Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigmundur spáir dópi í bekkjarpartýum: „Hvað er‘idda maður, þetta er löglegt“

Sigmundur spáir dópi í bekkjarpartýum: „Hvað er‘idda maður, þetta er löglegt“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir að ef frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um að gera fíkni­efna­neyslu refsi­lausa verði sam­þykkt þá verði Ísland Krist­janía heims­ins. Hann sér fyrir sér að fíkni­efni verði dregin upp jafn­vel í bekkj­arpartýum mennta­skólakrakka. Þetta ásamt öðru segir hann í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag.

Sig­mundur full­yrðir að hann hafi aldrei séð fíkni­efni á ævinni, líkt og hann gerði á Alþingi. Margir efuð­ust um það þá. „Með því að banna eit­ur­lyf senda stjórn­völd skila­boð um að þau séu hættu­leg. Það að eitt­hvað sé ólög­legt er sterk hindrun. Með lög­leið­ingu fíkni­efna eru stjórn­völd í raun að gefa leyfi til að prófa. Í ótal sam­kvæmum á náms­ár­unum og á ólíkum vinnu­stöðum varð ég aldrei var við eit­ur­lyf. Eflaust voru þau stundum skammt undan en fólk var ekki að flíka þeim vegna þess að þau voru ólög­leg,“ segir Sig­mundur.

Hann telur að ungt fólk verði lík­legra til að luffa fyrir hóp­þrýst­ingi. „Því væri öðru­vísi farið ef rík­is­valdið legði blessun sína yfir með­ferð „neyslu­skammta“. Eftir það munu ung­menni ekki hika við að mæta með slík efni í sam­kvæmi enda gera þau það með leyfi stjórn­valda. Það verður þá freist­ing fyrir aðra að prófa og jafn­vel erfitt að fylgja ekki ef vin­irnir gera það. Það verður aukin hætta á „smiti“ í hverju bekkj­arpar­tíi („hvað er‘idda maður, þetta er lög­legt“). Fjöldi fólks sem ella hefði ekki kom­ist í tæri við slíka freist­ingu eða hóp­þrýst­ing mun eiga á hættu að kom­ast í kynni við fíkni­efni og margir ánetj­ast þeim,“ segir Sig­mundur.

Hann veltir því svo fyrir sér hvað neyslu­skammtur sé mikið af dópi, en það er ekki skil­greint í frum­varp­inu. „Allir sem hafa orðið fíklar hafa byrjað á einum skammti. En hvað á rík­is­stjórnin við þegar hún talar um neyslu­skammta? Hún virð­ist ekki vita það sjálf því sam­kvæmt frum­varp­inu á að fela ráð­herra að skil­greina það síðar í reglu­gerð. Það er með öðrum orðum verið að fara fram á að þing­menn sam­þykki eitt­hvað sem hvorki þeir né rík­is­stjórnin vita hvað er. Í umræðu um frum­varpið kom fram að ráð­herr­ann sem flytur málið veit ekki sjálfur hvað neyslu­skammtur er. Það stendur víst til að kom­ast að því meðal ann­ars með sam­tölum við fíkni­efna­neyt­endur. En neyslu­skammtur eins getur verið bana­biti ann­ars. Þekkt eru dæmi um að ung­menni hafi lát­ist eftir að hafa reynt eit­ur­lyf í fyrsta skipti,“segir Sig­mundur.

Hann full­yrðir að lokum að ef frum­varpið verði sam­þykkt þá verði Ísland með frjáls­lynd­ustu lög heims­ins hvað varðar dóp. „Í frum­varp­inu er vísað til reynslu ann­arra landa og meintra for­dæma sem eru þó allt ann­ars eðlis ef að er gáð. Raunin er sú að verði frum­varpið að lögum verður Ísland sér á parti varð­andi frelsi til eit­ur­lyfja­neyslu. Lög lands­ins munu þá ganga langt umfram það sem við­gengst í Krist­janíu í Kaup­manna­höfn, hvort sem litið er til form­legra reglna eða raun­veru­legrar fram­kvæmdar þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi