendum.“
Jafnframt segir Gunnar það magnað að Ríkisútvarpið skuli taka frá tíma í fréttaskýringaþættinum Speglinum til að kynna bókaútgáfu þessara samtaka, eins og hann orðar það sjálfur.
Gunnar lætur ekki þar við sitja, heldur segir hann þá ákvörðun að gefa út bókina hjá þessari hugveitu benda til þess að bókin hafi hvergi annars staðar fengist útgefin. Hann segir bókina vera hægri áróður sem vandaðar útgáfur myndu ekki einu sinni snerta með töngum.
Lýsir Gunnar Hannesi Hólmsteini sem kómískri persónu sem tali fyrir frelsi en ráði illa við ást sína á valdhöfum sem beiti valdi sínu af hörku og segir hann einnig tala fyrir mannréttindum en beri enga virðingu fyrir mannfólki.





















Athugasemdir