Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Neytandi vikunnar – Neyðist til að kaupa það sem til er á uppsprengdu verði

Neytandi vikunnar – Neyðist til að kaupa það sem til er á uppsprengdu verði

Neytandi vik­unnar er Jónína Guðrún Gunn­ars­dóttir 60 ára og mennt­aður iðju­þjálfi. Hún starfar sem for­stöðu­maður Iðju sem er dag­þjón­usta fyrir fatlað fólk með langvar­andi stuðn­ings­þarfir í sveit­ar­fé­lag­inu Skaga­firði. Jónína er gift Trausta Hólmari Gunn­ars­syni raf­virkja­meist­ara hjá Tengli ehf. Þau eiga þrjú börn sem flogin eru úr hreiðr­inu, í það minnsta með annan fót­inn/væng­inn. Börnin koma annað slagið í „mömmu­mat“ sér­stak­lega á hátíðum og á sunnu­dögum. Jónína og Trausti eiga einn bíl og hús­næði. Þau aka um það bil 70 kíló­metra til og frá vinnu hvern virkan dag þar sem þau búa í dreif­býli.

Hve miklu eyðir fjöl­skyldan í mat og aðrar rekstr­ar­vörur heim­il­is­ins á mán­uði og hvar verslar hún helst ?

„Það er  mis­jafnt, fer eftir því hvort hátíð­is­dagar eru með í töl­unni eða ekki og hversu oft „blessuð börnin“ koma í mat, að með­al­tali um 100 þús­und á mán­uði. Ef við bætum við hrein­læt­is­vörum og olíu­kostn­aði þá er þetta á bil­inu 150-170 þús­und á mán­uði. Þá reikna ég ein­ungis með ferðum til og frá vinnu en alla jafna gerum við mat­ar­inn­kaupin í Skag­firð­inga­búð sem er Kaup­fé­lags­verslun eða Hlíð­ar­kaup sem er einka­rekin verslun á Sauð­ár­króki, áður en við förum heim. Einstaka sinnum verslum við í Bónus á Akureyri, Hagkaup eða Nettó, sér­stak­lega ef við þurfum að „bregða okkur af bæ“ t.d. í lækn­is­ferð o.s.frv. Við gerum okkur ekki sér­staka ferð til að versla utan fjarð­ar­ins nema af illri nauð­syn eins og sagt er, sér­sak­lega núna á Covid tímum.“

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi ?

„Já ég reyni að spara en það er hæg­ara sagt en gert þar sem ekki er mikil sam­keppni hér á svæð­inu og oftar en ekki þarf maður að versla það sem er til, oftar en ekki á upp­sprengdu verði. Sem betur fer er ég alin upp við að fara vel með það sem maður á og tel mig kunna nokkuð vel að nýta afganga. Við reynum að versla þegar „til­boð“ eru t.d. á haustin og setja í kist­una, tökum slátur o.s.frv. Einnig verslum við  „beint frá bónda“ í heima­byggð.     Sem neyt­andi vildi ég gjarnan sjá lág­vöru­verðs­verslun á svæð­inu t.d. eins og Bónus til að hafa eitt­hvert almenni­legt val.“

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er ?

„Já það má segja það, bank­inn sér um það fyrir mig að mestu (útgjalda­dreif­ing) einnig er ég með reikn­ing sem ég legg annað slagið inn á ef ein­hver afgangur verður á mán­að­ar­mótum. Þetta er reikn­ingur sem búið er að leggja inn á ansi lengi og á að nýta í utan­lands­ferð fjöl­skyld­unar þegar veiru­fj­and­inn er far­inn.“

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu ?

„Mér finnst álagn­ing allt of mikil og bara skil ekki að hún þurfi að vera svona mikil.  Ég tel að verð gæti verið lægra í flestum versl­unum þá sér­stak­lega í þeim versl­unum sem eru farnar að fækka starfs­mönnum og láta við­skipta­vini afgreiða sig sjálfa. Ég hef svo sem ekki kannað verð á síma, trygg­ingum og þess háttar þjón­ustu en það væri ekki úr vegi að gera það.“

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán ?

   „Já, ég er með gam­alt verð­tryggt lán sem á þeim tíma stóð ein­ungis til boða auk náms­láns !!!! Annars erum við svo „gömul“ að hugs­unin er, ekki kaupa það sem þú þarft að taka lán fyrir.“

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli ?

„Já, hún gerir það upp að vissu marki. Ég er af þeirri kyn­slóð sem var ekk­ert sér­st­k­lega kennt að hugsa um umhverf­is­vernd eins og hún er orðin í dag en ég fylgist grannt með og  já, ég reyni að velja vist­vænar vörur frá fyr­ir­tækjum sem huga að nátt­úr­unni.  En t.d. læt ég vatnið ekki renna á meðan ég tann­bursta mig,  ég læt ekki renna stöðugt þegar ég er í sturtu þó svo við höfum nóg af vatni.

Ég mætti vera dug­legri við að flokka en þetta er allt að koma. Ég hendi ekki fatn­aði, fer með hann í Rauða kross­inn þ.e.a.s. ef ég nýti hann ekki í tætlur sem ég geri mikið af því ég kaupi ekki oft fatnað. Ég kaupi fatnað sem ég sé fram á að nota en ekki hanga inn i skáp. Ég elt­ist ekki við tísku­bylgjur hvort sem um fatnað eða heim­il­is­vörur/hús­gögn er að ræða og höfum við  hjónin skapað okkar eigin stíl sem sam­anstendur af gömlu og nýju í bland og stuðlum þannig að sparn­aði og umhverf­is­vernd.  Svo er miklu skemmti­legra að eiga hluti með „sögu“  t.d. á ég skenk og stofu­borð sem móð­ur­afi minn smíð­aði á sínum tíma. Ég hef aldrei skilið tísku­fyr­ir­bærið „Omaggio.“

Kaffi er drykk­ur­inn á heim­il­inu og eigum við upp­á­hell­ing­ar­könnu því mér finnst það best og umhverf­is­væn­ast. Ég hef velt því fyrir mér hvort ég ætti að fá mér raf­bíl eða tvin­bíl þar sem við keyrum ansi mikið vegna stað­setn­ingar heim­ilis og vinnu.  Þeir eiga víst að vera „umhverf­is­vænir“ að fróðra manna sögn. En ég spyr mig eru þeir eitt­hvað umhverf­is­vænni þegar upp er staðið. ?  Hvað verður um raf­hlöð­urnar og gumsið sem er í þeim o.s.frv. ? !!!! Einnig er ég nokkuð viss um að allur akst­ur­inn hjá okkur hjónum kemst ekki í hálf­kvisti við einka­þotur allra millj­arða­mær­ing­anna sem fara út um allar trissur. Ég held að þeir/þær séu mun stærra vanda­mál fram­tíð­ar­innar fremur en akstur okkar „gömlu hjón­anna“ í sveit­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi