Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hleranir úr Hótel Helvíti í stærsta dópmálinu: Sveddi tönn dæmdur til að greiða 20 milljónir:

Hleranir úr Hótel Helvíti í stærsta dópmálinu: Sveddi tönn dæmdur til að greiða 20 milljónir:

Þau hafa verið nokkur málin sem hafa fengið tit­il­inn „Stóra fíkni­efna­málið” en það  þekktasta er frá því í maí­mán­uði árið 1999. Það varð einnig þekkt undir nafnin „Sam­skips­málið“ enda voru frakt­skip skipa­fé­lags­ins notuð við eit­ur­lyfja­smygl.

Eftir að lög­regla fékk ábend­ingu um smyglið vafði málið hratt upp á sig, lenti inn á borði Alþjóð­lög­regl­unnar, Interpol, og end­aði með því að nítján ein­stak­lingar voru ákærðir og fengu tíu þeirra lengri dóma en tvo ár. Aðrir fengu styttri dóma. Aldrei hafði neitt þessu líkt gerst í íslenskri rétt­ar­sögu enda um umfangs­mesta smygl­mál á eit­ur­lyfjum sem um getur hér á landi.

Dópið í sjónvörpunum

Gunn­laugur Ingi­bergs­son, fæddur 1972, var 19 ára þegar hann hóf sum­ar­vinnu hjá Sam­skipum, og var hann þá búsettur í Kaup­manna­höfn. Hann starf­aði við gáma­flutn­ing á milli Dan­merkur og Íslands og nýtti sér aðstöðu sína hjá félag­inu til smygls­ins. Flutti hann efnin meðal ann­ars í raf­tækjum. Brot hans þóttu stór­felld og skipu­lögð og var sannað að hann hefði í heild­ina flutt inn 45 kíló af kanna­bis í 16 ferðum á tíma­bil­inu 1997 til 1999. Hann var einn að verki í fyrstu þremur send­ing­unum en var í sam­starfi við einn með­á­kærða í hinum. Einnig flutti hann til lands­ins 250 töflur af MDMA og 100 grömm af amfetamíni árið 1999.

Meðal kaup­enda efn­anna voru félag­arnir og jafn­aldrar Gunn­laugs, þeir Ólafur Ágúst Ægisson, Sverrir Þór Gunn­ars­son og Júlíus Krist­ó­fer Egg­erts­son. Bæði neyttu þeir efn­anna og dreifðu.

Hótel Helvíti

Lögregla þekkti til mann­anna og tók fljót­lega eftir að þeir fóru að ber­ast mjög á, keyptu dýra hluti og jafn­vel íbúðir. Lögreglu fannst til­efni til síma­hler­ana og hófu þær í her­bergi sem fljót­lega fékk nafnið Hótel Helvíti.

Að því kom að lög­reglan taldi sig hafa nógar sann­anir til að hús­leitar að heim­ili Ólafs. Við leit fund­ust fíkni­efni svo að segja um alla íbúð­ina, inni í skápum, á hilum, undir rúmum, á og undir sófum og stólum. Íbúðin var gjör­sam­lega und­ir­lögð fíkni­efnum. Þre­menn­ing­arnar voru umsvifa­laust hand­teknir en Gunn­laugur var enn í Danmörku. Haft var sam­band við lög­gæs­yf­ir­völd þar í landi sem fundu Gunnlaug innan nokk­urra daga og sendu umsvifa­laust til Íslands.

Fljót­lega tókst lög­reglu að raða saman atburða­rásinni og finna þá sem höfðu staðið að smygli, dreif­ingu og sölu efn­anna. Fjölgaði hratt á nafna­list­anum.

Handjárn og haglabyssur

Þjóðin var slegin óhug þegar fréttir bár­ust af mál­inu sem sýndi fram á mun meira skipu­lag og hörku innan fíkni­efna­heims­ins en áður hafði verið talið. Var einnig um eina stærstu aðgerð fíkni­efna­lög­reglu frá upp­hafi enda var ekki ein­ungis um inn­flutn­ing frá Danmörku að ræða, heldur einnig Hollandi og Banda­ríkj­unum. Fólki var enn­fremur brugðið við fréttir um að lagt hald á vopn; meðal ann­ars hand­járn, hagla­byssur, loft­riffla og raf­lost­byssur.

Nítján manns voru á end­anum kærðir og lagt hald á 24 kíló af hassi, 4 kíló af amfetamíni, 1 kíló af kóka­íni og 6000 e-töflur. Einnig var lagt hald á 25 millj­ónir króna í reiðufé sem Sverrir Þór hafði undir höndum. Sverrir var einnig fæddur 1972, átti langan brota­feril að baki frá ung­lings­árum, þótti huldu­maður í und­ir­heimum fíkni­efna og gekk undir nafn­inu Sveddi tönn vegna tann­lýtis.

Fimmtán dæmdir fyrir dópið

Í júní árið 2000 féllu svo þyngstu dómar sem fallið hafa hér á landi í fíkni­efna­máli en af þeim nítján sem kærðir voru, voru fjórir sýkn­aðir.

Ólafur Ágúst Ægisson fékk þyngsta fang­els­is­dóm­inn, 9 ár, og einnig var fé í hans vörslu, 5,2 millj­ónir króna, gert upp­tækt. Um er að ræða þyngsta dóm sem kveð­inn hefur verið upp í fíkni­efna­máli hér á landi. Sverrir Þór Gunn­ars­son fékk næst­þyngsta dóm­inn, sjö og hálfs árs fang­elsi, og gert var upp­tækt fé, 21 milljón.

Þeir sem hlutu tveggja ára fang­els­is­dóm eða lengri voru Júlíus Krist­ó­fer Egg­erts­son, 5 ár og sex mán­uði, Gunn­laugur Ingi­bergs­son, 4 ár og sex mán­uði, Rúnar Ben Maits­land, 4 ár, Guð­mundur Ragn­ars­son 3 ár og sex mán­uði, Valgarð Heiðar Kjart­ans­son, 3 ára fang­elsi, Ingvar Árni Ingv­ars­son, 2 ár og sex mán­uði, Herbjörn Sig­mars­son, 2 ár og sex mán­uði, og Haraldur Ægir Ægisson, 2 ár. Einn sak­born­ingur var dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi, einn í 15 mán­aða fang­elsi, einn í 10 mán­aða fang­elsi og loks fékk einn tveggja mán­aða skil­orðs­bund­inn fang­els­is­dóm.

Enn­fremur voru ákærðir látnir sækja upp­töku á fé, sam­tals 52 millj­ónum sem taldar voru ágóði fíkni­efna­við­skipt­anna. Þar af var Sverri Þór gert að sæta upp­töku á 21 milljón, Gunn­laugi Ingi­bergs­syni 11,9 millj­ónum, Júlíusi 8 millj­ónum, Ólafi rúm­lega 5 millj­ónum, Herbirni 4,7 millj­ónum, Guðmundi 970 þús­und króna  og Rúnari 600 þús­und króna.

Óþægileg vakning

Á þeim rúmu tveimur ára­tugum sem liðið hafa frá mál­inu hefur ekki komið upp stærra fíkni­efna­mál og var það þjóð­inni óþægi­leg vakn­ing um hversu skipu­lögð glæp­a­starf­semi væri í kringum hinn íslenska fíkni­efna­heim.

Margir hverjir þeir sem dæmdir voru sátu af sér sinn dóm og hófu nýtt líf í kjöl­farið og hefur sumum þeirra vegnað vel í líf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi