„Vildi bara láta ykkur vita og biðja ykkur um að vera vakandi og virkja nágrannagæsluna í hverfinu. Í gær kl. 16 gekk hér maður um hverfið með GO pro myndavél á stöng og myndaði allt í kring um sig,“ segir Hildur R. Harðardóttir í færslu á Facebook síðu Mýra og Túna í Mosfellsbæ.
„Auðvitað getur þetta verið hver sem er að mynda sér til gamans, en það sem okkur þótti mest athugavert var að hann var með buff dregið upp fyrir nef, sólgleraugu og húfu vel niður á höfuð svo það var engin leið að sjá hvernig maðurinn leit út. Hann virtist mynda vel allt í kringum sig þá leið sem hann gekk. Hann fór hér í gegnum hverfið og alla leið upp úr iðnaðarhverfi líka“
Hildur hvetur fólk til að vera á verði þar sem svo virðist sem faraldur sé í gangi í hverfinu.
„Ef þetta er einhver íbúi hér í hverfinu að mynda sér til gamans, þá biðst ég afsökunnar á þessum pósti en en mér finnst full ástæða að láta ykkur öll hin vita þar sem okkur hjónum fannst þetta mjög skrítið“.





















Athugasemdir