Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Viktoría hætti í handboltanum eftir slys og hannar nú kjóla úr skóreimum og kaffipokum

Viktoría hætti í handboltanum eftir slys og hannar nú kjóla úr skóreimum og kaffipokum

Viktoría Valdi­mars­dóttir útskrift­ar­nemi frá einum virtasta hönn­un­ar­skóla heims, hann­aði gull­fal­legan kjól úr meðal ann­ars end­urunnum skóreimum og kaffi­pokum. Kjólinn var val­inn til þess að prýða  útskrift­ar­sýn­ingu skól­ans.

Viktoría Valdi­mars­dóttir er nemi í fata­hönnun í FIT, Fashion Institution of Technology og er að útskrif­ast núna í maí. FIT er einn af bestu hönn­un­ar­skólum í heim­inum og því valdi Viktoría hann. Hún var búsett á Man­hattan í New York en kom heim til Íslands þegar Covid- 19 skall á. Viktoría stefnir á að flytja aftur út til New York í sumar og vinna þar.

Kjólinn hennar Viktoríu er magn­aður Mynd í einka­eigu

Slys olli umskiptum

Viktoría þurfti að taka snarpa beygju í líf­inu eftir að hún slas­að­ist mjög illa í hand­bolta. Viktoría meidd­ist það illa að henni var tjáð það að hún gæti aldrei spilað hand­bolta aftur. Fram að því hafði líf hennar snú­ist alger­lega um íþrótt­ina. Viktoría var í öllum yngri lands­liðum og spil­aði með meist­ara­flokki Hauka og var í því liði alla sína hand­bolta­tíð. Hún ákvað að láta reyna á að læra fata­hönnun enda hefur það alla tíð verið draumur hennar að vera hönn­uður. Áður en Viktoría hóf nám í fata­hönnun kláraði hún hag­fræði í Háskóla Íslands. Að því loknu skellti hún sér til Hollands í meist­ara­nám í ráð­gjafar og frum­kvöðla­fræði. Hún skrif­aði masters­rit­gerð sína um umhverf­is­á­hrif innan tísku­brans­ans og hvað fyr­ir­tæki eru að gera til þess að draga úr þeim. Hér er á ferð­inni metn­að­ar­full, hæfi­leik­a­rík bar­áttu­kona svo mikið er víst. Viktoría er 27 ára en á afmæli 5. maí og verður þá 28 ára. Mannlíf óskar henni inni­lega til ham­ingju með dag­inn.

Viktoría Valdi­mars­dóttir Mynd í einka­eigu

Saga þessa magnaða kjóls

Viktoría hefur mik­inn áhuga á sjálf­bærni innan tísku­brans­ans. Þegar kom að því að verk­efni í skól­anum var með þema er snéri að end­ur­vinnslu varð hún auð­vitað mjög spennt að taka þátt í því. Verk­efnið snérist um að end­ur­vinna og end­ur­nýta í drapp­er­ingu. Tækifæri var til staðar fyrir þá nem­endur sem áttu  útskrif­ast að fá að taka þátt í útskrift­ar­sýn­ing­unni sem skól­inn heldur í lok hvers skóla­árs. Kjóll Viktoríu var val­inn af nefnd skól­ans til þess að vera á áður­nefndri sýn­ingu og er það gríð­ar­legur heiður fyrir þá sem eru valdir á þessar sýn­ingar. Vegna Covid-19 verður sýn­ingin raf­ræn og verður aðgengi­leg á heima­síðu skól­ans þann 10.maí. Hlekkur hér.

Viktoría segir að inn­blástur að hönn­un­ar­kjólnum komi frá efnum sem voru aðgengi­leg í kringum hana. Litir, listir og fólk frá Rococo tíma­bili 18. aldar voru líka inn­blástur hennar að verk­inu.  Hún tók gamlar skóreimar, ferm­ing­ar­skraut, borð­dúk og end­ur­nýtti kaffi­um­búðir til þess að gera kjól­inn.  Hún mál­aði skóreimarnar og kaffi­um­búð­irnar til þess að búa til mynstur á hann.

Kjólinn er end­urunnin úr borð­dúk, ferm­ing­ar­skrauti, skóreimum og kaffi­um­búðum Mynd í einka­eigu
Ekki er kjól­inn síðri að aftan Mynd í einka­eigu
Viktoría á fram­tíð­ina fyrir sér í hönnun Mynd í einka­eigu

Hannar og saumar sloppa og barnafatnað

Viktoría hann­aði og saum­aði mikið á sig áður en hún hóf nám í fata­hönnun. Með námi sínu hefur hún verið að hanna, sauma og selja fatnað, til dæmis barnafatnað og sloppa. Hún segir að vel hafi gengið hjá sér að sauma slopp­ana og að hver og einn sloppur sé ein­stakur, sér­saum­aður fyrir við­skipta­vin­inn. Hægt er að skoða verk hennar, senda fyr­ir­spurnir og panta á Instagram­inu hennar sem er: valdi­mars­dott­irv.

Gull­fal­leg stúlka í fal­legum fötum frá Viktoríu Mynd í einka­eigu
Viktoría hannar og saumar barnafatnað Mynd í einka­eigu
Sloppur eftir Viktoríu Mynd í einka­eigu
Slopp­arnir eru sér­saum­aðir Mynd í einka­eigu

#

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi