Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorsteinn Bachmann syrgir einstakan vin sinn Árna – SÖFNUN – „Ég sakna hans svo hræðilega“

Þorsteinn Bachmann syrgir einstakan vin sinn Árna – SÖFNUN – „Ég sakna hans svo hræðilega“

Þor­steinn Bachmann leik­ari segir áfallið hroða­legt við að missa einn af sínum bestu vinum, Árna Ólaf Ásgeirs­son leik­stjóra. Hann lést 49 ára að aldri í kjöl­far alvar­legra veik­inda. Um leið og sorgin sé mikil hvetur Þor­steinn lands­menn til að leggja fjöl­skyld­unni lið á erf­iðum tímum.

Árni útskrif­að­ist sem kvik­mynda­leik­stjóri frá hinum virta kvik­mynda­skóla Lodz í Póllandi. Árni leik­stýrði kvik­mynd­unum á borð við Blóðbönd, Brim og Lói, þú flýgur aldrei einn, og hlaut hann fjölda verð­launa og til­nefn­ingar á hátíðum víða um heim fyrir verk sín. Hann lætur eftir sig eig­in­konu og ungan son.

Þor­steinn segir svo marga í sárum vegna frá­falls Árna og fer um vin sinn fögrum orðum í minn­inga­færslu á Facebook. Svona er færsla leik­ar­ans.

„Vinur minn Árni Óli er dáinn. Hrifinn burt í blóma lífs­ins. Hann skilur eftir sig eig­in­konu og ungan son, móður, bróður, ætt­ingja og vini í sárum.

Dauði Árna var svip­legur. Ég hafði hitt hann í Bónus í byrjun árs og við höfðum ákveðið að láta nú loks verða af því og fá okkur kaffi. Þetta hafði oft verið við­kvæðið á seinni árum eftir að við stofn­uðum okkar eigin fjöl­skyldur en nú vorum við stað­ráðnir. Árni hringir svo í mig snemma í febr­úar til að festa dag­inn. Ég er í leik­hús­inu að æfa og segi honum að næsta vika sé betri því þá sé ég kom­inn á kvöl­dæf­ingar. Næsta vika rennur upp og ég sendi Árna skila­boð. Ekkert svar. Svo kemur svarið. Árni er kom­inn með krabba­mein og fáeinum vikum síðar er hann dáinn. Úff. LÍfið er núna. Og við sem vorum að fara að skipu­leggja fram­tíð­ina…..

Áfallið er hroða­lega mikið. Við höfum misst einn okkar besta mann. Ísland hefur misst mikið. Heim­ur­inn allur. Svona menn eins og Árni eru sko ekki á hverju strái.

Ármi var því­líkur hug­sjóna­maður, svo næmur lista­maður og svo stór­kost­legur mann­vinur að það náði langt út fyrir allt sem getur talist normalt. Hann vildi breyta heim­inum og hann breytti honum. Hann var „all in“ í öllu sem hann gerði. Ég sakna hans svo hræði­lega og á svo bágt með að hætta að gráta örlög hans.

Ég á Árna svo ótal margt að þakka. Árni kenndi mér að láta vaða. Do or die. Láta verkin tala. „Steini minn ef við getum ekki gert bíó­mynd­irnar sem okkur dreymir um þá skulum við að minnsta kosti lifa þær“. Við Árni vorum góðir vinir. Trún­að­ar­vinir og félagar í list­inni. Og við létum oft vaða. Eitt af því fyrsta sem við gerðum saman var að halda nám­skeið í kvik­mynda­leik löngu áður en við vissum sjálfir hvernig ætti að kenna slikt. Við vissum bara hvað við vildum ekki. Svo það var um að gera að gera bara til­raunir og reyna að finna útúr þessu. Learn by doing. Viljinn fyrir verkið. Það var mottóið. Láta verkin tala. Við vorum báðir dramat­ískir í eðli okkur og allt sem við gerðum varð ein­hvern veg­inn epískt. Ég heim­sótti Árna til Póllands um miðjan tíunda ára­tug­inn þar sem hann hírð­ist inni á heima­vist í ein­hverjum virtasta kvik­mynda­skóla heims en skól­inn hafði þá látið tals­vert á sjá. Ég man að hárið stóð stíft af skít eftir sturt­una þarna en atmosið var sterkt. Listin lá í loft­inu og þján­ingin hvíldi í jörðu og í brjóstum mann­anna. Árni var nýbyrj­aður í nám­inu sem nota bene fór fram á pólsku en pólsk­una þurfti Árni að læra frá grunni. Hann hafði þegar þarna var komið við sögu lfað á kartoni af íslenskum Tópas í heilan mánuð vegna þess að náms­lánin stóðu eitt­hvað á sér heima á Íslandi og ég kom fær­andi hendi með harð­fisk og brenni­vín svo dreng­ur­inn fengi nú ein­hverja nær­ingu í kropp­inn. Viku seinna sendi Árni mig heim í gamlli Lödu áleiðis til Varsjár með flösku af Zubruwka, hund­rað doll­ara seðil fyrir far­inu og litla Say it in Polish vasa­bók í fartesk­inu svo ég næði nú að bjarga mér á 3 tíma farða­lagi í gegnum pólsk sveita­héruð með stór­vax­inn mann með þykkt yfir­skegg og der­húfu við stýrið. Þegar heim var komið keypti ég pólskan ling­vafón og horfði 3 sinnum í rikk á Schindlers list og grét. Svona vorum við dramat­ískir og epískir.

Seinna sagði Árni mér ein­hverja stór­kost­leg­ustu ást­ar­sögu sem ég hafði á ævinni heyrt en þá hafði hann hitt Mörtu. Hún flutti að end­ingu til Íslands og þau eign­uð­ust sonin Iwo. Ég hafði þá fyrir löngu gef­ist upp á pólska ling­vafón­inum en hafði lært nóg til að slá um mig á pólku í brúð­kaup­inu þeirra sem að sjálf­sögðu var haldið í félags­mið­stöð­inni Kram­hús­inu sem rekið var af móður Árna og var ávallt eins­konar skálka­skjól lista­manna í Reykja­vík. Og auð­vitað voru hljóð­færa­leik­arar og diskar mölv­aðir og gleði­grátur fram undir morgun.

Það var líka mikið gæfu­spor fyrir mig þegar ég réði mig sem runner í fyrstu bíó­mynd Árna. Blöðbönd. Það verk­efni mark­aði vatna­skil í mínu lífi. Ég hafði verið leik­hús­stjóri á Akureyri en missti áhug­ann á því, lang­aði í eitt­hvert fútt í líf­inu og hringdi í Árna. Árni sagð­ist gjarnan vilja hafa mig með. Það var nóg fyrir mig. Það var búið að ráða í allar stöður í mynd­inni en ég hringdi í fram­leið­and­ann og spurði hvort það vant­aði ekki ein­hvern til að hella upp á kaffi. Ég keypti svo nýja striga­skó dag­inn eftir, flutti suður og „hljóp“ fyrir Árna í rúman mánuð.

Og nú langar mig enn á ný að „hlaupa“ fyrir Árna. Fjöl­skyldan hans á bágt núna og ég veit að allur stuðn­ingur er vel þeg­inn. Dauðinn gerði ekki boð á undan sér. Ég biðla til allra sem geta látið eitt­hvað af hendi rakna að gera það. Látum verkin tala í minn­ingu manns sem brann fyrir mennskt sam­fé­lag og bræðra­lag manna og kvenna hér á jörð.“

Þeir sem vilja hjálpa fjöl­skyldu Árna heit­ins geta gert það á eft­ir­far­andi reikn­ing:

0372-13-112797
Kennitala: 120868-5789

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi