Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögmaður og hjúkka á bak við Stóra IKEA svindlið – Börnin tekin með í ránsferðirnar

Lögmaður og hjúkka á bak við Stóra IKEA svindlið – Börnin tekin með í ránsferðirnar

Það er morg­un­ljóst að Íslend­ingar eiga í afar nánu sam­bandi við IKEA, sænska stór­veldið, sem sér­hæfir sig í flat­pökk­uðum hús­gögnum sem ávallt virð­ast kalla á sex­kant til sam­setn­ingar. Það má reyndar taka það djúpt í árina að segja að ekki finn­ist það íslenska heim­ili þar sem ekki er að finna ein­hverjar vörur úr IKEA. Kjöt­boll­urnar ljúf­fengu, sem land­inn þyrp­ist í á vin­sælasta veit­inga­stað lands­ins í IKEA, lokka og laða heilu fjöl­skyld­urnar reglu­lega í Garða­bæ­inn.

IKEA komst í frétt­irnar árið 2013 og þá ekki fyrir kjö­boll­urnar víð­frægu. Í ljós kom að hópur fólks hafði stundað það að skipta um strik­a­merki á vörum þannig að strik­a­merki af ódýr­ari vörum voru sett yfir strik­a­merki á vörum sem voru dýr­ari.

Einbeittur brotavilji

Svika­hrapp­arnir greiddu síðan ódýr­ari vör­una og skil­uðu vör­unum með upp­runa­legu strik­a­merk­ing­unum og fengu end­ur­greitt í inn­eign­arnótum og gjafa­bréfum eins og þá var regla hjá IKEA. Talið var að svikin hefðu staðið allt frá 2007. Brota­vilj­inn virð­ist hafa verið ein­beittur því einn af þeim sem ákærður var ku hafa framið svind­lið 43 sinnum. Dæmi voru um að fé hafi verið svikið af versl­un­inni þrisvar sinnum sama dag­inn.

Meðal þeirra sem voru í hóp hinna ákærðu voru hérð­aðs­dóms­lög­maður, sem tal­inn er höf­uð­paur­inn, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækis í ferða­þjón­ustu og hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Myndbönd úr örygg­is­mynda­vél fyr­ir­tæk­is­ins sýndu að þau hefðu ítrekað tekið börn sín með í ferðir þar sem svikin voru stunduð.

SELMA stólarnir staðfestu svikin

Svindlið hefði getað haldið áfram um ókomna tíð ef ekki hefði verið fyrir glöggan starfs­mann í hús­gagna­deild sem kom auga á að fyr­ir­tækið hefði fjóra SELMA stóla á lager sem skilað hafði verið. Sem tald­ist sér­kenni­legt með til­liti til þess að eng­inn SELMA stóll hafði verið seldur. Örygg­is­deild fyr­ir­tæk­is­ins fór þegar á stjá og fékk með sér í lið örygg­is­sér­fræð­ing frá Danmörku með ærnum til­kostn­aði. Þar sem kraf­ist er kenni­tölu við skil á vörum var nokkuð ein­falt að fara yfir skila­sögu við­kom­andi sem var slándi. Fyrst var talið að um inn­an­hús­glæp væri að ræða og að starfs­maður hefði aðstoðað við þjófn­að­inn en fljót­lega kom í ljós hvaða aðferð hafði verið beitt. Hún var sjokker­andi ein­föld vegna rýmra skila­reglna IKEA en þeim hefur síðar verið breytt og er kraf­ist kassa­kvitt­unar við skil á vörum.

Þegar upp komst um ger­endur fylgd­ist öryggi­deild IKEA með ferðum fólks­ins í versl­un­inni í gegnum örygg­is­mynda­vélar auk þess sem starfs­fólk var beðið um að hafa auga með þeim. Eftir að það yfir­gaf versl­un­ina var farið í gegnum vörutaln­ing­ar­kerfi versl­un­ar­innar og grun­ur­inn um svik­inn stað­festur.

Dómur fellur

Áætlað var að tjón IKEA hafið hlaupið millj­ónum. Fyr­ir­tækið höfð­aði einka­mál gegn fimm manns vegna fjársvika og var gengið frá dómsátt sem fól í sér bóta­greiðslu til IKEA. Lög­reglan ákærði fjögur þeirra en felldi niður mál gegn einni konu. Sigurjón Jónsson og Arndís Arn­ars­dóttir ját­uðu sök og voru dæmd til tveggja mán­aða skil­orðs­bund­innar refs­ingar í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Stóra IKEA málið vakti mikla athygli land­ans og tók Ari Eldjárn ógleym­an­legan snún­ing á því í ára­mótaskaup­inu 2013 sem sjá má hér:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi