Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Berglindi Festival dreymir um að nenna að gosinu einn daginn

Berglindi Festival dreymir um að nenna að gosinu einn daginn

Fjöl­miðla­konan fyndna Berglind Pét­urs­dóttir, betur þekkt sem Berglind Festival, var undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Berg­lindi ættu flestir að vera farnir að þekkja, en und­an­farna vetur hefur hún meðal ann­ars birst viku­lega á skjáum lands­manna í þætti Gísla Marteins Bald­urs­sonar með bráð­fyndin innslög. Annars er Berglind lærður dans­ari, en seg­ist þó lítið hafa dansað eftir námið. Auk vinnu sinnar á RÚV sinnir Berglind einnig starfi kynn­ing­ar­stjóra Lista­há­tíðar í Reykja­vík.
Mannlíf komst að því að Berg­lindi finnst Ármúlinn með fal­leg­ustu stöðum lands­ins, hún er með ein­dæmum tapsár og mesta gleðin í lífi hennar er að eiga skemmti­legt barn.

Berglind Pét­urs­dóttir

Fjöl­skyldu­hagir? Ég er að vinna með hið klass­íska nútíma­fjöl­skyldu­dæmi með alls­konar liði héðan og þaðan sem ég hitti viku og viku í senn.

Menntun/atvinna? Ég útskrif­að­ist sem dans­ari af Sam­tíma­dans­braut Lista­há­skóla Íslands fyrir 10 árum og hef eig­in­lega ekki dansað síðan. Er líka lærður jóga­kenn­ari en í dag starfa ég mest við mark­aðs­setn­ingu á menn­ing­ar­við­burðum og sem sjón­varps­trúður.

Upp­á­halds Sjón­varps­efni? Hinn mikli þáttur á RÚV sem Bogi Ágústs­son leikur í.

Leikari? Ég get ekki gert upp á mili. Allir góðir!!!

Rit­höf­undur? Allir sem leggja það á sig að vera rit­höf­undur á Íslandi eru upp­á­halds rit­höf­und­ur­inn minn.

Bók eða bíó? Bók á virkum og bíó um helgar.

Besti matur? Coocoo’s Nest er besti veit­inga­staður á Íslandi, svo er ég reyndar alltaf mjög hrifin af matnum í IKEA.

Kók eða Pepsí? Jájá, endi­lega. Ég hugsa svo oft um það þegar for­eldrar mínir blönd­uðu kók til helm­inga við vatn þegar ég var lítið barn að suða um kók. Mér fannst það samt algjört æði. Alltaf gaman að fá smá kók.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Ármúli er fal­leg­asta gata lands­ins, sér­stak­lega ef þú hefur áhuga á fyr­ir­tækja­merkjum lít­illa íslenskra fyr­ir­tækja.

Hvað er skemmti­legt? Elda, borða, drekka og sofa lengur.

Hvað er leið­in­legt? Ganga frá og gera skatt­skýrsl­una.

Hvaða flokkur? 6. flokkur karla í knatt­spyrnu­deild Vals

Hvaða skemmti­staður? Happy Hour á Vín­stúkunni og vín­glas eftir leik­hús á Mikka Ref.

Kostir? Ég er sæt­ust og best.

Lestir? Ég er fer­lega tapsár í spilum og skamm­ast mín geð­veikt fyrir það. Svo vand­ræða­legt að fá tár í augun þegar maður tapar í ólsen. Er að reyna að vinna í mínum málum í sam­starfi við son minn sem er nákvæm­lega eins.

Hver er fynd­inn? Jón Gnarr.

Hver er leið­in­legur? Mér finnst allir oft­ast bara geð­veikt fínir. Nema sumir stundum.

Trúir þú á drauga? Ég er stundum eins og draug­ur­inn mikli dag­inn eftir að ég drekk of mörg vín­glös. Það er alvöru draugur, svo að já.

Stærsta augna­blikið? Er ennþá að bíða eftir því. Hef til dæmis bara einu sinni unnið til verð­launa, það var fyrir snyrti­leg­asta her­bergið á Reykjum í 6. bekk. Hér er pláss fyrir umbætur af minni hálfu.

Mestu von­brigðin? Að flytja að heiman og fatta að lífið snýst svona 95% um að ganga frá í eld­hús­inu.

Hver er draum­ur­inn? Að nenna að fara að skoða eld­gosið einn dag­inn.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Ég náði 60 daga str­eak í Duolingo í morgun, mjög ánægð með það og mínar fram­farir í mínu sjálf­stæða frönsku­námi.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Ef maður er ekki með nein mark­mið verður maður aldrei fyrir von­brigðum með sjálfan sig og þess vegna er ég alltaf ánægð með mig og minn frama.

Sorg­leg­asta stundin? Þegar ég mætti með son minn í leik­skól­ann og öll börnin voru að tala um hvað þau höfðu fengið í skó­inn en jóla­sveinn­inn hafði gleymt að koma til okkar. :’(

Mesta gleðin? Að eiga skemmti­legt barn.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að vera góður við börn og dýr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi