Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásgeir söng sig í gegnum faraldurinn: „Daginn eftir áttum við hjónin bakarí“.

Ásgeir söng sig í gegnum faraldurinn: „Daginn eftir áttum við hjónin bakarí“.
Ásgeir Kristján Guð­munds­son bak­ari og tón­list­ar­maður nýtiir tæki­færin þegar þau gef­ast. Mynd: Guðmundur J´n Sigurðsson.

„Kóvitið var mér merki­leg upp­lifun. Ég var í tveimur störfum, ann­ars vegar mat­reiðslu­maður á veit­inga­stöðum og svo tón­lista­maður á skemmti­stöðum. Þessu var öllu skellt í lás strax og ég varð um leið atvinnu­laus í fyrsta skipti á ævinni,“ segir Ásgeir Kristján Guð­munds­son, bak­ari í Þor­láks­höfn.

Þegar far­ald­ur­inn skall á var Ásgeir í þremur hljóm­sveitum og kór auk þess að vera vin­sæll trú­bador. Hann er lærður mat­reiðslu­meist­ari og hafði dag­lega vinnu af fag­inu. Allt hvarf þetta í einu vet­fangi og óör­yggi atvinnu­leysis tók við og ekk­ert sem benti til að þessi störf myndu lifna við í bráð.

„Það er samt þannig að svona kreppur og óáran eru mér til góðs. Ég ákvað að spila eitt lag á hverjum degi á meðan atvinnu­leysið varði. Kannski myndi ein­hver fá nóg af mér og ráða mig í vinnu til að ég hætti þessu gauli. 124 daga í röð spil­aði ég og söng lag á dag á Facebook. Þá frétti ég út í bæ að bak­ar­inn í Þor­láks­höfn væri að hugsa sér til hreyf­ings. Ég beið ekki boð­anna og hringdi umsvifa­laust til að for­vitn­ast. Þetta kom aðeins flatt á hann og hann sagð­ist ekki geta svarað mér strax, hann þyrfti að hugsa málið og ræða við kon­una um þetta“.

Það er gott að þjóna Þor­láks­hafn­ar­búum

Ásgeir reikn­aði með að bak­ar­inn tæki nokkra daga til umhugs­unar. En hálf­tíma síðar hringdi hann til baka og sagð­ist vera til­bú­inn að selja.

„Ég sagði honum strax við við myndum kaupa og dag­inn eftir áttum við hjónin bak­arí. Hér hef ég haft vinnu síðan og líkar vel. Rekst­ur­inn gengur bæri­lega og við fjöl­skyldan erum ánægð með þetta heilla­spor. Það er gott að þjóna Þor­láks­hafn­ar­búum. Þegar stóra smitið kom upp hérna fyrir skömmu buðum við heim­send­inga­þjón­ustu sem var vel tekið. Við erum ekki með neitt kerfi til að selja á net­inu þannig að við létum reikn­ings­númer fylgja með í pok­unum svo lagði fólk bara inn á okkur. Svona er ein­falt í litlum sam­fé­lögum þar sem hægt er að treysta öllum“.

Kreppur til góðs

Stað­ur­inn ber svip og karakter Ásgeirs, hljóð­færi eru á veggjum og fal­legar ljós­myndir, sem hann hefur tekið, prýða stað­inn. Þá eru prjóna­vörur til á staðnum, við fyrstu sýn var að sjá að þetta væri inn­fluttir list­munir frá Noregi en við athugun kom í ljós að móðir Ásgeirs hefur prjónað þessar flíkur. Þarna er því allt fyrir bæði list­unn­endur sem lystuga. Eins og Ásgeir sagði eru kreppur honum til góðs. Í Hruninu vatt hann kvæði sínu í kross og gerð­ist tón­lista­maður. Hann hafði áður sungið með hljóm­sveitum en ekki leikið á nein hljóð­færi. „Ég var for­söngv­ari í hljóm­sveit þegar Hrunið skall á okkur. Þá varð ekk­ert fyrir okkur að gera þannig að ég var bara að kokka á dag­inn en átti öll kvöld og helgar fríar. Mig hafði lengi langað til að verða trú­bador en kunni ekk­ert á hljóð­færi. Úr varð að ég keypti mér kassagítar og gít­ar­nám­skeið á Netinu. Hringdi í hann Árna vin minn sem var með Útlagann á Flúðum og sagði honum að ég ætl­aði að læra á gítar og ger­ast trú­bador og ég vildi bóka gigg hjá honum eftir fjóra mán­uði til að hafa pressu á mér við gít­ar­námið. Hann hló og bauð mig vel­komin, sagð­ist hafa fulla trú á mér. Eftir þessa fjóra mán­uði spil­aði ég á Útlag­anum og heppn­að­ist vel. Síðan hef ég verið að spila fyrir fólk og gengið vonum framar þar til alheims­veiran sendi mig á spila­hvíld“.

Nú var ekki lengur til set­unnar boðið, þrátt fyrir enn væru eftir nokkrar kleinur, Ásta Kristín Ást­ráðs­dóttir var að ljúka vinnu og kom í bak­aríið til að rétta eig­in­mann­inum hjálp­ar­hönd við fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki þeirra, Café sól. Full­sætur og saddur gekk skrif­ar­inn á braut eftir lystisemdir bragða­galdra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi