Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Egill hefur ekki náð öllum markmiðum sínum: „Og ég geri mér ljóst að tíminn er óðum að styttast“

Egill hefur ekki náð öllum markmiðum sínum: „Og ég geri mér ljóst að tíminn er óðum að styttast“

Einn fremsti lista­maður okkar Íslend­inga, Egill Ólafsson, var undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs í vik­unni. Hann þarf vart að kynna fyrir lands­mönnum, þjóðin hefur fengið að njóta sköp­un­ar­gáfu og tón­list­ar­hæfi­leika hans frá árinu 1975. En það var þá sem Egill gerði garð­inn frægan ásamt hljóm­sveitum sínum Spil­verki þjóð­anna og Stuð­mönnum, síðar einnig í Hinum íslenzka Þursa­flokki.

Það var á svip­uðum tíma sem Egill steig sín fyrstu skref innan leik­húss­ins, en ófá leik­ritin hefur hann prýtt síðan, sem og kvik­myndir, erlendar og inn­lendar, þætti, ára­mótaskaup og fleira.

En Egill leikur ekki bara og syngur, heldur hefur hann einnig samið urmul tón­list­ar­verka fyrir bæði leik­hús, kvik­myndir og þær hljóm­sveitir sem hann hefur verið í.
Mannlíf komst að því að Egill telur sig hafa færri kosti en lesti, hann segir engin endi­mörk vera á vand­ræða­gangi sínum og mottó hans er; ekki búast við neinu, þannig verða aldrei nein von­brigði.

Egill Ólafsson

Fjöl­skyldu­hagir? Bý með Tinnu Gunn­laugs­dóttur, leik­ara, fyrr­ver­andi Þjóð­leik­hús­stjóra, þýð­inga­fræð­ingi og dokt­or­snema. Við eigum þrjú börn, Ólaf, leik­ara, leik­stjóra og hand­rits­höf­undur, Gunnlaug, fyrr­ver­andi dans­ari hjá kon­ung­lega ball­ett­inum í Svíþjóð, nýút­skrif­aður verk­fræð­ingur í þrí­vídd (3D) og Ellen Erla, snyrti­fræð­ingur og hús­móðir.

Svo eru það tengda­börnin þrjú; Esther Talia Casey, Gunnur von Matérn og Anton Kristinn – og svo rús­ín­urnar sex, barna­börnin; Ragn­heiði Eyju, Egil, Thor, Tinnu Vigdísi, Amý Herdísi, Anton Egil – sem eru ávísun á eilífðar merki – allt saman frá­bærir ein­stak­lingar sem erfa löndin.

Menntun/atvinna? Stundaði nám í Tón­list­ar­skóla á árunum 1970 – 76, hef tekið þátt í fjölda “Master-classes“ eftir það og nám­skeiða, bæði í söng og tón­smíðum. Ég hef starfað við músík og leik­hús, kvik­myndir frá 1976 – 2020, en er hættur – eða svo gott sem. 

Leikari? Rúrik Har­alds­son – en af þeim sem lifa vil ég nefna Michael Gambon.

Rit­höf­undur? Hugo, Brecht (sem ljóð­skáld), Pessoa, Shakespear (sem ljóð­skáld, ást­ar­sonn­ett­urnar allar með tölu).

Bók eða bíó? Lif­andilífs­lækur, eftir Berg­svein Birg­is­son og  The Book Of Disquiet F. Pessoa – hin marg­verð­laun­aða danska mynd Dryk eftir Thomas Vinter­berg og svo er það og verður ætíð Amarcord eftir Fellini.

Besti matur? Allur matur sem Tinna eða strák­arnir mínir útbúa, hún hvatti þá til dáða og þeir launa það með því að vera móð­ur­betr­ungar í mat­ar­gerð – allt er einnig gott hjá mömmu, Margréti Erlu og hún er ennþá flínk í mat­ar­gerð­inni að verða 90 ára.
Dóttir mín Ellen Erla, hefur líka þessa gáfu að kunna að mat­búa, alveg upp úr sér eins og stundum er sagt svo ósmekk­lega þegar mat­ar­gerð á í hlut.

Kók eða Pepsí? HVORUGT – ég hef aldrei verið hrif­inn að gosi, ja, nema ef vera skyldi Póló – drykk­ur­inn með gervi­kjörn­unum frá Sanitas. PÓLÓ (fæst hann enn?) – Póló-tíma­bilið var stutt frá 8-12 ára. Þetta var eini drykk­ur­inn sem fékkst í Fram­heim­il­inu í gamla daga.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Dyra­fjörður í haust­stillu eða Dýra­fjörður.

Hvað er skemmti­legt? Þegar það er gaman – þá er gjarnan skemmti­legt, en án leið­inda getur aldrei neitt orðið skemmti­legt.

Hvað er leið­in­legt? Rétt áður en allt verður skemmti­legt – þarf að hafa gengið á með leið­indum, ann­ars verður aldrei gaman, hvað þá skemmti­legt.
Þetta eru gömul og ný sann­indi, eig­in­lega hálf­gert SANN-YNDI!

Hvaða flokkur? Kata er fín og eins þykir mér Svandís Svavars fín, en þær eru ekki í réttum flokki – ég held líka upp á Þorgerði Katrínu Gunnars og hennar flokk, Viðreisn.
Ég hef trú á konum – þær eiga að stjórna, þeim fer valdið betur.
Við eigum að ganga í banda­lag fleiri þjóða og taka upp gjald­miðil sem til­heyrir stærra hag­kerfi en okkar, þannig náum við afli.

Stórefla sam­starf okkar í tækni, vís­indum, menn­ingu og öðru þarf­legu við aðrar þjóðir – ganga til liðs í stað þess að halda að allt sé best og mest hjá okkur, sem elur á ein­angr­un­ar­stefnu, sjálf­birg­ings­hætti og minni­mátt­ar­kennd – þannig verðum við utan­veltu í hag­sæld og eðli­legri fram­vindu sam­fé­laga.
Landa­mæri eru forn­eskja og að þykj­ast eiga til­tekið land, við höfum aðgengi að  þess­ari jarð­ar­kúlu, sam­eig­in­legt aðgengi og ættum að sam­ein­ast um að gera hana að betri stað á hverjum degi  –  þaö er það þýð­ing­ar­mesta að gera í stöð­unni dag, loft­lagsvá, pestir og fátækt til að vinna bug á þessu þurfum við að sam­ein­ast öll sem eitt.

Hvaða skemmti­staður? Heimilið – það sem flýtur og eins hitt sem stendur á bjarg­inu.

Kostir? Færri en lest­irnir, e.t.v. þeir að ég er enn að reyna að vinna á göll­unum

Lestir? Fleiri en kost­irnir, menn eru ótrú­lega fast­heldnir á gamla siði/lesti. Og þegar við eld­umst er mik­il­vægt að vera í það minnsta með­vit­aður um þá (sem ég er að reyna að vera).

Hver er fynd­inn? Sá sem segir ómeng­aðan sann­leika – og dregur ekk­ert undan. Í reynd er mað­ur­inn í öllu sínu innsta eðli, spreng­hlægi­legur.

Hver er leið­in­legur? Sá sem er laus við að skilja eigið innsta eðli – sér þess vegna ekki sjálfan sig – ja, nema e.t.v. í rós­rauðum bjarma sjálfslyg­innar.

Trúir þú á drauga?  Já, draug­inn í sjálfum mér – sem er fólsku­legt fyr­ir­bæri – en flesta daga vik­unnar er ég gegnum góður (ég er auð­vitað einn um þá skoðun).

Stærsta augna­blikið? Fæðing hvers og eins.  Þá hef ég þá trú að eftir langt og far­sælt líf hljóti dauð­inn að telj­ast hástig lífs­ins. Næst stærsta augna­blikið, að verða ást­fang­inn, sem væri sjálf­sagt ekki á dag­skrá okkar mann­anna ef við værum ódauð­leg – þarf ég að segja meira?

Mestu von­brigðin? Mitt mottó er; ekki búast við neinu, þannig verða aldrei nein von­brigði – ég hef þar á ofan haft lánið og lukk­una mín megin – þó ólánið elt­ist við menn­ina sínkt og heil­agt, þá leikur lánið einnig við okkur, það þykir flestum sjálf­sagt og hafa það síður á orði en lán­leysið –  lánið ættum við að þakka fyrir á hverjum degi.

Hver er draum­ur­inn? Margir hafa ræst – draum­ur­inn er að fá að sjá öll barna­börnin mann­ast, kom­ast til vits og ára – eða m.ö.o. að ég fái fáein ár til, ekki allt of mörg þó.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Að horfast í augu við þann sem ég held að ég sé og reyna að ná sáttum við þann náunga.

Ertu búinn að ná öllum þínum mark­miðum? Nei, það er langur vegur frá og ég geri mér ljóst að tím­inn er óðum að stytt­ast – ég tel mig vinna mark­visst í þeim efnum þessa dag­ana, það er aldrei of seint.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara?  Sá sem verður ást­fang­inn er fyrst og fremst skot­inn í hug­mynd­inni um „sjálfan sig verð­andi ást­fang­inn“. Þetta þykir mér fyndið, það er í það minnsta heil­mikið til í þessu – mað­ur­inn er sjálf­hverf­asta dýrið.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Það eru engin endi­mörk á mínum vand­ræða­gangi – en með tím­anum hefur mér tek­ist að fela það – þar sann­ast hið forn­kveðna, sá einn þekkir sjálfan sig sem kann að forð­ast að vera hann sjálfur.

Sorg­leg­asta stundin? Að horfa upp á dóttur mína tapa áttum – og á móti sá óend­an­legi fögn­uður þegar hún náði að fóta sig á ný og breyta um lífs­stíl – fyrir það þakka ég á hverjum degi– þar telur einn dagur í senn.

Mesta gleðin? Að sjá börnin mín full­orðn­ast og takast á við lífið, sem hefur tek­ist hjá þeim öllum, býsna vel – þökk sé for­sjón­inni.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Sættu sjálfan þig við sjálfan þig – það er erfið sátta­um­leitun, en þegar og ef það tekst, er ég sann­færður um að við­kom­andi hvíli full­kom­lega í öllu því sem hann vill vera og ekki síður því sem hann vill forð­ast að vera – sem getur verið, eins og fyrr er sagt; „að vera betri útgáfan af því sjálfi sem þú vilt vera”  Það er ein­falt að segja það og skrifa – en hitt er mun flókn­ara að lifa það – en hver sagði að lífið væri létt og leik­andi?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi