Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innbrotsþjófar sökuðu Jarþrúði um nasisma: „Okkur grunar að þetta sé einhver úr Mosó“

Innbrotsþjófar sökuðu Jarþrúði um nasisma: „Okkur grunar að þetta sé einhver úr Mosó“

„Þekkir þú þessa skrift eða fót­spor? Það var mjög sár og sorg­leg aðkoman þegar við komum upp í sum­ar­húsið okkar upp við Varmá í gær.Það var búið að brjót­ast inn og brjóta 13 rúður og fram­hlið gróð­ur­húss­ins. Það var búið að kveikja á eld­spítum og kasta á gólfið út um allt hús. Það var líka búið að tæma slökkvi­tæki og sprauta um alla stof­una og gang­inn þannig að allt gólf og hús­gögn voru þakin hvítu dufti. Dreifa olíu og mat um eld­húsið, opna pakkn­ingar og sulla með það.“

Þetta skrifar Jar­þrúður Gian Tara Karls­dóttir en hún leitar eftir aðstoð íbúa í Mos­fellsbæ á Facebook við að upp­lýsa hver braust inn í bústað hennar. Ódám­arnir skildu meðal ann­ars eftir skila­boð sem sjá má hér fyrir ofan. Þar er hún sökuð um nas­isma en mál­far virð­ist benda til þess að íslensk ung­menni hafi skrifað skila­boðin.

„Það var líka búið að brjóta nokkra gamla muni sem hafa verið í fjöl­skyldu kærasta míns lengi og taka aðra hluti með sér. Hluti sem eru ekki verð­mætir en hafa fyrst og fremst per­sónu­lega merk­ingu. Það er líka mjög leið­in­leg og erfið vinna að ná blettum eftir slökkvi­tækið úr sóf­unum, teppum og gömlu timbri. Eins er líka erfitt að hreinsa upp allt þetta magn af gler­brotum sem hafði líka skorið gat á terpent­ínu og grill­vökva flösku í kjall­ar­anum. Þetta lítur út fyrir að hafa verið ung­lingar eða ungt fólk að verki,“ segir Jar­þrúður.

Hún seg­ist vilja ná tali af þeim sem þetta gerðu, og þá ekki til að kæra til lög­reglu. „Okkur langar mjög mikið til að hafa uppi á þeim sem gerðu þetta, ekki til að kæra heldur til að hjálpa þeim að læra hvaða afleið­ingar svona hlutir hafa. Það er svo slæmt fyrir ungt fólk að ná að gera svona hluti án þess að þau finni fyrir og sjái afleið­ing­arnar sem svona hefur. Það sem tekur enga stund að skemma tekur marga daga að hreinsa og laga, ef það er það er þá hægt. Þetta hefur líka áhrif á örygg­is­til­finn­ingu okkar í hús­inu,“ segir Jar­þrúður.

Henni grunar að ung­lingar úr Mos­fellsbæ beri ábyrgð á þessu. „Ef þau hefðu óvart kveikt í við leik­inn með eld­spít­urnar í gömlu timb­ur­húsi í þá hefði þetta getað endað sem alvar­legur glæpur. Okkur grunar að þetta sé ein­hver úr Mosó þar sem þessi staður er ekki vel aðgengi­legur úr bíl, það þarf að labba í að minnsta kosti korter til að koma að hús­inu. Staf­setn­inga­vill­urnar í ensk­unni benda líka til að þetta séu íslend­ingar. Ég veit að mínum krökkum finnst mjög gaman að tala íslensku í leik. Þið megið endi­lega senda mér skila­boð með ábend­ingum svo við getum haft uppi á þeim sem gerðu þetta,“ skrifar Jar­þrúður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi