Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórhallur tekinn alblóðugur undir stýri – Morð, stórfelldar svikamyllur og fíkniefni

Þórhallur tekinn alblóðugur undir stýri – Morð, stórfelldar svikamyllur og fíkniefni

Sumarið 1991 varð maður að nafni Þór­hallur Ölver Gunn­laugs­son þjóð­þekktur fyrir metn­að­ar­fullar hug­myndir um stór­felldan útflutn­ing á íslensku vatni. Vatnið átti að selja til sól­ríkra og vatns­þyrstra staða á borð við Saudi-Arabíu, Kali­forníu, Flórída og Ástralíu. Síðar meir bætt­ust Kúveit og Kanada í hóp­inn. Almenn­ingur og ráða­menn voru spenntir og klöpp­uðu unga athafna­mann­inum lof í lófa fyrir fram­takið.

Fyr­ir­tæki Þórhalls hét Vatns­ber­inn. Nafn sem átti að fest­ast við Þórhall um ókomin ár.

Stórveldi í smíðum

Þór­hallur fór mik­inn í stofnun Vatns­ber­ans og lýsti yfir gríð­ar­legum áhuga erlendra aðila á vatns­söl­unni. Kostn­að­ur­inn við að koma á ævin­týr­inu á kopp­inn var rétt ríf­lega millj­arður króna á þáver­andi gengi en Þór­hallur kvað það ekki vanda­mál því kaup­and­inn, banda­ríska fyr­ir­tækið Undited Gulf Trading, hyggð­ist fjár­magna það á fullu gegn end­ur­greiðslu í formi vatns. United Gulf myndi í krafti sterkrar stöðu á mark­aði sjá um um dreif­ingu, sölu og mark­aðs­setn­ingu á vatn­inu.

Eina vanda­málið var að kom­ast í nógar vatns­birðir til að sinna allri eft­ir­spurn­inni. Það leyst­ist á haust­mán­uðum sama ár þegar Þór­hallur gerði samn­ing við Hafn­ar­fjarð­arbæ um aðgengi að vatni úr Kapellu­hrauni þar sem hefja átti bor­anir og veita því síðan í lok­uðum pípum til verk­smiðj­unnar en Vatns­ber­inn kom sér fyrir í 4500 fer­metra hús­næði við Hjalla­hraun. Þór­hallur sagði fjöl­miðlum á sínum tíma að hann stæði einnig í samn­ingum við skipa­fé­lög um flutn­ing á 420 fjöru­tíu fer­metra gámum af vatni á mán­uði og yrði kapp lagt á að halda störfum inn­an­lands.

Það virt­ist aug­ljóst að stór­veldi var í smíðum.

Svindlað frá Litla-Hrauni

Smám saman fór þó að bera skugga á nýjasta undra­barn Íslands í við­skipta­líf­inu. Í jan­úar 1992 kom í ljós mað­ur­inn að baki United Gulf veld­is­ins, Donald Rocco að nafni, var dæmdur trygg­inga­svindl­ari, grun­aður um umsvifa­mikla eit­ur­lyfja­sölu. Þá reynd­ust þeir 28 hlut­hafar, sem Þór­hallur hafði sagt vera að baki fyr­ir­tæk­inu, vera aðeins hann og kona hans. Þór­hallur topp­aði síðan svika­myll­una með því að hafa af rík­is­sjóði 38 millj­ónir árunum 1992-94 með því að fram­vísa verk­taka­skýrslum fyr­ir­tækis sem reynd­ist vera í hans eigin eigu. Fyr­ir­tækið átti að hafa staðið í mik­illi og dýrri verk­taka­vinnu fyrir Vatns­ber­ann á þessu tíma­bili þegar raunin var að engin var starf­semin. Sum virð­is­kauka­skatts­svikin framdi Þórólfur innan veggja Litla Hrauns þar sem hann sat af sér dóm vegna fjár­dráttar og skjala­fals. Aldrei fannst vottur af þessum pen­ingum.

Síðar fannst mörgum lyg­inni lík­ast hvað Þór­hallur komst upp með í ljósi þess að saka­fer­ill hans náði allt aftur til 1976 og hafði hann hlotið átta dóma fyrir skjala­fals, fjár­svik, fjár­drátt og brot á fíkni­efna­lög­gjöf.

Og saka­fer­ill Þórólfs var langt því frá búinn. Hann átti eftir að fremja sinn stærsta glæp.

Þyngsti dómur Íslandssögunnar

Í maí 1995 var Þórólfur dæmdur í þriggja ára fang­elsi og 20 millj­óna króna sekt fyrir virð­is­auka­brotið og var það þyngsti dómur sem fallið hafði í fjársvika­máli á Íslandi. Þegar hann átti að hefja afplánun í jan­úar 1996 var hann horf­inn. Í kjöl­farið lýsti Interpol eftir honum og fannst hann fljót­lega í Kaup­manna­höfn. Honum var stungið upp í vél og fram­seldur til Íslands.

Þórhalli var sleppt af Litla-Hrauni haustið 1998.

Í júlí 1999 var Agnar Wilhelm Agn­ars­son stung­inn til bana á heim­ili sínu við Leifs­götu í Reykja­vík. Þór­hallur var hand­tek­inn hina sömu nótt við ölv­un­arakstur í miðbæ Reykja­víkur. Hann var vart mæl­andi sökum ölv­unar auk þess að vera alblóð­ugur og gaf hann þá skýr­ingu að hann hefði lent í slags­málum. Á þeim tíma­punti vissi lög­regla ekki af morð­inu á Agnari. Þórhalli var sleppt úr haldi þegar hann hafði sofið úr sér.

Tengslin finnast

Við rann­sókn lög­reglu kom síðar í ljós að Agnar hafði verið bók­ari hjá Vatns­ber­anum og við­ur­kennt þátt sinn í svikum Þórhalls á hendur félags­mála­ráðu­neyti þegar Þór­hallur krafði Ábyrgð­ar­sjóð launa um orlofs­s­greiðlur sem fyrr­ver­andi starfs­maður Vatns­ber­ans. Hafði Agnar skrifað upp á falska yfir­lýs­ingu þess efnis. Agnar hlaut skil­orðs­bund­inn dóm.

Agnar ku hafa verið sér­lund­aður en list­fengur, flutti fyrstur manna inn gingseng bæti­efni og var með­limur í Ása­trú­ar­söfnðuin. Hann bjó einn í íbúð sinni og var tal­inn ein­fari. Vinur hans sagði síðar að við frá­fall móður sinnar nokkrum mán­uðum fyrr hefði hann orðið einn í heim­inum. Agnar hlotn­að­ist tölu­verður arfur frá Þýskald­andi við frá­fall þýskrar móður sinnar og tal­aði hann frjáls­lega um nýfeng­inn auð sinn. Töldu margir að um rán­morð hafi verið að ræða en ekki er vitað hvort Agnar geymdi fjár­mun­ina í íbúð sinni. Vinir hans full­yrtu aftur á móti að hann hefði verið með tvær millj­ónir í reiðufé í íbúð­inn auks mik­ils magn skart­gripa.

Og strauk til Kaupmannahafnar, aftur

Þegar lög­reglan beindi grun sínum að Þórhalli greip hann til gam­als ráðs og flúði land. Hann var enn á ný hand­tek­inn í Kaup­manna­höfn og sendur til Íslands fjórum dögum síðar til að svara fyrir morðið á Agnari. Taldist full­sannað að Þór­hallur hefði verið í íbúð­inn og banað Agnari, meða ann­ars með hjálp DNA gagna. Hlaut Þór­hallur 16 ára dóm. Hann ját­aði ekki ekki morðið. Aldrei kom í ljós hvort um rán­morð hefði verið að ræða.

Hann hélt þó áfram að rata í frétt­irnar. Árið 2002 krafð­ist hann þján­inga­bóta vegna árásar sem hafði orðið fyrir af hendi sam­fanga og votu honum veittar þær. Árið 2004 fékk tveggja og hálfs árs dóm fyrir skjala­fals þegar hann reyndi að svíkja fé út úr dán­ar­búi Agnars og árið 2009 fékk hann sekt­ar­greiðslur þegar amfetamín fannst í klefa hans á Litla-Hrauni. Árið 2011 strauk hann þegar hann var að leita lækn­is­hjálpar á Lands­spít­ala. Hlutu fang­els­is­yf­ir­völd á sig nokkra gagn­rýni fyrir slæ­lega gæslu á manni sem tald­ist afar hætt­ur­legur. Hann fannst fljót­lega á með­ferð­ar­heim­il­inu Hlað­gerð­ar­koti eftir að lög­regla lýsti eftir honum. Hann hlaut reynslu­lausn ári síðar. Gekk hann þá undir nafn­inu Þór Óliver Gunn­laugs­son.

Ætlaði á mannaveiðar

Þór­hallur/Þór var enn og aftur dæmdur árið 2014 og þá fyrir fíknefna­brot og hót­anir gegn lög­reglu. Hafði lög­regla verið kölluð að stöð Olís við Álfheima þar sem Þór­hallur var í mjög ann­ar­legu ástandi. Var hann settur í hand­járn til að tryggja öryggi hans og ann­arra og hóf þá fúk­yrða­flaum og kvaðst ætla á manna­veiðar. Sagðist hann myndu ná í skot­vopn, fara heim til lög­reglu­mann­ana og skjóta þá. Hann end­ur­tók hót­anir sínar ítrekað.

Árið 2020 sagði Gerður Kristný rit­höf­undur að Þór­hallur hefði játað morðið fyrir henni sum­arið 1999. Hún var þá rit­stjóri Mannlífs og hringdi Þór­hallur í hana og bað um spjall. „Svo skrif­aði hann mig á gestal­ist­ann. Ég fór inn á Litla Hraun, þetta var að sumri til árið 1999, ef ég man rétt. Og ég hitti hann bara sem venju­leg­an við­mæl­anda. Smyglaði inn dikta­fón­in­um og tók við hann við­tal. Hann sagði mér hvernig þetta hefði borið við. Hann myrti vin sinn eft­ir ansi mikið fylle­rí og dóp­neyslu. Síðan kom við­talið út um það bil tveim­ur vik­um síðar og lög­regl­an fékk að lesa játn­ing­una í blað­inu,“ sagði Gerður Kristný í við­talið við mbl.

Hún seg­ir að í heim­sókn­um sín­um á Litla Hraun eft­ir þetta at­vik hafi hún alltaf verið í fylgd með fanga­verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi