Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Saga hæsta fjalls í heimi: Sorgir og sigrar 11 Íslendinga á toppi Everest

Saga hæsta fjalls í heimi: Sorgir og sigrar 11 Íslendinga á toppi Everest

Alls hafa ríf­lega fjögur þús­und manns gengið á topp hæsta fjalls heims Everest og er saga fjalls­ins mörkuð bæði sigrum og áföllum enda hafa um 200 manns lát­ist við til­raun­ina við topp­inn.

Fjall­göngu­menn­irn­ir Heim­ir Fann­ar Hall­gríms­son og Sig­urður Bjarni Sveins­son náðu þeim merka áfanga að ná á topp­inn á mið­nætti í nótt en fjallið er 8.848 metrar. Nánar má sjá hér

Þar með eru þeir Heimir Fannar og Sigurður Bjarni tíundi og ell­efti Íslend­ing­ur­inn sem náð hefur toppnum. Þeir félagar ganga til stuðn­ings Umhyggju – félags lang­veikra barna.

Toppnum náð 1997

Fyrstir Íslend­inga til að kom­ast á top Everest voru þrír félagar í Lands­björgu, Björn Ólafsson, Einar Stef­áns­son og Hall­grímur Magn­ús­son sem komust á tind fjalls­ins að morgni 21. maí 1997 og brutu þar með blað í íslenskri fjalla­mennsku.

Fimm ár liðu þangað til Haraldur Örn Ólafsson komst á tind­inn þann 16. maí 2002 og var það loka­hluti leið­ang­urs hans sem fólst í því að kom­ast á Norður- og Suður heim­skautin og hæstu tinda í öllum heims­álfum. Haraldur var þriðji mað­ur­inn í heim­inum sem hafði náð að ganga á sjö hæstu tinda heims og báða pól­ana. Enginn hafði hins vegar unnið þetta afrek á skemmri tíma en hann. Haraldur Örn nýtti meðal ann­ars hálf­tím­ann sem hann var á toppi Everest til að hringja og heilsa upp á Davíð Oddsson, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra.

Norður og suður, afi og fyrsta konan

Eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur kom­ist á topp Everest oftar en en einu sinni er Leifur Örn Svav­ars­son sem fyrst náði toppnum þann 23. maí 2013 og aftur sléttum sex árum upp á dag árið 2019. Leifur tók fyrri ferð­ina upp fjallið að norð­an­verðu . Allir aðrir Íslend­ingar hafa farið að sunn­an­verðu. Sú leið er mun vin­sælli og þekk­ing á stað­háttum betri.

Ingólfur Geir Giss­ur­ar­son fór á topp­inn 21. maí 2013, og er hann elstur Íslend­inga til að kom­ast á Everest, fimm­tugur að aldri, og jafn­framt eini afinn sem skartar þeim titli hér á landi.

Afreks­konan Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir reyndi fyrst íslenskra kvenna tví­vegis að kom­ast á tind fjalls­ins, árin 2014 og 2015 en varð aftur að snúa vegna mann­skæðra snjó­flóða þar sem Vilborg þurfti að sjá á eftir vinum og kunn­ingjum. Vilborg Arna sagði síðar að hörm­ung­arnar hefðu tekið mjög á hana, svo mjög að á tíma­bili treysti hún sér varla á Esjuna. Árið 2017 lagði hún þó af stað í þriðja skiptið og varð þar með fyrsta íslenska konan til að ná tind­inum 21. maí það sama ár.

Bjarni Ármanns­son og Lýður Guð­munds­son náðu síðan á topp­inn 23. maí 2019.

Saga sigra og áfalla

Everest er hæsta fjall jarðar. Landa­mæri Tíbet og Nepals liggja um hrygg fjalls­ins. Yfir fjögur þús­und manns hafa klifið fjallið frá því að Ný-Sjá­lend­ing­ur­inn Edmund Hillary ásamt leið­sögu­manni sínum, Tenzing Norgay, náðu tindi fjalls­ins fyrstir manna þann 23. maí 1953. Var þar um að ræða níundu til­raun bresks leið­ang­urs til að ná á topp­inn.

Töl­fræðin um Everest er áhuga­verð. Meðal þeirra sem klifrað hafa á topp­inn er blindur maður og annar fóta­laus. Sá yngsti var þrettán ára og sá elsti átt­ræður. Par gekk í hjóna­band á toppnum og hraða­metið á Nepali sem fór upp úr grunn­búðum á átta tímum og tíu mín­útum. Árið 1999 dvaldi Sjerpi á toppnum í 21 klukku­stund án súr­efnis og örtröð var á toppnum 19. maí þegar alls 234 ein­stak­lingar náðu þangað sama dag.

Mann­fjöld­anum hefur fylgt mikið rusl sem safn­ast hefur saman á leiðum fjalls­ins auk þess sem lík­ams­leifar tölu­verðs fjöldi þeirra sem lát­ist hafa á fjall­inu hafa ekki fund­ist. Rík­is­stjórn Nepal hefur hert leyfi til upp­göngu á fjallið og gert átak í því að hreinsa það. Árið 2018 var til að mynda flogið með 100 tonn af af súr­efn­iskútum, dósum og klif­ur­bún­aði af fjall­inu.

Ekki eru þó allir á því að Hillary og Norgay hafi verið fyrstir á topp Everest og telja margir að Bret­arnir George Mallory og Andrew Irvine hafi verið fyrri til, 24 árum á undan en lík Mallory fannst árið 1999 í 8.530 metra hæð. Er einna helst litið til þess að snjó­gler­augu Mallory hafi ver­iði í vasa hans sem bendir til þess að hann hafið verið á göngu að nóttu til og fallið. Hafi þeir félagar náð tind­inum seinni part dags hafi þeir þurft að ganga niður um kvöldið og ekki haft þörf fyrir gler­augun.

Þetta verður þó aldrei sann­reynt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi