Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigríður Andersen er neytandi vikunnar: „Mér finnst óþolandi að þurfa að henda mat“

Sigríður Andersen er neytandi vikunnar: „Mér finnst óþolandi að þurfa að henda mat“

Neytandi vik­unnar að þessu sinni er Sigríður Á. Andersen sem hefur verið þing­maður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn frá árinu 2015. Sigríður var ráð­herra á árunum 2017 til 2019. Hún er lög­fræð­ingur að mennt og áður en hún tók sæti á Alþingi starf­aði hún við lög­mennsku. Sigríður rekur fjög­urra manna fjöl­skyldu og þar að auki býr á heim­il­inu hefð­ar­köttur. Allir heim­il­is­menn stunda dag­lega íþróttir af ein­hverju tagi og tekur neysla þeirra nokkuð mið af því. Þessa dag­ana er Sigríður og flokks­systk­ini hennar í Sjálf­stæð­is­flokknum í Reykja­vík í próf­kjörs­bar­áttu. Sigríður er þar að óska eftir áfram­hald­andi stuðn­ingi í 2. sætið.

 Hve miklu eyðir fjöl­skyldan í mat og aðrar rekstr­ar­vörur heim­il­is­ins á mán­uði og hvar verslar hún helst ?

„Maðurinn minn á hrós skilið fyrir að vera sá sem helst dregur björg í bú, í þeim skiln­ingi að hann tekur oft­ast að sér að kaupa inn í mat­inn. Við förum í versl­an­irnar í nágrenn­inu úti á Granda og Hagkaup á Sel­tjarn­ar­nesi þegar við nýtum skut­lið í íþrótt­irnar. Svo fer ég kannski 2-3 á ári í Costco. Já og ekki má gleyma Mela­búð­inni. Ætli við eyðum ekki rúm­lega 200 þús­und krónum í það sem kalla mætti nauð­synja­vörur.“

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi ?

 „Ég er alltaf að leit­ast við að beita mig og fjöl­skyld­una aðhaldi þegar kemur að mat­ar­inn­kaupum. Við erum frekar íhalds­söm í inn­kaupum sem ég held að dragi úr mat­ar­sóun. Á móti kemur að magninn­kaup finn­ast mér auka mat­ar­sóun, mér finnst óþol­andi að þurfa að henda mat. Eitt ráð hef ég gegn því og það er að halda ísskápnum vel skipu­lögðum og ekki yfir­fullum. Dóttir mín hefur séð um þetta und­an­farið og það spornar vissu­lega gegn því að bakki af kjöti eða fiski gleym­ist undir eggja­bakk­anum t.d.“

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er ?

 „Já, ég hef frá því ég hóf störf eftir skóla lagt mig fram um að leggja fyrir í reglu­legum sparn­aði. Gerði fljót­lega samn­ing um til­tekna fjár­hæð, hún var mjög hóf­leg til að byrja með, sem þá rann í hluta­bréfa­sjóð. Ávöxt­unin af þeim sparn­aði gerði mér kleift að kaupa minn fyrsta, og reyndar eina, bíl. Síðari árin hef ég lagt fyrir á banka­reikn­ing sem er nú reyndar ekki gæfu­legt eins og vext­irnir eru þessa dag­ana. Ég brýni það fyrir unga fólk­inu nærri mér að huga að þessum málum og við sem eldri erum megum ekki gleyma því að end­ur­skoða þessi mál reglu­lega. Þarfir okkar og mark­mið breyt­ast með árunum.“

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu ?

„Nei, ég geri ekki kerf­is­bund­inn verð­sam­an­burð en finn áþreif­an­lega fyrir því að verðið er lægra í „lág­vöru­verðs­versl­un­unum“. Það að ég skuli samt stundum fara í Mela­búð­ina og Hagkaup bendir nú til að ég telji verðið ekki bein­línis ósann­gjarnt. Hærra verð er svo að ein­hverju leyti bætt upp með meiri þjón­ustu og vöru­úr­vali. Hvað af því er álagn­ing og hvað ekki hef ég svo sem ekki til­finn­ingu fyrir. En ég kaupi vissu­lega minna í dýr­ari búð­unum.“

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán ?

„Ég er með verð­tryggt líf­eyr­is­sjóðs­lán vegna hús­næð­is­kaupa sem ég legg áherslu á að borga reglu­lega auka­lega inn á. Fæstir kom­ast af án fast­eigna­lána. En þar ættu flestir að láta við sitja.“

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli ?

 „Já í víðum skiln­ingi. Eins og nefndi fyrr þá finnst mér brýnt að fjöl­skyldan tak­marki mat­ar­sóun. Við reynum að tak­marka að umbúðir og annað sem verður að sorpi komi inn á heim­ilið. Við fáum til dæmis ekki dag­blöð á pappír inn til okkar. Það orkar reyndar svo­lítið tví­mælis þessi miss­erin finnst mér. Ég tel að krakkar hafi gott af því að alast upp við að lestur af pappír og það sé hluti af dag­legri rútínu. Það eru helst dag­blöðin sem gefa færi á því í amstri dags­ins.“

 Annað sem þú vilt taka fram ?

„Tja, úr því mat­vöru­versl­anir hafa svo mjög borið hér á góma þá get ég ekki látið hjá líða að nefna lít­inn draum sem ég á um einmitt þær. Hann er sá að ein­hvern tíman verði opnuð mat­vöru­verslun með gluggum. Að maður geti gengið inn í fal­lega verslun og notið þess að raða græn­meti og morg­un­korni ofan í körf­una og séð til sólar út undan sér. Þegar slík verslun verður opnuð í vest­ur­hluta borg­ar­innar þá lofa ég mann­inum mínum að hann muni losna úr inn­kaupa­leið­öngr­unum.“

 Hvaða mál og mála­flokka telur þú að leggja þurfi meiri áherslu á ?   

 „Ég hef alltaf lagt áherslu á og barist fyrir lækkun skatta. Við náðum gríð­ar­legum árangri í að gera íslenska verslun sam­keppni­hæfa þegar tollar og vöru­gjöld voru afnumin af flestum vörum árið 2014. Við þurfum að gera betur með því að lækka virð­is­auka­skatt sem er hér einn sá hæsti í heim­inum. Við Sjálf­stæð­is­menn höfðum áform um það í síð­ustu rík­is­stjórn. Þessi lækkun ásamt lækkun tekju­skatts þarf að vera í for­gangi í næsta rík­is­stjórn­ar­sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Auk auð­vitað ann­arra frels­is­mála sem ég hvet les­endur til að kynna sér á heima­síðu minni www.sigridur.is.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi