Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Handtekinn með 2000 e-pillur í stuttbuxum og hlýrabol – „Þú ert að tala við saklausan mann“

Handtekinn með 2000 e-pillur í stuttbuxum og hlýrabol – „Þú ert að tala við saklausan mann“

Þann fyrsta sept­em­ber árið 1998 var 26 ára gam­all Breti að nafni Kio Alex­ander Ayobam­bele Briggs hand­tek­inn við komu til Íslands frá Spáni. Briggs var ekki klyfj­aður af far­angri og var aðeins með eina íþrótta­tösku. Innihald tösk­unnar vakti athygli lög­reglu; ríf­lega 2000 e-pillur auk miða með grein­ar­góðum teikn­ingum af flug­vell­inum þar sem merkt hafði verið við lög­gæðslu­svæði. Briggs var umsvifa­laust settur í gæslu­varð­hald.

Stuttbuxur og hlýrabolir

Í ljós kom að dag­inn áður hafði íslenskur maður, Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, haft sam­band við lög­reglu og gefið nákvæma lýs­ingu á Briggs og fíkni­efn­unum. Hann hafði sjálfur séð þeim pakkað og meira að segja keyrt Briggs á flug­völl­inn og keypt handa honum far­mið­ann. Gegn upp­lýs­ing­unum von­aðst Guð­mundur til að fá íviln­anir í hinum ýmsu fíkni­efna­málum sem í gangi voru gegn honum hér á landi. Lög­reglan hét engu slíku en bjó sig snar­lega undir að taka á móti Briggs.

Briggs þver­neit­aði sök og sagði eina til­gang Íslands­ferð­ar­innar vera að kom­ast tíma­bundið á tog­ara sem hann hafði heyrt að gæfi vel af sér. Lögregla átti nokkuð bágt með að trúa frá­sögn hans þar sem Briggs hafði ekk­ert fé sér til uppi­halds í meintri skips­pláss­leit auk þess sem fatn­aður hans sam­an­stóð af stutt­buxum og hlýra­bolum sem seint þykja hent­ugur fatn­aður á tog­ara. Né í íslenska haustinu ef út í það er farið.

Briggs var með skýr­ingar á hreinu, honum hafði verið tjáð að launahá pláss á tog­ara lægju fyrir eins og mý á mykju­skán á Íslandi. Hann þyrfti ein­fald­lega að fara niður á höfn og málið væri leyst. Skortinn á fatn­aði útskýrði hann á þann hátt að hann hefði allt eins átt von á því að líka ekki vinnan og þurfa því ekki á hlífð­ar­fatn­aði að halda. Ef hann yrði „sjó­veikur eða þess­háttar”.

Treysti á Jesú

Aðspurður um fíkni­efnin í far­angrinum full­yrti Briggs að þeim hefði verið komið fyrir í far­angri hans gegn vilja og vit­neskju. Hélt hann því fram að Guð­mundur hefði laumað bæði töfl­unum og teikn­ing­unni í tösku hans  í flug­stöð­inni á Benidorm þegar hann „leit af tösk­unni í tíu mín­útur”.

Flest allt við málið kom ein­kenni­lega fyrir sjónir, ekki síst að Guð­mundur, sem Briggs sagði eig­anda fíkni­efn­anna, skyldi hafa sagt til hans. Lögregla taldi aftur á móti af og frá að Briggs hefði ekki vitað af fíkni­efn­unum auk þess sem frá­sögn hans var síbreyti­leg og mót­sagn­ar­kennd. Í des­em­ber sama ár var hann ákærður fyrir inn­flutn­ing efn­anna og var dæmdur í sjö ára fang­elsi fyrir Hér­aðs­dómi. Var um að ræða þyngsta dóm Íslands­sög­unnar fyrir fíknefna­inn­flutn­ing.

Í við­tali við DV eftir dóm­inn sagð­ist Briggs treysta þess að Jesús sæi um hann. „Mig lang­aði til að öskra. Mér leið hræði­lega. Mér hefur verið sagt að það bæti ekk­ert og það geri hlut­ina bara verri að sýna dóm­ar­anum til­fin­inngar sínar. Ég vil það heldur ekki. Það sem ég get líka sagt þér er að þú ert að tala við sak­lausan mann. Ég bjóst við sýknu­dómi”.

Hann þvertók fyrir alla fíkni­efna­neyslu og kvaðst ekk­ert við slíkt kann­ast.

Briggs áfrýj­aði dómnum og var sleppt úr gæslu­varða­haldi enda höfðu íslensk yfir­völd lagt sinn þunga hramm á vega­bréf hans. Voru þá lið­inir átta mán­uður frá kom­unni örlaga­ríku til Íslands. Hann var um tíma á Akureyri og lýsti yfir áhuga á að kom­ast á tog­ara þaðan en guggn­aði á því. Enda mögu­leiki á að verða sjó­veikur eða þess háttar.

Briggs fór til Reykja­víkur.

Fjöl­miðla­stjarna stígur fram

„Kio Briggs gerð­ist nú heil­mikil fjöl­miðla­stjarna á Íslandi í nokkrar vikur. Ótal við­töl voru tekin við hann og vöktu þau mikla athygli. Maðurinn var enda fjall­mynd­ar­legur og til­finn­inga­ríkur með ágætum og ekki laust við að ýmsir hrærð­ust til með­aumk­unar þegar hann lýsti því fjálg­lega hve kramið hjarta hans væri yfir því að hafa setið svo lengi sak­laus í fang­elsi,“ segir í bók­inni Ísland í ald­anna rás.

Kio Briggs fagnað frels­inu af ákafa.

Frásögn Briggs snerti margan sem fundu til með unga mann­inum sem hafði sak­laus og fullur trausts, brugðið sér í lands­ins í vinnu­leit til þess eins að lenda í fang­elsi. Aðrir lögðu minni trúnað á frá­sögn hans og má segja að þjóðin hafi skipst í tvær fylk­ingar eftir áliti sínu á sekt eða sak­leysi Kio Briggs. Hann var orð­hagur og leidd­ist seint athyglin. „Ég tek ekk­ert í líf­inu sem sjálf­sagðan hlut eftir þessa lífs­reynslu. Hvert skref sem ég tek er mér mik­ils virði og á hverju kvöldi geng ég um höfn­ina og anda að mér sjáv­ar­loft­inu. Skoða skipin og þau eru galdri lík­ust eftir að ég kom út. Allar píurnar eru ótrú­lega fal­legar í mínum augum, fólkið vina­legt og allur matur smakk­ast dásam­lega. Ég meina, það er ekk­ert til neitt verra en að lifa í búri.“

Dómur fellur

Málinu var vísað aftur til hér­aðs sem sneri við fyrri dóm og sýkn­aði Briggs af ákæru um fíkni­efna­inn­flutn­ing og var nið­ur­staðan stað­fest fyrir Hæsta­rétti. Ekki þótti full­sannað að hann hefði vitað af efn­unum. Briggs pakk­aði niður stutt­bux­unum og bol­unum og hélt af landi brott. Hann náði þó að lýsa yfir að hann myndi fara fram á 27 millj­ónir í skaða­bætur frá íslenska rík­inu fyrir dvöl­ina í hegn­inga­hús­inu.

Varla hafði blekið þornað á sýknu­dóm­inum þegar fréttir bár­ust af því að Kio Briggs hefði verið hand­tek­inn í Danmörku. Fyrir að hafa 1000 e-pillur í fórum sínum. Danir virt­ust ónæmir fyrir töfrum Briggs, sendu hann með hraði í árs fang­elsi og fimm ára komu­bann eftir það sem gilti á öllum Norð­ur­lönd­unum.

Myndir sem breska lög­reglan dreifði af Kio Briggs þegar hún lýsti eftir honum í fyrra.

Nokkur fjöldi Íslend­inga kvaðst síðar hafa séð Briggs við dyra­vörslu á næt­ur­klúbbum Spán­ar­stranda þaðan sem fréttir bár­ust að hann hefði ítrekað kom­ist í kast við lögin. Í fyrra lýsti breska lög­reglan eftir honum þegar hann mætti ekki til afplán­unar þar­lendis.

Guð­mundur Ingi Þór­odds­son sat alls í 16 ár í fang­elsi fyrir fíkni­efna­brot en sneri við blað­inu og skap­aði sér nafn sem for­maður Afstöðu, félags fanga.

Kio Briggs fékk aldrei 27 millj­ón­irnar sem hann hafði von­ast eftir. Það kom engum á óvart.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi