Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján lét sig hverfa af þingi – Hvar er hann nú?

Kristján lét sig hverfa af þingi – Hvar er hann nú?

Fyrrum sam­göngu­ráð­herr­ann Kristján L. Möller hætti á þingi árið 2016 og ákvað að snúa sér að öðru, þá ekki nema 62 ára gam­all.

Kristján sat á þingi fyrir Sam­fylk­ing­una á árunum 1999-2016. Hann gegndi emb­ætti sam­göngu­ráð­herra 2007-2009 og síðan sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra 2009-2010.

Sagði Kristján í við­tali við Lifðu núna að hann hefði verið í 17 ár á þingi, þar áður 12 ár í bæj­ar­stjórn Siglu­fjarðar og í félags­mála­stússi frá ung­lings­aldri og vildi nú snúa sér að öðru.

Eftir að Kristján sagði skilið við póli­tík­ina segir hann að fyr­ir­tæki hafi haft sam­band við sig og óskað eftir ráð­gjöf hans. „Ég vil nota orðið „mála­fylgja” sem er að fylgja málum eftir fyrir menn. Ég er svona „mála­fylgju­maður”, segir Kristján ánægður með starfs­titil sinn. Ferða­þjón­ustu­að­ilar á Kili höfðu til að mynda sam­band og ósk­uðu eftir aðstoð Krist­jáns við að vinna að hug­mynd þeirra við að leggja 75 kíló­metra raf­streng upp á Hvera­velli með við­komu hjá öllum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum á leið­inni.

Kristján er frá Siglu­firði og bjó hann þar ásamt fjöl­skyldu sinni, áður en hann flutti til Reykja­víkur. Hann er bróðir Ölmu Möller land­læknis. Stofnaði hann ásamt eig­in­konu sinni, Oddnýju Hervör Jóhanns­dóttur, íþrótta- og tísku­vöru­versl­un­ina vin­sælu Sigló­sport, sem eflaust allir sem til Siglu­fjarðar hafa komið kann­ast við.
Sigló­sport seldu þau hjónin er þau fluttu suður. Partur af Sigló­sport var verð­launa­gripa­fyr­ir­tækið, KLM verð­launa­gripir, en það fyr­ir­tæki er enn í dag í rekstri og eigu Krist­jáns og Oddnýjar.
„Oddný rak þetta ein á meðan ég var í póli­tík­inni og eftir að ég hætti þar hef ég fengið að koma inn og taka að mér verk­efni undir hennar stjórn. Það felst í að svara í síma og fara með vörur til við­skipta­vina eða á póst­húsið. Mér finnst ég oft vera kom­inn aftur í starf sem ég hafði með höndum þegar ég var 10-11 ára gam­all á Siglu­firði.“

Kristján og Oddný eiga þrjá syni og fjögur barna­börn og hefur Kristján einnig fengið það verk­efni að skutla smá­fólk­inu á æfingar, sem hann seg­ist njóta mjög.

Árið 2018 keyptu þau hjónin æsku­heim­ili Krist­jáns á Siglu­firði. Í kjöl­farið gerðu þau húsið alveg upp, ásamt sonum sínum og þeirra fjöl­skyldum. Nýtur stór­fjöl­skyldan þess nú að eiga sama­stað á Siglu­firði, sem þau eru dug­leg að heim­sækja.

Kristján og Oddný hafa alltaf verið mikið skíða­fólk, en í seinni tíð hefur golfið tekið yfir. „Ég segi nú stundum að það sé senni­lega dæmi um að maður er svo­lítið að eld­ast að mér þykir þægi­legra að klæða mig í golf­fötin og -skóna en skíða­gall­ann og -kloss­ana,” sagði Kristján hlæj­andi í sam­tali við Lifðu núna.

Augljóst er að fyrrum ráð­herr­ann hefur í nógu að snú­ast þrátt fyrir að hafa lagt póli­tík­ina til hliðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi