Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Karl Ágúst kveður Unni móður sína með undurfallegri kveðju:„Mikið hefur lífið verið gott við okkur“

Karl Ágúst kveður Unni móður sína með undurfallegri kveðju:„Mikið hefur lífið verið gott við okkur“

Karl Ágúst Úlfsson, leik­ari, leik­stjóri, rit­höf­undur, þýð­andi og leik­skáld, minn­ist móður sinnar, Unnar Karls­dóttir, sem lést í gær, 19. apríl, með ein­stak­lega fal­legri og hug­heilli færslu á Facebook í dag. Unnur var átt­ræð þegar hún féll frá.Færslan hefur hreyft við fjölda fólks sem hefur fært Karli Ágústi inni­leg­ustu sam­úðar­óskir.

Kveðja leik­ar­ans þjóð­þekkta til móður sinnar er svohljóð­andi:

Þar sem hún liggur í rúm­inu
og heyrir grát­staf­inn í kverkum elsta son­ar­ins
segir hún við mig svo varla heyr­ist:
Mikið hefur lífið verið gott við okkur.
Um leið óska ég þess að ég geti sjálfur
sagt eitt­hvað þessu líkt að leið­ar­lokum
af sömu sann­fær­ingu.

Við vitum það bæði að ófreskjan hefur sigrað.
Sú sem hún glímdi við árum saman
og hélt um tíma að væri dauð og grafin –
hún átti samt ennþá tromp uppi í erminni, ókindin,
og þegar ekk­ert okkar átti ills von
gerði hún nýja árás og kom okkur öllum í opna skjöldu.

Ég hlusta á þessi skelfi­legu sögu­lok:
Það er ekki hetjan mín sem á end­anum stendur uppi sem sig­ur­veg­ari,
heldur ófreskjan,
sú sem eng­inn hefur nokkru sinni haldið með svo vitað sé.

Og nóttin kemur
og ég halla mér aftur á bak í hæg­inda­stól við hlið hennar.
Ég veit ég á ekki eftir að sofna, heldur hlusta á hana anda.
Það hryglir í henni,
en ég veit að það er þetta sem ég þarf að heyra,
einmitt þetta, einmitt þessa nótt.
Eins og hún hlust­aði á mig anda
þegar ég var lít­ill drengur.

Þá heyri ég and­varp.
Það er svo hreint og svo ungt,
svo laust við sárs­auka,
svo laust við ásökun – minnir á engan hátt á dauða,
á allan hátt á líf.

Ég við hlið hennar og nóttin svört,
en myrkrið svo milt.
Og ég heyri að þetta er ekki and­varp gam­allar deyj­andi konu,
heldur ungrar stúlku.

Þetta er hún,
stúlkan sem fæddi mig sautján ára gömul.
Sú sem gaf mér líf,
gaf mér enda­lausan hlátur, söng,
allar sög­urnar,
ást­ina, faðm­lögin, koss­ana
þegar ég var lít­ill drengur.
Hún sem gaf mér líf,
gaf mér æsku og ung­lingsár,
var mér alltaf stoð og stytta.
Trúði alltaf á það sem mér datt í hug,
hversu frá­leitt sem það var.

Nóttin er svört, uns dags­birtan læð­ist að
fyrir utan spít­ala­glugg­ann.
Og um leið veit ég að þrátt fyrir allt hefur ófreskjan látið í minni pok­ann.
Hún heldur sig fagna sigri hér og nú
en bjartar og glað­værar minn­ingar
munu samt alltaf slá hana flata,
gera hana hlægi­lega,
hafa hana að háði og spotti.

Hér hvílum við saman hlið við hlið í nótt­inni
og and­vörp hennar svona full af létti, af fram­tíð –
ég veit að þessi unga stúlka á framundan líf
sem hún þakkar fyrir ára­tugum seinna af heilum hug.

Og ég á henni allt að þakka.
Ég og allir aðrir afkom­endur hennar sem muna –
og þrátt fyrir allt hefur hetjan mín sigrað.

Samt liggur hún hér,
þessi veik­burða lík­ami svo grátt leik­inn
að hann getur ekki meir.
Og ég halla mér að henni og segi
mamma, elsku mamma mín,
ég gæti aldrei talið upp allt það sem ég vildi þakka þér.
En takk fyrir lífið, fyrir hlát­ur­inn,
ást­ina, söng­inn og sög­urnar.
Nú er kom­inn tími til að ganga burt frá þessum bar­daga,
lyfta fótum frá jörðu og svífa út í frelsið.

Og hún svífur, hún flýgur. Hún fer,
hún mamma mín.
Og ég er lít­ill drengur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi