Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vigfús valdur að íkveikju sem drap tvo á Selfossi: „Ég er morðingi, Guð fyrirgefi mér“

Vigfús valdur að íkveikju sem drap tvo á Selfossi: „Ég er morðingi, Guð fyrirgefi mér“

Þann 31. októ­ber árið 2018 brann hús að Kirkju­vegi 18 á Selfossi allt að því til grunna og lét­ust maður og kona í brun­anum. Fljót­lega í ljós að um íkveikju var að ræða en á vett­vangi höfðu maður og kona verið verið hand­tekin. Bæði voru þau í ann­ar­legu ástandi.

Var mað­ur­inn, sem var á sex­tugs­aldri, fljót­lega kærður fyrir mann­dráp en konan fyrir að hafa ekki gert það sem í hennar valdi stóð til að afstýra elds­voð­anum. Maðurinn heiti Vigfús Ólafsson. Konan heitir Elva Mart­eins­dóttir.

„Ég er morð­ingi, Guð fyr­ir­gefi mér“, sagði Vigfús í lög­regu­bíl eftir að hafa verið hand­tek­inn, grun­aður um íkveikj­una.

Mikill drykkjumaður

Vigfús sagði síðar fyrir rétti að fólkið hefði setið við drykkju og hann muni eftir því að hafa kveikt í pizzukassa í stof­unni. Allt í einu hafi stofan verið alelda, en hann hefði reynt að slökkva eld­inn með bjór. Sagði Vigfús að hann hafi yfir­gefið húsið þegar hann átt­aði sig á því að hann gæti ekki slökkt eld­inn. Hann sagð­ist fyrir hér­aðs­dómi vera mik­ill drykkju­maður. Honum liði alltaf illa og drykki til að deyfa sig. Hann kvaðst ekki muna eftir því að hafa verið með kon­unni eða fólk­inu sem lést í hús­inu. Þau hefðu þó verið drykkju­fé­lagar hans þótt sam­bandið þeirra á milli hefði ekki alltaf verið gott.

Við krufingu kom fram að mað­ur­inn og konan hafi verið undir áhrifum bæði lyfja og áfengis, sem hafi gert það að völdum að þau hafi ekki orðið vör við eld­inn fyrr en það var um seinan. Þau voru á lífi á meðan að eld­ur­inn breidd­ist hratt um húsið sem varð á örskots­stundu alelda. Slökkvi­starf gekk erf­ið­lega vegna gríð­ar­legs hita og gátu reykka­f­arar ekki kom­ist upp á efri hæð hússin þar sem fólkið var stað­sett.  Við skýrslu­töku sögðu sjúkra­flutn­ing­ar­menn­irnir og lög­reglu­menn­irnir að þegar þeir hafi komið að brun­anum hafi þeir heyrt hróp innan úr hús­inu, en það hafi hins vegar verið algjör­lega ómögu­legt að fara inn í húsið til að bjarga fólk­inu vegna mik­ils elds.

„Þú ert ógeðslegur morðingi“

Lýstu lög­reglu­menn­irnir því einnig að Elva hafi verið mjög reið út í Vigfús þegar þau stóðu fyrir utan brenn­andi húsið. „Þú ert ógeðs­legur morð­ingi,“ sagði Elva og hrækti á Vigfús. Þegar lög­reglan færði Vigfús inn í lög­reglu­bif­reið spurði Vigfús ítrekað lög­reglu­menn­ina hvort hann væri orð­inn morð­ingi.

Upp­runa­lega gekk lög­reglan út frá þeirri til­gátu að morð hefði verið framið og síðan kveikt í hús­inu til að hylma yfir þann ásetn­ing. En sam­kvæmt Sebast­ian Kunz rétt­ar­meina­fræð­ingi lét­ust mann­eskj­urnar vegna reyk­eitr­unar. Kunz sagði að hvor­ugt þeirra hafi verið með merki um höggá­verka og ummerki um innri áverka á líf­færðum ekki grein­an­leg. Samkvæmt krufn­ingu var því ekk­ert sem benti til þess að eitt­hvað annað en reyk­eitrun hafi orðið þeim að bana.

Vigfús hélt því fram að hann hefði engan viljað skaða nema sjálfan sig.

Dómur fellur

Í niður­stöðu sagði dóm­ari við Hér­aðs­dóm Suð­ur­lands að þar sem Vig­fús hafði glímt við sjálfs­vígs­hugs­an­ir og hefði áður brennt sig og skorið vilj­andi, væri „ekki loku fyr­ir það skotið“ að ásetn­ing­ur hans hefði ein­ung­is verið að „skaða sjálf­an sig en ekki aðra sem í hús­inu. Hann var dæmdur í fimm ára fang­elsi en hér­aðs­sak­sókn­ari hafði farið fram á átján ára fang­elsi yfir Vigfúsi.  Elva var sýknuð af öllum ákærum.

Rík­is­sak­sókn­ari áfrýj­aði dómnum í kjöl­farið og var dómur kveð­inn upp í Lands­rétti í des­em­ber 2019. Refs­ingin hljóð­aði upp á fjórtán ára fang­elsi fyrir mann­dráp. Þá var Vigfús dæmdur til að greiða ætt­ingjum hinna látnu sam­an­lagt rúm­lega 22 millj­ónir króna í bætur.

Í dómi Lands­rétt­ar var vísað til þess að Vig­fús hefði kveikt eld­inn vit­andi að á efri hæð húss­ins væru þau tvö sem lét­ust í elds­voð­anum. Þá hefði hann vitað að mik­ill elds­mat­ur væri í hús­inu og ekki getað dulist að svo gæti farið að þau, sem uppi voru, kæm­ust ekki und­an ef kvikn­aði í hús­inu og lík­legt væri að þau gætu beðið bana, eins og reynd­in hefði orðið. Þrátt fyr­ir að hafa vitað þetta hefði hann kveikt eld sem hefði leitt til þess að tvær mann­eskj­ur lét­ust. Þess vegna hafi hann verið sak­felld­ur fyr­ir mann­dráp.

„Við ákvörðun refs­ing­ar var litið til þess að ásetn­ing­ur hans hefði ekki verið mjög ein­beitt­ur. Hins veg­ar hefði hann enga til­raun gert til að vara við þau sem voru á efri hæð húss­ins og lét­ust í elds­voð­anum eða koma þeim til bjarg­ar,“ seg­ir í reif­un Lands­rétt­ar.

Dómnum var áfrýjað til Hæsta­réttar sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að Vigfúsi hafi ekki getað dulist hverjar afleið­ingar þess að kveikja eld í stofu íbúð­ar­hús­næð­is­ins gætu orðið. Við ákvörðun refs­ingar var litið til skelfi­legra afleið­inga brota Vigfús en litið til þess að á verkn­að­ar­stundu hafi Vigfús haft lægsta stig ásetn­ings til beggja brot­anna. Var Vigfúsi gert að sæta fang­elsi í 14 ár. Þá var honum gert að greiða börnum og for­eldrum hinna látnu bætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi