Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jónína ljóstraði upp um fullkomnasta glæp Íslandssögunnar

Jónína ljóstraði upp um fullkomnasta glæp Íslandssögunnar

Það var á köldum mánu­dags­morgni í febr­úar 1995 sem ráð­ist var að tveimur konum, starfs­mönnum olíu­fé­lags­ins Skelj­ungs, þar sem þær voru á leið að skila inn helg­ar­upp­gjöri fyr­ir­tæk­is­ins í Íslands­banka við Lækj­ar­götu.

Um var að ræða þrjá hettu­klædda menn og barði einn þeirra aðra kon­una í höf­uðið með slökkvi­tæki svo hún féll í göt­una og marð­ist illa. Því næst rifu þeir til sín tösk­una með pen­ing­unum og voru á örskots­stundu flúnir á á hvítum Saab sem fannst á Ásvalla­götu síðar um morg­un­inn. Bif­reiðin var stolin og aug­ljóst að reynt hafði verið að kveikja í henni. Í bílnum fannst meðal ann­ars taskan frá Skelj­ungi en í botni hennar var þjófa­varn­ar­tæki sem hannað var til að gefa frá sér hljóð og sprauta lit­ar­efni á inni­haldið við ákveðnar aðstæður. Bún­að­ur­inn reynd­ist bil­aður.

Ræn­ingj­arnir komust undan með tæp­lega 6 millj­ónir króna.

Sönnunargögn brennd

Síðdegis þann sama dag var lög­regla kölluð að fjör­unni í Hvamms­vík í Kjós þar sem enn brann bál og aug­ljóst var að hefði verið reynt að farga fatn­aði, ávís­unum og kredit­korta­nótum. Einnig fannst pen­inga­poki frá Skelj­ungi. Sumt var þegar brunnið en unnt var að bera kennsl á annað. Meðal ann­ars náð­ist lífs­sýni úr fatn­aði.

Rannsókn lög­reglu var gríð­ar­lega umsvifa­mikil en gekk erf­ið­lega þar sem vís­bend­ingar voru litlar sem engar auk þess sem engar upp­lýs­ingar var að fá úr hinu íslenska glæpa­manna­sam­fé­lagi. Svo virt­ist sem ræn­ingj­arnir væru því alls ótengdir og hefðu ein­fald­lega gufað upp að verkn­aði loknum.

Fljótfærni og dómharka

Tíminn leið og engar nýjar vís­bend­ingar komu fram. Lögregla ótt­að­ist að málið myndi ná tíu ára fyrn­ing­ar­tíma. Biðin var starfs­konum Skelj­ungs sér­stak­lega erfið. Þær höfðu verið nafn­greindar á sínum tíma og orðið fyrir miklu áreiti í kjöl­farið. Þær voru stöðugt spurðar út í ránið, ekki síst hvort þær hefðu svið­sett það sjálfar. Fljót­færni og dóm­harka land­ans tók veru­legan toll af þeim eins og fram kom í við­tölum síðar.

Smám saman fékk Skelj­ungs­ránið á sig það orð að senni­lega yrði það aldrei upp­lýst. Höfðu sumir á orði að um væri að ræða full­komn­asta glæp á Íslandi.

Árin liðu og margir gleymdu Skelj­ungs­rán­inu. Það er síðan árið 2001 að þátt­ur­inn Sönn íslensk saka­mál, sem sýndur var á RÚV, tók málið fyrir og urðu vatna­skil í mál­inu í kjöl­farið. Kona að nafni Jónína Bald­urs­dóttir hafði sam­band við lög­reglu og sagð­ist vilja greina frá leynd­ar­máli sem hefði legið þungt á henni.

Vildi ekki byrðina lengur

Jónína sagði fyrr­ver­andi sam­býl­is­mann sinn, Stefán Aðal­stein Sig­munds­son, bera ábyrgð á rán­inu. Í við­tali við DV árið 2002 sagði Jónína að Stefán hefði hringt í hana og hefði honum verið mikið niðri fyrir. „Hann sagði mér að hann hefði staðið að þessu ráni í Lækj­ar­göt­unni og lýsti því fyrir mér að þeir hefðu verið þrír og þetta hefði verið vand­lega und­ir­búið. Þeir biðu þarna eftir stelp­unum sem þeir vissu að kæmu um þetta leyti. Þegar þær stopp­uðu stukku tveir þeirra á eftir bílnum. Stefán greip með sér slökkvi­tæki sem var í bílnum og ætl­aði að nota það til að sprauta á þær til að skapa ótta. En þegar til kom var tækið bilað og þegar ekk­ert kom út úr því panikk­aði hann og barði eina þeirra. Það hafði ekki staðið til að meiða neinn.“

Ránið var þaul­skipu­lagt. Stefán og sam­verka­menn hans skiptu yfir í reið­hjól sem far­ar­skjóta eftir að hafa losað sig við Saabinn, hjól­uðu hver í sína átt­ina og hitt­ust við jeppa sem þeir óku í Hval­fjörð­inn til að brenna sönn­un­ar­gögn. Stefán bað Jónínu að fela hans hluta af fengnum sem hún og gerði til skamms tíma og fékk 200 þús­und krónur fyrir. Henni hafði liðið illa með þessa vit­neskju. „Ef maður tekur þá stefnu í líf­inu að vera heið­ar­legur og njóta lífs­ins þá verður maður að losa sig við svona byrði.“

Jónína var ekki ákærð fyrir yfir­hylm­ingu þar sem hún hafði komið að fyrra bragði til lög­reglu og greint skýrt og skor­in­ort frá öllu sem hún vissi um málið.

Handtaka og dómur

Stefán var hand­tek­inn í kjöl­farið og ját­aði hann sinn þátt í rán­inu, rakti röð atburða fyrir lög­reglu og gekk með þeim flótta­leið­ina. Hann gaf einnig lífs­sýni sem reynd­ist vera það sama og í fjör­unni í Kjósinni. Síðar dró hann játn­ing­una til baka og sagð­ist hafa verið beittur þrýst­ingi af hendi lög­reglu við skýrslu­töku. Dóm­stólar lögðu ekki trúnað á frá­sögn Stefáns.

Stefán var dæmdur í tveggja ára fang­elsi í hér­aði árið 2004 og var dóm­ur­inn þyngdur um sex mán­uði ári síðar fyrir Hæsta­rétti sem kall­aði ránið „þaul­skipu­lagt og ófyr­ir­leitið.” Var þá lið­inn ára­tugur frá rán­inu.

Stefán Aðal­steinn var eini ein­stak­ling­ur­inn af þre­menn­ing­unum sem þurfti að svara til saka fyrir Skelj­ungs­ránið þar sem ekki tókst að sanna sök á annan þeirra og hinn þriðji svipti sig lífi fyrir skýrslu­töku.

Ráns­feng­ur­inn komst aldrei til skila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi