Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svavar Eysteinn glímir við ólæknandi krabbamein: „Ég hugsa mjög lítið um dauðann“

Svavar Eysteinn glímir við ólæknandi krabbamein: „Ég hugsa mjög lítið um dauðann“

„Svo í lok árs 2018 ákváðum við að hvíla okkur á þess­ari keyrslu og búa einn vetur í Reykja­vík. Í miðjum flutn­ingum greind­ist ég með krabba­mein í vél­inda,“ segir tón­list­ar­mað­ur­inn Svavar Pétur Eysteins­son, þekktur sem Prins Póló, sem glímir við ólækn­andi krabba­mein. Veikindi Svavars hafa verið á margra vit­orði en fjöl­miðlar hafa eðli­lega gefið honum svig­rúm til að fást við þau án þess að opin­ber umfjöllun yrði.

Svavar er í for­síðu­við­tali við Morg­un­blaðið þar sem hann í fyrsta sinn talar um sjúk­dóm sinn. Hann segir að þetta hafi byrjað með því að hann átti í erf­ið­leikum með að kyngja og fór þá í maga­speglun á sjúkra­hús­inu á Norð­firði.
„Ég fæ strax að vita að ég sé með mein í vél­ind­anu,“ segir Svavar.
Meinið reynd­ist ekki vera skurð­tækt.

„Ég fór í lyfja­með­ferð og hef síðan verið í stöð­ugum lyfja­með­ferðum með hléum,“ segir Svavar við Morg­un­blaðið
Hann lýsir áfall­inu við frétt­irnar.
„Jú, væg­ast sagt. Þetta var sam­bland af því að fá algjört tauga­á­fall og því að hugsa; já auð­vitað, hvað annað. Þegar maður lifir góðu lífi án nokk­urra áfalla og hefur fengið að láta alla sína drauma ræt­ast hugsar maður að það hljóti að koma að því að það ger­ist eitt­hvað. Þetta getur ekki gengið svona enda­laust. Ég er bara búinn að vera of hepp­inn,“ segir Svavar.

„Fyrsta árið fór líka í það að venj­ast þessu og vera hræddur. Það var mikið myrkur þetta fyrsta ár. Ég átti það til að stara bara á vegg­inn, algjör­lega miður mín,“ segir Svavar sem talar í fyrsta sinn um veik­indin.
„Mér er meira sama um sjálfan mig en það er verra að leggja það á aðra ef maður skyldi þurfa að fara. Ég nenni ekki alltaf að tala um þetta; ég hef ekki þörf fyrir það. Ég nenni ekki að ræða krabba­meinið í röð­inni í Bónus“.

Krabba­meinið fær ekki að vera í fyrsta sæti í lífi Svavars.

„Það eina sem háir mér eru í raun eft­ir­köst af lyfja­með­ferðum, sem er dofi í höndum og fótum. Það getur líka háð mér í að spila á hljóð­færi. En ég vinn bara með þetta; ég geri allt sem ég get og get næstum allt sem ég gat. Ég er slappur dag­ana eftir lyfja­með­ferð og þá bara stimpla ég mig út,“ segir hann og seg­ist vera í með­ferð núna á tveggja vikna fresti en það sé breyti­legt hversu ört hann þurfi á með­ferð að halda.
„Það fund­ust mein­vörp í lungum og lifur en það er allur gangur á því hvort þau séu sýni­leg.“

Svavar seg­ist ekki hugsa mikið um veik­indin. Tvö og hálft ár eru síðan  hann greind­ist með krabbann.
„Ég hugsa um veik­indin en er ekki hel­tek­inn af þeim. Það er bara einn dagur í einu, alveg
sama hvort við erum veik eða ekki,“ segir hann og bætir við hugsi: „Ég hefði ekki viljað ganga í gegnum þetta án þess að vera edrú. Maður var búinn að fá ein­hver tól í gegnum edrú­göng­una sem nýt­ast; svo maður fari ekki í stjórn­lausan ótta og gremju.“

„Ég hugsa mjög lítið um dauð­ann. Ég hugsa mest um hann út frá öðru fólki, eins og börn­unum. Mér er meira sama um sjálfan mig en það er verra að leggja það á aðra ef maður skyldi þurfa að fara. Þegar að því kemur verður maður að vera búinn að und­ir­búa það vel, en það er hluti af þessu lífi að hverfa úr því …,“ segir Svavar í ítar­legu við­tali við Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi