Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bjarni fór eftir kaffi og hvarf sporlaust

Bjarni fór eftir kaffi og hvarf sporlaust

Þann 25. ágúst árið 1974 fór Bjarni Matthías Sig­urðss­son, til berja skammt frá Hóla­hólum á Snæ­fells­nesi ásamt dóttur sinni og tengda­syni. Þrátt fyrir að vera orð­inn 79 ára gam­all var Bjarni heilsu­hraustur með afbrigðum og hafði stundað úti­vist af kappi alla sína daga. Hann var þó far­inn að tapa minni og grun­aði ætt­ingja Bjarna að hugs­an­lega væri hann kom­inn með elli­glöp á upp­hafs­stigi.

Bjarni var fæddur þann 29. nóv­em­ber 1894 og var búsettur í Ólafsvík. Hann var kvæntur Vigdísi Lydíu Sig­ur­geirs­dóttur og áttu þau sex börn. Vigdís lést árið 1975. Bjarni var tré­smiður, járn­smiður og var vin­sæll og af góðu einu þekktur. Hann rak meðal ann­ars vél­smiðju í Ólafsvík.

Nokkuð var fjallað um málið í sam­tíma­miðlum auk þess sem áhugi á því jókst aftur með umfjöllun í sjón­varps­þætt­inum Manns­hvörf á Stöð 2 árið 2013.

Sást aldrei eftir kaffiförina

Þennan örlaga­ríka ágúst­dag lögðu þre­menn­ingar bíl sínum upp við vega­slóða skammt frá aðal­veg­inum og hófust svo handa við berja­tínsl­una. Bjarni var þá klæddur í blá nank­ins­föt, með köflótta húfu, eða svo kall­aðan six­pens­ara. Hann var með rauða fötu undir berin og berjat­ínu sem hann hafði smíðað sjálfur. Fór svo að þau týndu ber góða stund áður en Bjarni seg­ist ætla aftur til bíls­ins og fá sér kaffi­sopa. Fimmtán mín­útum síðar fóru dóttir hans og tengda­sonur á eftir honum en var þá Bjarna hvergi að finna.

Eftir að hafa svip­ast eftir Bjarna nokkra stund var hvarfið til­kynnt og hófst strax umfangs­mikil leit. Hrúga af berjum mun hafa fund­ist við veg­kant skammt frá þeim stað sem Bjarni sást síð­ast en aldrei fór lög­regla hátt með þær upp­lýs­ingar. Enn­fremur rakti spor­hundur slóð Bjarna frá bif­reið­inni og upp á aðal­veg­inn en þar end­aði slóðin. Það vakti grun­semdir og voru margir þess full­vissir að ein­hvers konar slys hefði hent Bjarna sem endað hefði með sak­næmu athæfi. Sonur Bjarna segir í þátt­unum Manns­hvörf: „Það var leitað það vel á svæð­inu að hann hefði fund­ist ef hann væri þarna”.

Sjáandi gefur sig fram

Hvarf Bjarna tók mjög á fólk og lam­að­ist allt atvinnu­líf í Ólafsvík og víðar á Snæ­fells­nesi vegna þess mikla mann­fjölda sem bauð sig fram við leit­ina. Fóru bátar til að mynda ekki á sjó dag­inn eftir hvarfið og þegar mest var tóku hátt í þrjú þús­und manns þátt í leit­inni. Leitin var gríð­ar­lega umsvifa­mikil og segja má að hver ein­asti sentí­metri hafi verið kann­aður oftar en einu sinni, og oftar en tvisvar, á þeim slóðum sem Bjarni hvarf. Einnig var kölluð til þyrla til aðstoðar en hvergi bólaði á Bjarna.

Eðvarð Arnarson, fyrr­ver­andi lög­reglu­maður í Kópavogi, sagði í þætt­inum að dul­rænn sjá­andi hefði gefið sig fram við lög­reglu og sagt að hann sæi hvernig atburða­rásin hafi verið. „Hann sagði að þessi gamli maður hefði verið að koma úr berjamó og gengur upp á veg­inn. Þar kemur bíll aðvíf­andi og hann verður fyrir bílnum. Bíllinn stoppar og út úr bílnum koma tveir menn. Þeir taka mann­inn og setja hann inn í bíl­inn og keyra áfram. Síðan segir hann að þeir hafi urðað mann­inn í grjót­vegg við eyði­býli og eyði­býlið sé 60 kíló­metra frá þeim stað þar sem hann varð fyrir bílnum.“

Eðvarð og félagi hans fóru í frí­tíma sínum að leita að eyði­býl­inu og fundu Landbrot, eyði­býli sem Eðvarð sagði hafa verið alveg eins og eyði­býlið sem sjá­and­inn lýsti og brá honum nokkuð við. Hvergi var þó neitt þar að finna.

Dularfulla ljósmyndin

Það var síðan sum­arið 2012 að Jón Haukur Jóelsson, raf­virki á níræð­is­aldri, var á ferð um við Vatns­hóla ásamt félaga sínum og hugð­ust þeir skoða helli. Hellir­inn reynd­ist hins vegar lok­aður og leið­sögu­menn haldnir af stað heim á leið. Jón Haukur ákvað þó að smella af ljós­mynd af holu í berg­vegg við hlið hell­is­ins. Þegar heim var komið hlóð Jón Haukur mynd­unum inn í tölvu og brá nokkuð við að sjá skýra manns­mynd af eldri manni með six­pens­ara við hol­una. Hann hringdi strax í ferða­fé­laga sinn sem full­yrti að þeir hefðu verið tveir einir á svæð­inu.

Myndin sem Jón Haukur tók við Vatns­helli.

„Ég þekki engan mann með þessa holn­ingu, og allra síst hef ég tekið mynd af manni sem lítur svona út,“ sagði Jón Haukur síðar í við­talið við Vísi.

Jón dró þó engar álykt­anir, þó vissu­lega hafi honum dottið hvarf Bjarna í hug þegar hann sá mynd­ina. „Ég get ómögu­lega gert mér grein fyrir því hvort um þennan mann er að ræða. Ég hef alltaf verið van­trú­aður á annað líf og þess háttar.“

Aldrei fannst neitt sem skýrt gat hvarfið, hvorki rauða fatan, berjatínan eða nokkuð annað. Gott veður var þennan dag og næstu daga á eftir. Auglýst var eftir Bjarna í fjöl­miðlum bæði á íslensku og ensku og leitin end­ur­tekin vorið 1975 þegar snjóa létti en án árang­urs.

Lík­ams­leifar Bjarna Matth­í­asar hafa aldrei komið í leit­irnar en afkom­endur hans hafa þó aldrei gef­ist upp.

Minn­ing­ar­at­höfn fór fram um Bjarna Matthías Sig­urðs­son frá Ólafs­vík­ur­kirkju 30. nóv­em­ber 1974.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi