Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þetta segir fólkið um Faraldurinn: „Þetta er búið, let‘s have fun“

Þetta segir fólkið um Faraldurinn: „Þetta er búið, let‘s have fun“

Fyrir rúmu ári síðan réðst kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn inn fyrir land­steina okkar Íslend­inga. Er óhætt að segja að far­ald­ur­inn hafi með einum eða öðrum hætti haft áhrif á hvert ein­asta manns­barn lands­ins og eflaust heims­ins.

Heims­far­ald­ur­inn hefur verið eitt aðal­um­ræðu­efni manna og hefur margur skoð­anir á honum, við­bragðs­að­gerðum stjórn­valda í kjöl­far komu hans til lands­ins, sem og öðru sem far­ald­ur­inn snertir.

Mannlíf gerði sér ferð í Kringl­una á dög­unum og fékk nokkra sem þar voru á ferð til að svara þremur Covid-spurn­ingum.

Sigríður Þóra Inga­dóttir. Mynd/ Róbert Reyn­is­son

Sigríður Þóra Inga­dóttir
79 ára
Elli­líf­eyr­is­þegi

Hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn haft áhrif á þig?
Já og nei því ég get ekki farið til sól­ar­landa og ég á börn úti á landi, í Vest­manna­eyjum.
En að öðru leyti ekki, ég á bíl og ég fer mikið út að keyra, ég fékk útrás í því og að sjá fólk.

Hefur þú skoðun á því til hvaða aðgerða hefði átt að grípa á landa­mær­unum?
Mér fannst að hefði átt að loka landa­mær­unum. Auðvitað er maður alltaf að vona að þetta sé síð­asti dagur.

Hvað heldur þú að komi fyrst upp í huga þér eftir nokkur ár þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn verður nefndur?
Dásam­legt að þetta sé búið.

Þóra Sum­ar­liða­dóttir. Mynd/ Róbert Reyn­is­son.

Þóra Sum­ar­liða­dóttir
80 ára
Elli­líf­eyr­is­þegi

Hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn haft áhrif á þig?
Covid hefur ekki haft sér­stak­lega mikil áhrif á mig, bara eins og fyrir alla aðra, verið með grímu.
En það er bara að lifa líf­inu.

Hefur þú skoðun á því til hvaða aðgerða hefði átt að grípa á landa­mær­unum?
Ég er ekki viss, í byrjun átti að loka alveg landa­mær­unum. En ég held að eigi nú að opna svo­lítið núna, það er alveg eins gott að fólk fái vinnu og verði úti.

Hvað heldur þú að komi fyrst upp í huga þér eftir nokkur ár þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn verður nefndur?
Þetta er búið, let‘s have fun.

Bryn­hildur Anna Ein­ars­dóttir. Mynd/ Róbert Reyn­is­son.

Bryn­hildur Anna Ein­ars­dóttir
31 árs
Starfs­maður A4

Hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn haft áhrif á þig?
Bara eins og á hvern annan mann, grímu­skylda, ekk­ert að gera og já ég hef ekk­ert orðið per­sónu­lega fyrir áhrifum af þessu.

Hefur þú skoðun á því til hvaða aðgerða hefði átt að grípa á landa­mær­unum?
Já og nei, ég eig­in­lega hef ekki neina skoðun á því.

Hvað heldur þú að komi fyrst upp í huga þér eftir nokkur ár þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn verður nefndur?
Ömurlegt. Leið­in­legir tímar, satt að segja sko.

Sævar Örn Gunn­ars­son. Mynd/ Róbert Reyn­is­son.

Sævar Örn Gunn­ars­son
34 ára
Atvinnu­laus

Hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn haft áhrif á þig?
Já, já ég hef ein­angr­ast og þurft að fara í sótt­kví og svona.
Ég flakk­aði svo­lítið á milli útlanda og þurfti allaf að fara í sótt­kví, held ég hafi farið þrisvar.

Hefur þú skoðun á því til hvaða aðgerða hefði átt að grípa á landa­mær­unum?
Nei, mér finnst bara fínt að stjórna umferð­inni eins og verið er að gera.

Hvað heldur þú að komi fyrst upp í huga þér eftir nokkur ár þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn verður nefndur?
Ró. Það er búið að vera voða rólegt.

Hermann Helgason. Mynd/ Róbert Reyn­is­son.

Hermann Helgason
46 ára
Fram­kvæmda­stjóri S4S

Hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn haft áhrif á þig?
Nei, ekki enn sem komið er. Ekki nema kannski bara vinn­unnar vegna. En ekki per­sónu­lega, veik­indi eða neitt svo­leiðis.

Hefur þú skoðun á því til hvaða aðgerða hefði átt að grípa á landa­mær­unum?
Ég er ánægður með þær aðgerðir sem hafa verið. Bara að þeim hafi verið nán­ast lokað, en það hefði bara mátt gera það fyrr. En ég held við séum komin lang­leið­ina með þetta og því óhætt að fara opna þetta jafnt og þétt eins og verið er að gera.

Hvað heldur þú að komi fyrst upp í huga þér eftir nokkur ár þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn verður nefndur?
Ég veit það ekki alveg, það poppar ekk­ert sér­stakt upp í hug­ann á mér, hvaða orð það verður. Ég held það verði margt jákvætt og auð­vitað eitt­hvað nei­kvætt, fer bara eftir því hvernig þetta hittir á fólk, atvinnu­lega séð og svo­leiðis.

Páll Scheving. Mynd/ Róbert Reyn­is­son.

Páll Scheving
58 ára
Verk­smiðju­stjóri

Hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn haft áhrif á þig?
Já bara eins og alla held ég. En ég hef ekki orðið veikur alla­veg­ana og hvorki farið í sótt­kví né skimun.

Hefur þú skoðun á því til hvaða aðgerða hefði átt að grípa á landa­mær­unum?
Ég held að það þurfi að fara bara mjög vel um landa­mærin, hugsa þetta vel og vera skyn­söm í því. Ég held við þurfum að opna þetta hægt og rólega bara eins og menn eru að gera núna.

Hvað heldur þú að komi fyrst upp í huga þér eftir nokkur ár þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn verður nefndur?
Skrítið. Skrítnir tímar.

Ingi­björg Austmann. Mynd/ Róbert Reyn­is­son.

Ingi­björg Austmann
29 ára
Starfs­maður Elko

Hefur kór­ónu­veiru-far­ald­ur­inn haft áhrif á þig?
Bara eins og alla aðra, geta ekki gert eitt­hvað, djammað og farið til útlanda.

Hefur þú skoðun á því til hvaða aðgerða hefði átt að grípa á landa­mær­unum?
Mér finnst að landa­mærin ættu að vera lokuð.

Hvað heldur þú að komi fyrst upp í huga þér eftir nokkur ár þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn verður nefndur?
Spritt.

Brynjólfur Þór Guð­munds­son. Mynd/ Róbert Reyn­is­son.

Brynjólfur Þór Guð­munds­son
24 ára
Starfs­maður Elko

Hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn haft áhrif á þig?
Maður getur ekki djammað eða neitt þannig eða farið til útlanda þannig að þetta er búið að vera svo­lítið svona jaa svona erfitt, öðru­vísi ár alla­veg­ana heldur en önnur hafa verið. Leið­in­legt að geta ekki gert hluti sem maður var vanur að gera áður.

Hefur þú skoðun á því til hvaða aðgerða hefði átt að grípa á landa­mær­unum?
Mér finnst að landa­mærin ættu að vera lokuð.

Hvað heldur þú að komi fyrst upp í huga þér eftir nokkur ár þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn verður nefndur?
Grímur og spritt.

Sigurður Jökull Ólafsson. Mynd/ Róbert Reyn­is­son.

Sigurður Jökull Ólafsson
47 ára
Náms­maður

Hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn haft áhrif á þig?
Ég veit það ekki, það er bara eins og alla aðra.
Það er skárra hérna en ann­ars staðar, við fluttum til Íslands fyrir ári síðan og erum eig­in­lega þakk­lát fyrir að hafa verið þó hérna en ekki úti í Kaup­manna­höfn. Ástandið er búið að vera skelfi­legt í Kaup­manna­höfn. Þannig að þetta er kannski ekki gott, en betra en ann­ars staðar.

Hefur þú skoðun á því til hvaða aðgerða hefði átt að grípa á landa­mær­unum?
Ég held að þau eigi að vera eins og þau eru núna vegna þess að það er ákveðið „sell“ í því að það sé öruggt, þetta er svona „safe haven“ þannig það verður að passa það eftir fremsta megni.
Ég kem úr ferða­brans­anum, ég vann fyrir risa­stóran ferða­heild­sala í Hong Kong sem bara lifði á þessum massa túrisma. Ef við höldum þessu svona frekar stíft eins og núna að þá kemur það fólk sem vill leggja þetta á sig og við þurfum ekki nema kannski milljón ferða­manna eða eitt­hvað svo­leiðis. Og það er til nóg af því fólki sem er til­búið að leggja þetta á sig.
Fólk hefur ekk­ert ferð­ast núna í langan tíma og þótt það kosti fjóra, fimm daga og þú hefur þá frelsi í tvær vikur eftir á, þá er fólk til­búið að leggja það á sig og borga fyrir það.
Þetta er svona eins og „oasis“ eða vin og við verðum að halda því og megum alls ekki gefa eftir því að það sem fólk fattar ekki á Íslandi er að fólk úti í heimi það er hrætt og það er að leita í eitt­hvað öryggi og ef við erum með þetta öryggi hér þá mun fólkið koma. Það er til nóg af fólki sem er til í að leggja allt á sig og til­búið að borga fyrir það.

Hvað heldur þú að komi fyrst upp í huga þér eftir nokkur ár þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn verður nefndur?
Ég veit það ekki, grímur og eitt­hvað svona. Já og sökn­uður, ég held að það sem fólk átt­aði sig á í þessu er að það er fullt af hlutum sem við sökn­uðum; hitt­ast, fara í Kringl­una, geta ferð­ast og svona almennt frelsi.

Það mun breyt­ast hérna, ég er búinn að vinna í mörg ár fyrir fyr­ir­tæki frá Asíu og og normið þar var nátt­úru­lega allt öðru­vísi. Þeir lærðu þetta fyrir tutt­ugu árum síðan, að bera grímur og þessi hegðun sem við höfum til­einkað okkur í Covid.
Bara sem dæmi, fyrir ári síðan var ég með stóran kúnna frá Tævan og þeir voru að und­ir­búa stórt dæmi fyrir Toyota í Asíu. Þetta var bara rétt áður en Covid skall á. Viku seinna þá var bara lockdown í Asíu og þeir í Tævan fóru bara inn í munstur sem þeir voru með áður. Og svo bara hélt lífið þar áfram og þetta var ekki svona mikið sjokk fyrir þau. Þannig að það sem mun ger­ast hérna í hinum vest­ræna heimi er að þetta er bara nýtt „toolbox“ sem við erum að fá. Þannig að ef þetta kemur aftur, sem mun lík­leg­ast ger­ast ein­hvern tím­ann, þá förum við bara í verk­færa­kass­ann, já okey þá gerum við þetta bara svona við þurfum að spritta og vera með grímur, skima og eitt­hvað svo­leiðis. Þannig verður gamli Covidtíminn normal á ný og engum mun vaxa það í augum.

Lutgarde Dejonghe. Mynd/ Róbert Reyn­is­son.

Lutgarde Dejonghe
64 ára
Hjúkr­un­ar­fræð­ingur

Hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn haft áhrif á þig?
Ég er búin að vera í veik­inda­frí frá síð­asta sumri og ég hef bara haldið mig heima að mestu.
Ég bý fyrir norðan á Sauð­ár­króki. En ég get ekki sagt að mér líði óör­uggri og alls ekki hérna fyrir sunnan heldur. Ég kem nú ekki oft suður en mér finnst fólk sýna mjög mikið til­lit til hvors ann­ars.
En þetta er auð­vitað allt öðru­vísi líf, maður fer ekki neitt.
Það er mjög gott að vera hérna á Íslandi það er hræði­legt ástand í Belgíu, ég á þar mömmu sem er 96 ára gömul sem ég fer ekki að heim­sækja fyrr en ég er full­bólu­sett.
Ég er hund­rað pró­sent mikið örugg­ari hérna og Íslend­ingar standa meira saman og virða regl­urnar. Í Belgíu er þetta bara eitt kaos, þannig áfram Ísland.

Hefur þú skoðun á því til hvaða aðgerða hefði átt að grípa á landa­mær­unum?
Mér finnst að eigi áfram að fylgj­ast rosa­lega vel með landa­mær­unum, í allt sumar helst. Fólk sem kemur að utan er svo óábyrgt að það er ótrú­legt. Þannig að hund­rað pró­sent að halda áfram skimun og sótt­kví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi