Hjörleifur Hallgríms Herbertsson, stofnandi Vikudags og ritstjóri um langt skeið, sendir Loga Einarssyni, formanni Samfylkingarinnar, hótun á Facebook um að ef hann láti ekki Samherja í friði þá muni flokkur hans hafa verra af. Sumum þykir þetta sýna það tak sem Samherji hefur yfir Akureyri.
Ummælin féllu í athugasemd við pistil Loga, sem hann birti á Facebook í gær. Þar gagnrýndi Logi Samherja af hörku og sagði hingað og ekki lengra. Logi segir það alvarlega þróun að hér myndist nokkurs konar nútíma lénskerfi, þar sem fámennur hópur ræður öllu.

„Þegar ég var að alast upp á Akureyri fyrir nokkrum áratugum áttaði maður sig vissulega á að einstaka fjölskyldur voru efnaðri en restin af bæjarbúum. Þetta birtist aðallega í einbýlishúsi, Volvo og lítilli auka bifreið. Jú svo fóru þessar fjölskyldur stundum í utanlandsferðir sem var frekar sjaldgæft þá. […] Síðan þá hefur gríðarlegur auður safnast á enn færri hendur og örfáir einstaklingar ríkari en hægt er að átta sig á. Ein ástæðan er aðgangur þeirra að sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Hluti þessa auðs hefur síðan leitað í aðrar greinar og sömu aðilar hreiðrað um sig í orkugeiranum, trygginga- og bankastarfsemi, matvörukeðjum, flutningastarfsemi, húsnæðismarkaði og jafnvel fjölmiðlum.“
Stuttu eftir birtingu skrifar Hjörleifur athugasemd. „Farðu nú varlega Logi og hverjum ert þú nú að þjóna er það e.t.v. fréttamaðurinn, sem fer að nokkru leiti með lygar og óhróður? Þú finnur líka til með fátæka fólkinu í Namibíu en gæti ekki verið að það hefði það nú sæmilegt ef tugthúslimirnir og fyrrum ráðherrrarnir í Namibíu hefðu ekki stungið peningunum í sína vasa, sem Samherji greiddi fyrir veiðiheimildirnar,“ skrifar Hjörleifur.
Hann hótar því að með þessu hafi hann misst allmörg atkvæði á Norðurlandi. „Þú virðist kominn í hóp óvandaðra fjölmiðlamanna, sem koma þessir hlutir akkúrat ekkert við því ef Samherji hefur lent í einhverju misjöfnu veit ég ekki annað en það sé íslenskra dómstóla að fjalla um þau mál en ekki þín og annarrra lélegra karaktera, sem leint og ljóst eruð að reyna að ófrægja eitt stærsta útgerðafyrirtæki landsins án þess að hafa efni á því. Þvílíkur mannskapur. Þú skaust rækilega yfir strikið núna Logi í aðdraganda kosninga og hefur vafalaust náð þér í nokkur atkvæði hér fyrir norðan eða hitt þá heldur þú ættir frekar að skammast þín því engin er sekur fyrr en sekt er sönnuð. Hvað þykist þú eiginlega vera?,“ spyr Hjörleifur en fáir virðast taka undir með honum.
Annar blaðamaður að norðan, Björn Þorláksson, segir þetta hótun og kunnulega taktík. „Það er meira en að segja það að þora að skrifa svona. Ekki síst þar sem rætur Loga liggja í hreiðri samherjamanna, hinu bjarta norðri. Ritstjórinn fyrrverandi, Hjörleifur, hótar honum atkvæðamissi í kjördæminu vegna skrifanna. Það er kunnugleg taktík. Það sem ég get gert sem kjósandi í NA-kjördæmi er að kjósa Loga og sýna Hjörleifi að þótt formaðurinn kunni að missa einhver atkvæði fyrir það eitt að segja meiningu sína, gæti líka verið að hann myndi laða að sér enn fleiri atkvæði með hugrekkinu sem þarf að vera fyrir hendi að segja slíkan hlut upphátt sem hér hefur verið sagður. Því til hvers er lýðræðið – til hvers væru kosningarnar ef ægiöflin hefðu allt í hendi sér – líka stjórn á óttanum?“































Athugasemdir