Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Edda varð fyrir hrottalegri líkamsárás og nauðgun: „Núna get ég ekki farið ein út með ruslið“

Edda varð fyrir hrottalegri líkamsárás og nauðgun: „Núna get ég ekki farið ein út með ruslið“
Edda Kristín. Mynd/ Skjáskot af Stöð2

Það var í útskrifta­ferð sinni til Krítar sem hin þá 18 ára gamla Edda Kristín Berg­þórs­dóttir varð fyrir hrotta­legri og skyndi­legri árás.

Ferðin rataði í frétt­irnar vegna hennar og Mannlíf greind frá því þegar Edda Kristín flaug til Krítar til að bera vitni gegn mönn­unum sem brutu gegn henni.

Edda Kristín sem nú er 21 árs, sagði frá þess­ari hræði­legu lífs­reynslu sinni í Ísland í dag.

Edda lýsir því að ferðin hafi byrjað vel, allir dagar svip­aðir; sofið út, byrjað snemma að fá sér áfengi og farið út að skemmta sér á kvöldin. Líkt og flestir kann­ast við sem farið hafa í slíka ferð. En það var á átt­unda degi sem allt breytt­ist til hins verra.

„Vinkonan mín ætl­aði að fara á hót­elið aftur og ég svona, æji ég nenni ekki alveg að fara á hót­elið strax. Ég vissi að vinur minn væri nýfar­inn á McDonalds sem var svona tvær mín­útur í burtu. Ég ætl­aði bara að hitta hann þar og ég ætl­aði bara að rölta í róleg­heit­unum. Ég hélt að ekk­ert myndi ger­ast á tveggja mín­útna rölti. Áður en ég veit af eru tveir menn stand­andi fyrir aftan mig og grípa í mig og labba bara með mig eitt­hvert. Ég varð alveg mátt­laus og mér leið eins og þeir væru að labba með mig í ein­hvern hálf­tíma en þetta voru örugg­lega fimm mín­útur,“ segir Edda. En hræðslan sem greip hana var svo mikil að hún fraus og kom ekki upp orði.

„Síðan skipt­ust þeir á að halda mér niðri á meðan hinn nauðg­aði mér. Ég veit ekki hversu langan tíma þetta tók, ekki langt, þó að þetta hafi liðið eins og þetta hafi verið margir tímar. Annar þeirra segir, thank you for your time, og þeir skilja eftir pen­inga­seðil og klink inni í mér. Síðan bara fara þeir.“

Edda var skelfingu lostin og þorði ekki að hreyfa sig.

„Ég bara ligg á jörð­inni í örugg­lega tíu mín­útur korter. Síðan ætla ég að labba af stað og finna hót­elið til þess að geta fengið að fara til læknis eða eitt­hvað en ég rata ekk­ert og vissi ekk­ert hvar ég var. Síminn var dauður og ég fatt­aði ekki einu sinni að fara inn á ein­hvern stað til að hringja. Ég labb­aði ábyggi­lega í tutt­ugu mín­útur til þess að reyna finna hót­elið. Svo fann ég bara eitt­hvað hótel og fór þangað. Ég bað þau um að hringja á leigu­bíl og bið leigu­bíl­stjór­ann um að fara með mig á sjúkra­hús. Hann skutlar mér á pínu­litla heilsu­gæslu sem var opin allan sól­ar­hring­inn. Þar hringja þeir á hót­elið og ferða­skrif­stof­una.“

Full­trúar ferða­skrif­stof­unnar og vinir Eddu sem höfðu verið farnir að ótt­ast um hana komu þá til hennar. Henni var ekið með sjúkra­bíl á sjúkra­hús til aðhlynn­ingar og skoð­unar. Því næst fór hún á lög­reglu­stöð, gaf skýrslu og kærði. Það þótti þó ekki lík­legt að menn­irnir myndu finn­ast.

„Þarna var kom­inn dagur og ég var ekki búin að sofa neitt, ekki búin að fara í sturtu og ekki búin að borða. Ég var bara alveg ónýt og löggan að spyrja mig enda­laust. Þeir voru bara að reyna fá eins miklar upp­lýs­ingar og hægt var og ég reyndi að gefa þeim allt sem ég gat.“

Ólíklegt að gerendurnir myndu finnast

Eftir skýrslu­tök­una fór Edda upp á hótel að hvíla sig, en síðar sama dag koma tveir lög­reglu­þjónar þangað og vilja fá hana með sér aftur á lög­reglu­stöð­ina.
Þá höfðu tveir menn sem þóttu grun­sam­legir á skemmti­staðnum kvöldið áður verið hand­teknir.
Reyndust þetta vera menn­irnir sem brutu á Eddu.

„Sama ár, í nóv­em­ber þurfti ég að fara aftur út og bera vitni aftur og gefa skýrslu. Ég gat ekki gert það hérna heima út af því að þetta er svo gam­al­dags kerfi í Grikk­landi. Ég fór sem sagt með tveimur konum frá ferða­skrif­stof­unni Tripical aftur út og ég er mjög þakk­lát þeim fyrir að hafa verið til staðar.“

Edda þurfti að fara út í þriðja sinn, í des­em­ber í fyrra.

„Þar þurfti ég að bera vitni fyrir dómi og þeir sátu einum metra frá mér. Það var hræði­legt. Ég sat í salnum þegar þeir löbbuðu inn og ég fór strax í sjokk þegar þeir komu inn.“

Annar mað­ur­inn fékk fjög­urra og hálfs árs dóm og hinn fjög­urra ára dóm. Sak­sókn­ar­inn var ekki sáttur við nið­ur­stöð­una og krafð­ist harð­ari refs­ingar og er málið því ólokið.

„Mér fannst þetta ekki nægi­lega harður dómur.“

Nauðsynlegt að leita sér aðstoðar

Edda Kristín hefur leitað til Stíga­móta og er hjá sál­fræð­ingi til að vinna úr áfall­inu.
Segir hún að ef þetta hefði gerst á Íslandi myndi hún lík­leg­ast ekki þora út úr húsi af hræðslu við að rekast á ger­end­urna.

„Ég er með áfallastreituröskun, mik­inn kvíða, ég sef mjög illa og hef ekki sofið heila nótt síðan að þetta gerð­ist,“ segir Edda sem fær martraðir um hverja nótt.

„Ég get ekki gengið um ein, eitt­hvað sem ég gerði og hafði gaman af. Núna get ég ekki farið ein út með ruslið nán­ast.“

Edda vill stuðla að því að fólk sem lendi í svona áfalli leiti sér aðstoðar.

„Ég held að það hafi alveg hjálpað að fara strax til lög­reglu og bíða ekki. Ég held að ef ég hefði beðið þá væri ég örugg­lega ekki að tala um þetta við neinn.“

Edda seg­ist reið ger­endum sínum og skilur ekki hvernig mann­eskja getur gert ann­ari mann­eskju svona lagað. Segist hún oft hugsa um árás­ina sem hún varð fyrir og stundum fari hún í það að kenna sjálfri sér um.

„Ég hugsa hluti eins og ég hefði átt að berj­ast á móti, öskra og allt til þess að kom­ast undan þessu. En þeir voru tveir, ég var ein. Þeir voru lík­leg­ast edrú og ég hefði senni­lega ekki kom­ist undan og þetta hefði geta farið verr. Í grunn­inn veit ég að þetta er ekki mér að kenna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi