Thelma Rut Hjaltadóttir, kærasti hennar og átta mánaða gömul dóttir þeirra urðu fyrir því óláni að lenda í bílslysi nú á dögunum.
Til mikillar lukku slasaðist enginn alvarlega við áreksturinn. En litla fjölskyldan var á leið sinni til Reykjavíkur frá Reykjanesbæ, þar sem þau eru búsett.
Kristjana nokkur kom að slysinu, sem Thelma segist ekkert hafa þekkt, en hún hafi boðið þeim að setjast inn í bíl sinn á meðan þau biðu eftir lögreglu og sjúkraflutningamönnum, sem þau og þáðu.
Kristjana sem var ein á ferð, var með bílstól í bílnum og bauðst í kjölfarið til að keyra fjölskylduna á Landspítalann þangað sem þau áttu að fara til aðhlynningar, svo þau myndu sleppa við að fara í sjúkrabílnum þar sem enginn bílstóll væri þar fyrir dóttur þeirra. „Þannig hún snéri við til að skutla okkur á sjúkrahúsið, því hún var að koma úr Reykjavík,“ segir Thelma í samtali við Mannlíf og heldur áfram „við erum bláókunnugt fólk en hún hikaði ekki við það.“
Einnig bauðst Kristjana til þess að opna fyrir þau barnavöruverslunina sem hún starfar í, til þess að þau gætu fengið nýjan bílstól til að komast aftur heim, þar sem þeirra stóll varð fyrir tjóni.
Segist Thelma vera henni afar þakklát fyrir alla hjálpina, „hún bjargaði okkur alveg og gerði eiginlega meira en sjúkraliðarnir,“ segir Thelma að lokum.































Athugasemdir