Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björn Ingi og Brynjar rífast – Augljóst að hagsmunir ferðaþjónustunnar vegi þungt

Björn Ingi og Brynjar rífast – Augljóst að hagsmunir ferðaþjónustunnar vegi þungt

Björn Ingi Hrafns­son, rit­stjóri Viljans og Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eru afar ósam­mála um hvernig haga eigi aðgerðum á landa­mærum Íslands vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Björn vill hert­ari reglur á landa­mær­unum á meðan Brynjar skellti sér til Spánar í páska­frí, eins og frægt er orðið, og gerði þar með lítið úr orðum Þórólfs Guðna­sonar, sótt­varna­læknis sem gaf út þau til­mæli fyrir páska að fólk ætti að sleppa nauð­synja­lausum ferða­lögum til áhættu­svæða vegna Covid-19. Öll lönd heims, nema Grænland eru áhættu­svæði að sögn Þórólfs.

Brynjar skrifar færslu á Facebook síðu sinni í gær:

„Hef haft nokkuð gaman af því að fylgj­ast með nýja þrí­eyk­inu, Þórólfi, Kára og Birni Inga tala við hvern annan um hvað þing­menn eru miklir fávitar að leyfa þeim ekki að nauð­ung­ar­vista fólk í sótt­varna­húsi, sem hvorki er smitað né grunað um að vera smitað. Auðvitað vilja vinstri menn á þing­inu breyta lög­unum svo það verði hægt. Kæmi ekki á óvart að Rósa Björk, Andrés Ingi og aðrir mann­rétt­inda­fröm­uðir á vinstri vængnum vildu einnig ákvæði í lög­unum um við­ur­lög þeirra sem hæð­ast að sótt­vörnum eða gera minna úr alvar­leika veirunn­unar en efni standa til.“

Er Brynjar í skrifum sínum að vitna í við­tal sem Björn Ingi tók við þá Þórólf Guðnason og Kára Stef­áns­son nú fyrir helgi.

Björn Ingi svarar þess­ari færslu Brynjars á vef Viljans í dag og er langt frá því að vera sáttur með skrif ald­ar­vinar síns eins og Björn kallar Brynjar.

„Af orðum Brynjars má ráða, að Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hafi gefið út nokk­urs konar opin­bert skot­leyfi á fólk og krefj­ist nauð­ung­ar­vistar að ástæðu­lausu og það sé þing­mönnum að þakka að ekki hafi reynst laga­grund­völlur fyrir slíkum ráð­stöf­unum. Ljótt ef satt væri,“ skrifar Björn Ingi.

Björn Ingi heldur áfram og segir að um sé að ræða komu­far­þega frá svoköll­uðum há-áhættu­svæðum. Reynslan hafa sýnt það, sam­kvæmt minn­is­blöðum sótt­varna­læknis, að fyrri útfærslur á sótt­kví komu­far­þega hafi ekki virkað sem skyldi, vegna þess að ekki allir fylgi þeim, fólk sé til að mynda að sækja nákomna í Leifs­stöð og ferða­menn sem eigi að vera í sótt­kví séu að ganga upp að gos­s­töðv­unum í Geld­inga­dölum, því þurfi hert­ari aðgerðir.

Segir Björn ástæðu þess að Þórólfur, Kári, hann sjálfur og fleiri hafi áhyggjur af landa­mær­unum vera sú að stað­reynd­irnar tali sínu máli, smitin séu að ber­ast af landa­mær­unum og inn í landið.

Þvert á ráð­legg­ingar sótt­varna­læknis sé einnig búið að opna landið fyrir ferða­mönnum frá ríkjum utan Schengen sem hafa verið bólu­settir eða eru með mótefni og sleppa þeim við sótt­kví, skrifar Björn og segir Ísland jafn framt vera eitt fyrsta landið sem geri það.

Björn segir aug­ljóst á þessu að hags­munir ferða­þjón­ust­unnar vegi þungt á met­unum hjá Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, dóms­mála­ráð­herra og rík­is­stjórn­inni í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi