Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnar segir sjálftöku og spillingu grassera í lífeyrissjóðunum

Ragnar segir sjálftöku og spillingu grassera í lífeyrissjóðunum
Ragnar Þór Ing­ólfs­son

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, spáir því að það sem Kveikur fjall­aði um í gær sé ekk­ert eins­dæmi. Kveikur greindi frá því þjón­ustu­að­ili líf­eyr­i­s­jóða hafi rukkað sjóðin um vinnu sem efa­semdir eru um að stand­ist lög. Því sé rekstur á einu af tölvu­kerfum sjóð­ana nú í upp­námi.

Ragnar segir þetta ein­fald­lega sjálftöku. „Það var dap­ur­legt að horfa á Kveik í gær­kvöldi þar sem flett var ofan af sjálftöku félags sem hefur um áraraðir tek­ist að draga hund­ruðir millj­óna í vasa eig­enda sinna fyrir þjón­ustu við líf­eyr­is­sjóð­ina. Það skal tekið fram að LIVE og VR eru með sitt eigið skrán­ing­ar­kerfi og því ekki hluti af þessu til­tekna svindli. En hugsið ykkur að ef eitt fyr­ir­tæki sem starfar svo nálægt sjóð­unum og sér­fræð­ingum þeirra kemst upp með svona lagað óáreitt og eft­ir­lits­laust, hvað með allt hitt?,“ spyr Ragnar.

Hann spáir því að þetta sé svona víða. „Hvernig er eft­ir­liti með fjár­fest­ingum háttað þegar nýráðin fram­kvæmda­stjóri stétt­ar­fé­lags fer að gera athuga­semdir við háan kostnað og flettir svo ofan af svindli sem hefur við­geng­ist um áraraðir ofan í háls­máli sjóð­anna? Rekstr­ar­kostn­aður líf­eyr­is­sjóða eru tugir millj­arðar á ári hverju og þar starfa á annað hund­rað mjög vel laun­aðra stjórn­enda sem bera ábyrgð á þessu máli og yfir 6.000 millj­arða eignum sjóð­anna. Það er von að maður spyrji hvar fleiri leka og svik­sam­leg athæfi séu að finna innan líf­eyr­is­sjóð­anna,“ segir Ragnar.

Hann segir grun­sam­lega sjald­gæft að sjóð­irnir leiti réttar síns. „Mín reynsla af þeim spill­ing­ar­málum sem komið hafa upp síð­ustu árin eru að sjóð­irnir leggja meira kapp á að þagga niður og fela en að rann­saka og sækja rétt sinn fyrir hönd eig­enda sinna. Með öðrum orðum þá vegur orð­spor stjórn­enda meira en raun­veru­legir hags­munir sjóð­fé­laga. Þetta eru stór orð en auð­velt er að rök­styðja með spurn­ingu: Hversu oft hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir farið í mál, eða leitað réttar síns, til að sækja bætur ef grunur er um svik­sam­legt athæfi gagn­vart þeim? Ég held að flestir viti svarið.  Þó er hægt að nefna hrun­málin, alþjóð­leg end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæki hrun­fyr­ir­tækj­anna sem kvitt­uðu uppá að allt væri í lagi, ólög­legt gjald­miðla­brask líf­eyr­is­sjóð­anna fyrir hrun, Bakka­var­ar­málið 2015 þar sem sjóð­irnir töp­uðu að lág­marki 50 til 60 millj­örðum, kís­il­verin, Lind­ar­vatn og svo mætti lengi lengi telja.“

Hann segir það dæmi­gert að menn vakni fyrst þegar fjöl­miðlar eru komnir í málið. „Af nægu er að taka en ekki virð­ist nokkur áhugi á að gera neitt í einu eða neinu nema það komi uppá yfir­borðið með þeim hætti sem Kveikur fjall­aði um. Þá taka sjóð­irnir fyrst við sér. Versta form spill­ingar er ekki glæp­ur­inn sjálfur, heldur að vita af honum og aðhaf­ast ekk­ert, með­virknin og þögg­unin er frjór jarð­vegur spill­ingar og ábyrgð stjórn­enda líf­eyr­is­sjóð­anna er mik­ill,“ segir Ragnar.

Hann segir að við eðli­legar aðstæður myndu menn segja af sér. „Maður hefði ætlað að hryna afsagna kæmi nú í kjöl­farið en ekk­ert mun raun­veru­lega breyt­ast. En svona ger­ast hlut­irnir þegar farið er með ann­ara manna fé og eina leiðin til að breyta þessum eitr­aða kúltúr er að heild­ar­end­ur­skoðun fari fram á starf­semi líf­eyr­is­sjóð­anna og að sjóð­fé­lagar sjálfir munu skipa í stjórnir þeirra. Slíkt kemur að sjálf­sögðu ekki í veg fyrir spill­ingu og svik­semi en aðhaldið yrði marg­falt betra og meira, því verra getur þetta ekki orðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi