Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ógleymanleg útganga Sigmundar Davíðs: „Sannað að þetta var tilefnislaus og gróf árás“

Ógleymanleg útganga Sigmundar Davíðs: „Sannað að þetta var tilefnislaus og gróf árás“

Snemma á vor­mán­uðum árið 2016 var ell­efu milljón skjölum lekið frá lög­fræði­skrif­stof­unni Mossack Fonseca í Panama. Er talið að um stærsta gagna­leka sök­unnar sé að ræða. Um var að ræða skjöl, tölvu­pósta og stofnskjöl ríf­lega 214 þús­und aflands­fé­laga í 200 löndum og skatta­skjólum víða um heim. Meðal þeirra nafna sem fram komu í gögn­unum voru 72 núver­andi og fyrr­ver­andi þjóð­ar­leið­togar sem stofan hafi aðstoðað við skattaund­an­skot og pen­inga­þvætti.

Það voru þýsk stjórn­völd sem keyptu gagna­grunn Mossack Fonseca af tölvu­hökk­urum og það var ekki síst vegna krafna almenn­ings að íslensk stjórn­völd báðu um aðgengi að honum sem þeir og fengu. Má gera að því skóna að ein­hverjir hafi átt við verri næt­ur­svefn að stríða í kjöl­farið.

Pútín, Messi, Dorrit og Sigmundur

Í gögn­unum var að finna upp­lýs­ingar um 800 aflands­fé­lög sem tengd­ust 600 Íslend­ingum. Íslend­ing­arnar voru í „góðum“ félags­skap ein­stak­linga á borði við Vladimir Putin, for­seta Rúss­lands, Lionel Messi, knatt­spyrnu­goðs, Muammar Gaddafi sál­uga, for­seta Líbíu, og Michel Platini, fyrrum for­seta UEFA. Alls var í skjöl­unum af finna nöfn 72 fyrr­ver­andi og þáver­andi þjóð­ar­leið­toga.

Nöfnin sem um ræddi voru lands­mönnum vel kunnug en meðal þeirra voru við­skipta­mó­gull­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son og eig­in­kona hans Ingi­björg Pálma­dóttir, bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir í Bakkavör svo og Dorrit Moussaieff, fyrr­ver­andi for­seta­frú. Það kom ef til vill ekki mörgum á óvart að ein­stak­lingar umsvifa­miklir í við­skipta­líf­inu ættu miklar eignir erlendis og voru það ef til vill nöfn stjórn­mála­mann­ana og kvenna sem vöktu enn meiri athygli, nöfn ein­stak­linga sem höfðu það að starfi að gæta hags­muna almenn­ings.

Meðal nafna sem fram komu voru Júlíus Vífill Ingv­ars­son, Bjarni Bene­dikts­son, Ólöf Nordal og Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir. Stærsti skell­ur­inn var þó ef til upp­ljóstr­anir um fjár­hags­gjörn­inga Sigmunds Davíðs Gunn­laugs­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Þeir urðu betur þekktir undir nafn­inu Wintris málið.

Blaða­maður þýska dag­blaðs­ins SZ sagði að sér og kol­legum sínum hefði brugðið við að sjá umfang Íslend­inga í gögn­unum. „Ísland er nú ekki stórt land en við fundum hund­ruð aflands­fyr­ir­tækja sem voru í eigu Íslend­inga eða höfðu sterk tengsl við landið.“

Enn og aftur hafði Íslands sannað sig sem „stórasta land í heimi.“

Útgangan og framhaldið

Þann 3. apríl 2016 tók frétta­skýr­ing­ar­þátt­ur­inn Kastljós þátt Íslend­inga í Panama­skjöl­unum sér­stak­lega fyrir í sam­starfi við fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Reykja­vik Media, Alþjóða­sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna og þýska dag­blaðið SZ. Sænski blaða­mað­ur­inn Sven Bergman tók við­tal við Sigmund Davíð í ráð­herra­bú­staðnum og spurði hvort hann hefði haft tengsl við aflands­fé­lög. Sig­mundur Davíð kvað svo ekki vera, hann hefði jú starfað hjá íslenskum fyr­ir­tækjum sem hefðu haft slík tengsl en sagði af og frá að hann hefði nokkurn tíma leynt per­sónu­legum eigum í erlendu skatta­skjóli. Sven ítrek­aði spurn­ingu sína á kurt­eis­is­legan hátt og spurði sér­stak­lega út í félagið Wintris, sem skrá var á eig­in­konu Sig­mundar. Sigmundi Davíð var sýni­lega afar brugðið og átti bágt um svör. Bauðst Sven þá til að íslenskur spyrill, Jóhannes Kr. Krist­ins­son, tæki við kefl­inu.

Í kjöl­farið kom ógleym­an­legt augna­blik í sjón­varps­sögu Íslands þegar Sig­mundur stóð á fætur og rauk út með þeim orðum að hann gæfi Jóhann­esi við­tal síðar. Sven sagði síðar að starfs­fólk for­sæt­is­ráðu­neytis hefði haft sam­band og farið fram á að útganga ráð­herra yrði klippt burt. Það var ekki orðið við því.

Útganga Sig­mundar Davíð þegar hann var kraf­inn svara um aflands­fé­lagið Wintris.

Sig­mundur Davíð var fljótur að snúa vörn í sókn og bar á RÚV að um póli­tískar ofsóknir væri að ræða. Hann sagði frétta­stofu ekki birta jákvæðar fréttir af sér eða rík­iss­stjórn sinni auk þess sem fréttir væru teknar úr sam­hengi í þeim til­gangi að setja nei­kvætt yfir­bragð á þær. „Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að mér hefur þótt und­ar­legt að fylgj­ast með því með hvaða hætti RÚV hefur nálg­ast þetta mál. Umfjöll­unin öll hefur haft meira yfir­bragð þess að segja sögu eða hanna atburða­rás fremur en að greina frá stað­reyndum,“ birti Sig­mundur í blogg­færslu.

Mótmælin og afsögnin

Daginn eftir sýn­ingu þátt­ar­ins var efnt til mót­mæla við Alþing­is­húsið þar sem talið var að 22 þús­und manns hefðu mætt. Þau héld áfram í minna mæli næstu dag­ana þar til Sig­mundur Davíð gekk á fund for­seta og óskaði eftir þing­rofi sem for­seti hafn­aði. Svo fór þó að Sig­mundur Davíð sagði af sér og Sigurður Ingi Jóhanns­son  tók við kefl­inu. Þing­kosn­ingum var flýtt til haustins 2016.

Sig­mundur sagði síðar í kosn­inga­þætti á RÚV að þing­kosn­ing­arnar hefðu ekki verið haldnar snemma vegna Wintris-máls­ins. „[…] en það er ekki hægt að biðj­ast afsök­unar á að hafa orðið fyrir ein­hverju, sem ekki er hægt að kalla annað en ótrú­lega árás, sem síðar hefur sýnt sig og verið sannað að var til­efn­is­laus og ótrú­lega gróf.“

Jóhannes Kr. fékk aldrei við­talið sem honum hafði verið heitið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi