Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslensk börn selja kynferðislegar myndir af sér: „Fullorðið fólk eltir grunnskólabörn“

Íslensk börn selja kynferðislegar myndir af sér: „Fullorðið fólk eltir grunnskólabörn“

Texti: Klara Egilson

„Það nýjasta sem við erum að sjá varð­andi nekt­ar­mynda­send­ing­arnar er það að full­orðið fólk er farið að elta uppi grunn­skóla­börn til að kaupa af þeim þessar kyn­ferð­is­legu ljós­myndir.“ Þetta segir Kolbrún Hrund Sig­ur­geirs­dóttir, verk­efn­is­stjóri Jafn­rétt­is­skóla Reykja­víkur en hún gerir klá­m­á­horf og nekt­ar­ljós­myndir íslenskra ung­menna meðal ann­ars að umfjöll­un­ar­efni í vef­fyr­ir­lestri sem ber heitið „Klám og Sexting – Ungt fólk“

„Það eru ein­hver börn að selja af sér kyn­ferð­is­legar myndir en bara núna und­an­farnar vikur höfum við séð ótrú­lega fjölgun. Það er eitt­hvað í and­rúms­loft­inu akkúrat núna sem að við þurfum að vera vak­andi fyrir. Inn á mitt borð fæ ég úr öllum hverfum borg­ar­innar svona mál og því miður aukast þau alltof hratt, ég er að fá inn mál úr öllum hverfum borg­ar­innar þar sem full­orðnir eru að nálg­ast börn í gegnum sam­fé­lags­miðla, oft­ast Snapchat eða PlayStation eða Instagram eða jafn­vel Omegle þar sem þeir eru að bjóða þeim pen­ing.“

Senda rafræna pöntunar- og verðlista

Kolbrún segir að dæmin nái allt niður á mið­stig grunn­skóla­nema, þar sem full­orðnir sendi íslenskum börnum jafn­vel verð­lista þar sem fram komi hvað við­kom­andi er til­bú­inn að kaupa og greiða fyrir af hálfu við­kom­andi barns.

„Þessi mál eru ofboðs­lega erfið þar sem börn virð­ast ekki alltaf átta sig á hætt­unni sem þessu fylgir,“ segir Kolbrún jafn­framt. „Þau líta á þetta sem auð­velda leið til að eign­ast pen­ing. „Ég er hvort sem er að fara í sund og er á bik­iní, af hverju ekki að selja mynd­ina þó ég sé á nær­bux­unum. Ég er ekki að senda klám, ég er að senda bara smá.“
Hóta börnum ofbeldi
Því miður sé raun­veru­leik­inn þó annar og þannig segir Kolbrún mál rata inn á sitt borð í auknum mæli þar sem börnin hafni í ljótri gildru. „Hinn full­orðni er kom­inn í kontakt við barnið og veit hvar barnið er stað­sett. Hann er með reikn­ings­upp­lýs­ingar eða síma­númer og þeir byrja mjög fljótt að hóta börn­unum. „Ef þú sendir mér ekki mynd núna eða mynd­brot þá deili ég öllu sem þú ert búinn að senda mér“.

Þá vísar Kolbrún einnig til aðferða­fræði níð­inga sem kall­ast „grooming“ og gengur út á að vinna traust barns .

„Við höfum dæmi um að full­orð­inn aðili hafi farið með börn á grunn­skóla­aldri í verslun og keypt gjafir fyrir tugi þús­unda. Það er mjög erfitt fyrir tólf til þrettán ára gam­alt barn að segja frá eða jafn­vel að segja nei ef við­kom­andi vill eitt­hvað meira en nekt­ar­myndir eftir að hafa þegið gjafir fyrir tugi þús­unda. Þetta er vond staða sem börn eru í. Hér er gott að muna að heili barna er ekki full­þrosk­aður, þau er ekki alltaf skyn­söm og við þurfum að veita þeim styrk og stuðn­ing þarna.“

Hvert geta foreldrar leitað?

Sláandi nið­ur­stöður skýrsl­unnar hafa vakið eðli­legar áhyggjur meðal for­eldra. Þannig hefur sveit­ar­fé­lagið Árborg óskað eftir fræðslu­fundi fyrir for­eldra grunn­skóla­nema í 5. – 10 bekk í beinu vef­streymi undir yfir­skrift­inni: „Börn senda kyn­ferð­is­legar myndir af sér gegn greiðslu í Árborg“ og verða þar kynntar nið­ur­stöður nýút­kom­innar árs­skýrslu um aðstæður og líðan ungs fólks á Íslandi.

*Við­kvæmir eru varaðir við áhorf­inu þar sem nið­ur­stöður þær sem Kolbrún ræðir hér leiða þungar stað­reyndir í ljós um áhrif staf­ræns kyn­ferð­is­of­beldis á líðan og vel­ferð íslenskra barna í dag.  

https://www.youtube.com/watch?v=5fjQblBYNpE

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi