Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sunna doktor í lyfjafræði látin aðeins 35 ára: „Hjartað mitt græt­ur að hafa þig ekki leng­ur“

Sunna doktor í lyfjafræði látin aðeins 35 ára: „Hjartað mitt græt­ur að hafa þig ekki leng­ur“

Sunna Jó­hanns­dótt­ir, doktor í lyfja­fræði, lést í faðmi fjöl­skyld­unnar 25. maí síð­ast­lið­inn eftir erf­iða og snarpa bar­áttu við hvít­blæði. Hún var aðeins 35 ára og lætur eftir sig eig­in­mann og tveggja ára gamla dóttur.

Sunna fædd­ist í Reykja­vík 6. júlí 1985 og ólst að stærst­um hluta upp í Grafar­vogi. Hún stund­aði nám við Mennta­skól­ann við Sund. Síðar hóf Sunna nám í lyfja­fræði við Há­skóla Íslands og lauk B.Sc. og M.Sc. gráðum. Strax að loknu masters­námi í lyfja­fræði fékk Sunna tæki­færi til að fara í rann­sókna­tengt dokt­ors­nám við Há­skóla Íslands. Sunna sinnti stunda­kennslu við lyfja­fræði­deild HÍ og starf­aði við rann­sóknir og þróun augn­lyfja.

Blessuð sé minn­ing Sunnu.

Árið 2011 greind­ist Sunna með hvít­blæði og við tók tveggja ára lyfja­með­ferð. Árið 2013 greind­ist hún aft­ur með sama sjúk­dóm og fór þá í bein­mergs­skipti til Sví­þjóðar. Eft­ir að Sunna náði full­um bata fékk hún tæp­lega átta sjúk­dóms­laus ár með Ívari eig­in­manni sín­um og ungri dóttur þeirra.

Sunna bjó alla tíð yfir ein­stök­um bar­áttu­krafti og lét veik­ind­in aldrei aftra sér. Henni er lýst sem hvers manns hug­ljúfi og fjöl­margir fara um hana fögrum orðum í minn­ing­ar­greinum Morg­un­blaðs­ins í dag. Eig­in­maður hennar og dóttir eru þar á meðal. „Þú varst heims­ins besta mamma og eig­in­kona. Þú varst besti vin­ur sem ég hef nokk­urn tím­ann átt. Ég kunni ekki neitt, en núna kann ég smá. Þú þroskaðir mig og kennd­ir mér á lífið. Mér þykir svo vænt um að við höf­um fengið að vera fjöl­skylda. Meira að segja þenn­an hræði­leg­asta dag af öll­um dög­um, dag­inn sem þú fórst, þakk­aði ég fyr­ir ást­ina og fann bjart­asta ljósið í myrkr­inu sem hafði gleypt mig. Það er ekki hægt að elska meira, þú verður alltaf hjá okk­ur.“

Eldri systir Sunnu minn­ist líka ynd­is­legrar systur sinnar í minn­ing­ar­grein. Þar kemur hún meðal ann­ars inn á hversu erfið veik­indin hafi þjappað fjöl­skyld­unni saman. „Á þess­um tíma komu góðu mann­kost­ir þínir svo vel í ljós. Bar­áttu­andi þinn var ein­stak­ur, gleðin þín, jarð­teng­ing og jafn­vægið, og óend­an­leg­ur styrk­ur þinn og hug­rekki. Þú tókst sár­um ör­lög­um þínum af því­líku æðru­leysi, fórst aldrei í flótta, af­neit­un eða bit­urð. Lést sjúk­dóm­inn aldrei sigra þig. Meira að segja þegar þú tókst síð­asta and­ar­drátt­inn í faðmi fjöl­skyld­unn­ar varstu ekki sigruð. Áttir fullt eft­ir, það var bara mennsk­ur kropp­ur­inn og lækna­vís­ind­in sem gátu ekki meira,“ segir systirin og bætir við:

„Elsku Sunn­an mín. Við sem ætl­uðum að verða gaml­ar sam­an, búa hlið við hlið og ala dæt­ur okk­ar upp sem syst­ur. Ég lofa því að heiðra það og gera þín góðu gildi og verk að leið­ar­ljósi í gegn­um líf okk­ar allra. Ég elska þig alltaf, af öllu hjarta. Ekki hægt að elska meira.“

Vinkona Sunnu á erfitt með að koma sorg­inni í orð í minn­inga­grein. Glaðlynd­ari og greind­ari konu en Sunnu sé van­fundin. „Hjartað mitt græt­ur yfir því að hafa þig ekki leng­ur hjá mér. Sorg­in skil­ur eft­ir sár í hjart­anu og ég get ekki skilið hversu ósann­gjarnt það er að þurfa að kveðja sól­ina í lífi mínu. Ég á eft­ir að sakna þín meira en orð geta tjáð. Ég elska þig alltaf og sendi all­an minn styrk til fjöl­skyld­unn­ar þinn­ar.“

Útför Sunnu fer fram frá Frí­kirkj­unni í Reykja­vík í dag klukk­an 15. At­höfn­in er öll­um opin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi