Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Áróðursmaskína Samherja afhjúpuð: „Eitt spark í punginn… Og þá er hann… Sprunginn!“

Áróðursmaskína Samherja afhjúpuð: „Eitt spark í punginn… Og þá er hann… Sprunginn!“

Páll Stein­gríms­son, skip­stjóri hjá Samherja, hefur birt nokkur fjölda greina til stuðn­ings Samherja og til ófræg­ingar fjöl­miðla­fólki og öðrum sem hafa verið gagn­rýnir á stjórn­endur Samherja og meint afbrot þeirra. Stundin birtir í dag tölvu­póst­sam­skipti sem sýna að Páll skip­stjóri hefur látið Þorbjörn Þórð­ars­son, fyrr­ver­andi frétta­mann Stöðvar 2 og núver­andi skugga­penna Samherja, skrifa stóran hluta greina sinna og yfir­fara annað. Grein­arnar hafa verið sum­part rætnar og ill­yrtar í garð þeirra sem Samherji hefur skil­greint sem óvini sína.

Þrír ein­stak­lingar gegna lyk­il­hlut­verki í þeirri áróð­urs­vél sem stjórn­endur útgerð­ar­innar Samherja ræstu eftir upp­ljóstr­anir um mútu­greiðslur til namibískra stjórn­mála­manna. Þetta eru Þorbjörn almanna­teng­ill, Arna Bryndís Baldvins McClure lög­maður og Páll skip­stjóri. Sá síð­ast­nefndi hefur látið birta í sínu nafni fjölda greina sem Þorbjörn og Arna hafa ýmist skrifað eða rit­stýrt.

Greinar sem birst hafa í nafni Páls á Vísi.is eru að megn­inu til skrif­aðar eða þeim rit­stýrt af Þorbirni, með athuga­semdum og aðstoð frá Örnu. Þetta full­yrðir Stundin og birtir því til sönn­unar tölvu­pósts­sam­skipti.

Stundin full­yrðir að Þorbjörn sé mað­ur­inn með penn­ann sem skrifi allar áróðs­grein­arnar gegn fyrrum kol­legum sínum í blaða­manna­stétt­inni.

Vörn Samherja við ásök­unum um mútur og spill­ingu í starf­semi sinni víða um heim hefur helst snúið að því að gera frétta­menn og þá miðla sem fjöll­uðu um málið tor­tryggi­lega. Liður í því hafa verið greina­skrif Páls skip­stjóra. Til­gangur greina­skrif­anna hefur einna helst verið að ráð­ast á blaða­mann­inn Helga Seljan og trú­verð­ug­leika hans.

Hér að neðan má sjá dæmi um sam­skipti milli Örnu Bryn­dísar lög­manns og Páls skip­stjóra, sem Stundin birti:

Stinga og strá salti í sárin

Páll: En Jón Óttar mun hitta ÞMB á morgun.

Arna: Já það er gott. Mjög gott.

Páll: Jebb er búin að vera stöðnun og allt of mikið fum og fátt í þessu hjá okkur en von­andi brýnir ÞMB hníf­ana og fer í að slátra Jóhann­esi.

Arna: Amen!

Páll: Þú ert svo blóð­þyrst.

Arna: Hehe já ég veit. Ég vil stinga, snúa og strá salti í sárið.

Sparka í punginn

Páll: Glæsi­legt við þörfn­umst þess núna akkúrat núna þurfum við að sparka í pung­inn á þessu liði.

Arna: Ég ætla að gera það. Eitt spark í pung­inn… Og þá er hann… Sprung­inn! Múhar­harhar.

Páll: Haha ég alla­vega treysti á þig og vona að ég fái ekki spark í pung­inn frá þér.

Arna: Þú færð ekk­ert spark!! En Helgi, Óðinn Jóns, Stefán Eiríks, Már Guðmunds, Ingi­björg Guð­bjarts og Stefán Jóhann fá á bauk­inn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi