Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúarofsi ungmenna í Vestmannaeyjum – Brenndu alla geisladiska Kiss og Madonnu

Trúarofsi ungmenna í Vestmannaeyjum – Brenndu alla geisladiska Kiss og Madonnu

Árið 1995 urðu und­ar­legir atburður í Vest­manna­eyjum, reyndar svo ein­stakir, að hvergi finn­ast heim­ildir um sam­bæri­lega hjarð­hegðun á Íslandi, hvorki fyrr né síðar. Svo virð­ist sem að um tveir tugir ung­menna, flest á aldr­inum 18 til 20 ára, hafði gengið í Hvíta­sunnu­kirkj­una um ára­mótin það árið.  Söfnð­ur­inn var ekki stór, aðeins um hund­rað sálir.

Minnti óþægileg á nasista

Ung­mennin mun aftur á móti hafa fyllst kristnum trú­ar­ofsa í kjöl­far inn­göng­unnar. Ofsinn lýsti sér í hatri sem beind­ist einkum að bókum og geisla­diskum sem hinum guð­hræddu ung­mennum virt­ist hafa vera í sér­stakri nöp við.

Andlegur leið­togi þeirra, Snorri Ósk­ars­son, betur kenndur við söfn­uð­inn Betel í Vest­manna­eyjum, var hinn kát­asti með unga fólkið.

„Andi guðs snerti við fólk­inu. Við vöknum til með­vit­undar um að við eigum lif­andi trú og Jesú Kristur sé frels­ari okkar. Ekki er hægt að segja að hingað sæki einn hópur í þjóð­fé­lag­inu fremur en annar. Allir upp­lifa hins vegar drott­inn og frels­is­kraft hans. Hug­ar­fars­breyt­ing verður og áhug­inn á Bibl­í­unni vaknar. Biblían færir heim mynd­ug­leika, valdið, og end­ur­hæf­ing hefst,“ sagði Snorri í við­tali við Morg­un­blaðið á sínum tíma.

Reisti unga fólkið veg­legan bál­köst og hófst handa við að brenna bækur og geisldiska sem þóttu inni­halda óæski­lega og óguð­lega tón­list og texta.

Mörgum var brugðið við gjörn­ing­inn sem þótti minna óþægi­lega á bóka­brennur nas­ista á sínum tíma.

Kiss og Madonna

Meðal þess sem ung­menn­unum var sér­lega illa við var „djöf­ul­leg” tón­list, sér­stak­lega virð­ist tón­list banda­rísku rokksveit­ar­innar Kiss hafa angrað unga fólkið en voru geisla­diskar tón­list­ar­innar með því fyrsta sem fuðr­aði upp á bál­inu í Eyjum. Geisla­diskar hljóm­sveit­ar­innar Iron Maiden fengu sömu örlög svo og tón­list popp­gyðj­una Madonnu, svo fátt eitt sé nefnt.

Snorri í Betel.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins frá 1995 segir að fimm til sex hund­ruð geisla­diskar að verð­mæti allt að einni milljón króna hafi verið brenndir í einni slíkri brennu á gömlu sorp­haug­unum í Vest­manna­eyjum það sum­arið. Fleiri slíkar brennur voru haldnar í Vest­manna­eyjum þetta árið og enn aðrir safn­ar­með­limir brenndu „ókristi­legt” efni í ein­rúmi.

Skólameistara leist ekki á blikuna

Skóla­meist­ara Fram­halds­skól­ans í Vest­manna­eyjum, Ólafi Hreini Sig­ur­jóns­synim leist ekki á blik­una og kvaðst vera hræddur við hvers konar múgæs­ingu og ofstæki. Ólafur Hreinn sagði að áhug­inn á Bet­el­söfn­uð­inum hefði ekki farið fram hjá sér og ein­hver hópur nem­enda í skól­anum og ann­ara ung­menna hefði gengið til liðs við söfn­uðum á síð­ustu miss­erum. Úti­lok­aði skóla­meista­irnn ekki að um tísku­sveiflu væri að ræða.  „Mér finnst líka að fólk sem gefur sig út fyrir að vera fremst í flokki varð­andi kristni megi ekki gleyma því meg­in­stefi kristn­innar að umburð­ar­lyndi og rétt­sýni ráði ferð­inni,“ sagði Ólafur Hreinn og tók fram að skóla­menn hlytu ætíð að vera gagn­rýnir á bækur og aðrir slíkir miðlar væru brenndir.

Djöflarokk sem hvetur til kynvillu

Snorri var ekki á sama máli og skóla­meist­ar­inn og sagði mikið af væri til af djöfla- og dauðarokki sem hvetti til sið­leysis, meða ann­ars „kyn­villu og tví­kynja sam­skipta”.

Þegar að ung­ling­arnir átt­uðu sig svo á því að text­arnir væru í algjörri and­stöðu við Bibl­í­unna gætu þeir ekki lengur notið tón­list­ar­innar. Tónlist sem talin var gagna gegn boð­orð­unum á ein­hvern hátt, Bibl­í­unni eða „kristnu sið­ferði” var húrrað á eld­inn.

„Þeir fengu hug­mynd­ina að því að brenna disk­ana eftir að hafa lesið í Post­ula­sögu 19 að söfn­uð­ur­inn hefði brennt kuklbækur,” sagði Snorri við Morg­un­blaðið.

Ógeðfellt og hættulegt

Brennan var víða for­dæmd í fjöl­miðlum. Í leið­ara Alþýðu­blaðs­ins, sem greindi fyrst frá brenn­unni, stóð: „Trú­ar­of­stæki er bæði ógeð­fellt og hættu­legt. Þeir menn sem telja sig erind­reka almætt­is­ins, pró­kúru­hafa guðs og sér­fræð­inga í sann­leik­anum hafa leitt ómældar hörm­ungar yfir mann­kynið. Slíkir menn sá frækornum fyr­ir­litn­ingar í frjóa jörð fáfræð­innar.

Upp­skeran er þröng­sýni og dóm­harka.“

Samkynhneygð ávísun á helvíti

Síðar dró Snorri nokkuð um atburð­inum og sagði hann hafa verið slitin úr sam­hengi. „Í var þetta einka­stund ung­menn­anna frekar en ein­hver skila­boð út á við”.

Snorri hélt ótrauður áfram að útbreiða sinn skiln­ing á inn­haldi bibl­í­unnar í gegnum árin og var í júlí árið 2012 vikið úr starfi sem grunn­skóla­kenn­ari í Brekku­skóla á Akureyri. Ástæða upp­sagnar hans voru umdeildar blogg­færslur Snorra þar sem hann skrif­aði um sam­kyn­hneigð út frá sínu strang­kristna hug­ar­fari. Var að mati bæj­ar­yf­ir­valda ekki talið eðli­legt að kenn­ari grunn­skóla­barna léti uppi skoð­anir sínar á þann hátt að sam­kyn­hneigð væri synd og þeirra biði ekk­ert nema hel­víti.

Kærði hann bæinn vegna ólög­legrar upp­sagnar og var hún dæmd ólög­mæt, bæði í hér­aðs­dómi og Hæsta­rétti.

Fékk Snorri sex og hálfa milljón í skaða­bætur árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi