Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Edda er látin frá ungri dóttur aðeins 31 árs: „Sárara en orð fá lýst að þurfa að kveðja þig“

Edda er látin frá ungri dóttur aðeins 31 árs: „Sárara en orð fá lýst að þurfa að kveðja þig“

Edda Þöll Hauks­dóttir verður jarð­sungin í dag en hún lést fyrir tveimur vikum síðan eftir erf­iða bar­áttu við krabba­mein. Hún var aðeins 31 árs að aldri og lætur eftir sig unga dóttur sem hún barð­ist hetju­lega fyrir að eign­ast.

Edda Þöll fædd­ist í Reykja­vík 31. júlí 1989. Hún ólst upp á Laug­ar­ás­vegi með for­eldrum sínum og gekk í Laug­ar­nes­skóla og síðar Lang­holts­skóla. Eftir grunn­skóla­göngu fór Edda í Hús­mæðra­skól­ann. Síðar lauk Edda sjúkra­liða­námi við Fjöl­brauta­skól­anum við Ármúla og hóf störf sem sjúkra­liði á bækl­un­ar­skurð­deild Land­spít­al­ans. Þar tók hún síðar við stöðu aðstoð­ar­deild­ar­stjóra og gegndi henni til dán­ar­dags. Samhliða starfi sínu á Land­spít­al­anum sat hún í stjórn Tilveru, sam­tökum um ófrjó­semi, og Sjúkra­liða­fé­lagi Íslands.

Edda Þöll gekk að eiga Harald Þór Svein­björns­son og saman börð­ust þau til margra ára til þess að eign­ast saman barn. Reyndu þau fimm smá­sjár­frjóvg­an­ir en án árang­urs. Það var svo loks í nóv­em­ber 2019 sem þau eign­uð­ust unga dóttur sína. Þremur mán­uðum síðar greind­ist Edda með krabba­mein.

Hera, móðir Eddu, minn­ist dóttur sinnar með mik­illi hlýju í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu í dag. „Elsku Edda mín, það er sárt og sorg­legt að þurfa að skrifa þessar línur um þig. Það er svo stutt síðan þú varst hjá okkur í kvöld­mat með litlu dúll­unni þinni. Allt var svo bjart og gott, allt lífið fram undan. Þú búin að sigr­ast á erf­iðu krabba­meini eftir langa og stranga bar­áttu,“ segir Hera.

Móðirin segir að skyndi­lega hafi krabba­meinið látið á sér kræla á ný og í þeirri bar­áttu hafi meinið tekið yfir­hönd­ina þrátt fyrir hetju­lega bar­áttu. „Ég mun alltaf minn­ast þín sem ynd­is­legu, ljúfu, fal­legu stelpunnar minnar, að utan sem innan, og mun enda­laust sakna þín og alls þess sem við áttum og gerðum saman.“

Unnur Þóra, vin­kona Eddu, á erfitt með að lýsa sárs­auk­anum. „Ó Edda! Elsku besta ynd­is­lega, ein­læga, fall­lega og klikkað vin­kona mín sem ég elska svo mikið. Það er sár­ara en orð fá lýst að þurfa að kveðja þig. Nú þegar lífið er loks­ins rétt að byrja!,“ segir Unnur.

Vinkonan segir það hafa verið heldur betur kjafts­högg þegar Edda greind­ist fór inn á spít­ala í annað sinn með krabba­mein. „Ég er svo fegin að hafa fengið tíma með þér eftir að þú greind­ist aftur og það skiptir mig öllu máli að hafa náð að kveðja þig. Ég er og verð að eilífu þakk­lát fyrir okkar fal­legu vin­áttu. En ég fæ hlýtt í hjartað þegar ég hugsa um allar minn­ing­arnar okkar. Það er ósann­gjarnt á allan hátt að þurfa að kveðja þig svona snemma en fal­legt að hugsa til þess að þú hafir fengið að verða mamma og að Hera Lind hafi átt bestu mömmu í öllum heim­inum. Þangað til næst. Þín vin­kona.“

Útför Eddu fer fram frá Sel­tjarn­ar­nes­kirkju í dag klukkan 13. Streymt verður frá útför­inni og má nálg­ast hlekk hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi