Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Benný Sif farið tvisvar að gosstöðvunum þrátt fyrir hræðslu að deyja úr gasmengun

Benný Sif farið tvisvar að gosstöðvunum þrátt fyrir hræðslu að deyja úr gasmengun

Rit­höf­und­ur­inn, þjóð­fræð­ing­ur­inn, eig­in­konan og fimm barna móð­irin, Benný Sif Ísleifs­dóttir var undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs í vik­unni.

Það má heldur betur segja að Benný Sif hafi komið með trukki inn í jóla­bóka­flóðið árið 2018 en þá komu út tvær bækur eftir hana, barna­bókin Jóla­sveina­rann­sóknin og skáldsagan Gríma. Benný hlaut bæði Nýrækt­ar­styrk og Íslensku hljóð­bóka­verð­launin fyrir Grímu.
Í síð­asta mán­uði hlaut svo Hansa­dætur, fjórða bók Bennýjar sem kom út fyrir sein­ustu jól, til­nefn­ingu til Bók­mennta­verð­launa Evr­ópu­sam­bands­ins.
Benný hefur því aldeilis náð að hasla sér völl á íslenskum bóka­mark­aði og von­andi að þetta sé bara byrj­unin hjá henni.
Mannlíf komst að því að Benný er sjúk­lega myrk­fælin, finnst flest fólk skemmti­legt og dreymir um hús við sjó­inn.

Fjöl­skyldu­hagir? Ég er gift Óskari Garð­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra Dögunar, sem er Esk­firð­ingur eins og ég. Við eigum fimm börn, fjórar dætur og einn son, á aldr­inum 14-27 ára og búum í Sala­hverf­inu í Kópavogi.

Menntun/atvinna? Þjóð­fræð­ingur/rit­höf­undur

Upp­á­halds Sjón­varps­efni?  Downton Abbey og Poldark koma strax upp í hug­ann, Gösta er frá­bær og líka Bón­us­fjöl­skyldan, hvorttveggja sænskar þátt­araðir og af íslensku efni held ég mest upp á Landann, Um land allt og alls­konar þætti á N4, ég elska við­tals­þætti þar sem er ekki verið að skoða svart/hvítt innbú og spyrja hvar ljósakrónan var keypt.

Leikari? Krist­björg Kjeld er drottn­ingin og næst henni kemur Meryl Streep. Í karla­deild­inni er ég næstum búin að skipta bæði Hugh Grant og George Clooney út fyrir Omar Sy úr The Intouchables, nú nýlega í Lupin.  Og svo verð ég að nefna eig­in­mann­inn og hans mikla leik­sigur í Flæð­ar­mál­inu 1981. Eða hann yrði svekktur ef ég gerði það ekki.

Rit­höf­undur? Ég á mér frekar upp­á­halds­bækur en upp­á­halds­höf­unda og upp­á­halds­bæk­urnar eru margar, mjög margar.

Bók eða bíó? Ég fer næstum aldrei í bíó en les mikið, enda ef það er gerð mynd eftir bók þá er hún yfir­leitt mun síðri en bókin. Nema kannski Bók­mennta- og kart­öflu­böku­fé­lagið þar sem bæði er betra. Ég ætti samt að fara oftar í bíó.

Besti matur? Eig­in­lega bara allt sem ég elda ekki sjálf, en ég geri samt gott lasanja, bæði venju­legt og græn­metis.

Kók eða Pepsí? Ég drekk hvor­ugt, fæ nóg koffín úr kaff­inu.

Fal­leg­asti stað­ur­inn?  Hænuvík fær að vera full­trúi Vest­fjarða og Eski­fjörður full­trúi Aust­fjarða, til dæmis að standa á Mjó­eyr­inni og horfa á Hólmatind þegar Aust­fjarða­þokan er víðs­fjarri er dúndur. Siglu­fjörð verð ég líka að nefna. Eig­in­lega er allt fal­legt sem er nálægt sjó og firðir toppa dali. Og fjöll toppa flat­lendi – bók­staf­lega og fag­ur­fræði­lega.

Hvað er skemmti­legt?  Fólk er yfir­leitt skemmti­legt, og frí­dagar og ferða­lög og mat­máls­tímar. Það er skemmti­legt þegar komið er upp á fjallið, þegar verk­efni er lokið, þegar mark­miði er náð, þegar kakan er bökuð og þegar sólin skín.

Hvað er leið­in­legt? Mér finnst mjög leið­in­legt að fara í búð­ina, ég er eig­in­lega aldrei í stuði til að fara að versla og ég veit yfir­leitt aldrei hvað á að vera í mat­inn. Ég losna reyndar oft við að fara í búð­ina og sömu­leiðis þarf ég sjaldan að elda en mér finnst stundum eins og það að vera full­orðin snú­ist aðal­lega um að vita hvað eigi að vera í mat­inn.

Hvaða flokkur? Kolvetni, ertu ann­ars ekki að meina flokk nær­ing­ar­efna?

Hvaða skemmti­staður? Sko, ef ég ætti að nefna ein­hvern skemmti­stað þyrfti ég að gúggla svo ég sleppi því bara. Nema gos­s­töðv­arnar telj­ist með? Þar er stuð á kvöldin, kampa­vín og svona.

Hver er fynd­inn? Stelp­urnar í Stelp­unum og stelp­urnar í Þær tvær, og Saga Garð­ars­dóttir og fólkið mitt á fjöl­skyldu­spjall­inu.

Hver er leið­in­legur? Enginn er al-leið­in­legur held ég, þetta er eins og með bækur, þær falla mis­vel í kramið hjá fólki en allar bækur eiga sína les­endur, bara mis­marga.

Trúir þú á drauga? Já, ég er sjúk­lega myrk­fælin. Fólk vex upp úr allskyns vit­leysu en það gildir ekki um mig, ég er enn myrk­fælin (og ég veit enn ekki hvað á að vera í mat­inn.)

Hver er draum­ur­inn? Hús við sjó­inn og covidfrítt líf og alls­konar sem ég geymi fyrir mig.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári?  Fara að eld­gos­inu þrátt fyrir fjörugt ímynd­un­ar­afl sem býður upp á ýmsar sviðs­myndir um mögu­legar hrak­farir. Mest var ég hrædd við að deyja úr gosmengun, þar á eftir að ný gossprunga gleypti mig og síðan að gló­andi hraun­molar kveiktu í mér. En nú er ég búin að fara tvisvar og kom lif­andi heim í bæði skiptin.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Nei, og það er mjög mik­il­vægt að setja sér alltaf ný mark­mið því ann­ars er til lít­ils lifað, næsti kaffi­bolli, næsti göngutúr, næsta bók, eitt­hvað nýtt að prófa, upp­götva, læra og hlakka til.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Þegar ég var í þjóð­fræð­inni sat ég eitt miss­erið nám­skeið um húmor hjá Kristínu Ein­ars­dóttur, sem er fyndin, og þann vetur kunni ég alltaf brand­ara og var líka fyndin en núna kann ég enga. Þannig að …

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að elska sjálfan sig og vera ekki of skyn­samur. Sjálfs­ástin er for­senda þess að geta elskað aðra og pass­legt kæru­leysi kemur í veg fyrir að allt stoppi á ofhugsun og óhóf­legri full­komnun. Stundum er best að láta bara vaða, hlæja ef það mis­tekst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi