Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hampur ekki lengur afurð „illvígrar hassplöntu“: „Loksins má ég selja olíuna mína“

Hampur ekki lengur afurð „illvígrar hassplöntu“: „Loksins má ég selja olíuna mína“
Kristinn Sæmunds­son, hamp­bóndi og nátt­úru­unn­andi á Suð­ur­landi er einn þeirra sem fagnar breyttri reglu­gerð sem hann segir löngu tíma­bæra

Hamp­bændur fagna nú eftir að Alþingi sam­þykkti breyt­inga­til­lögu heil­brigð­is­ráð­herra á loka­degi þings í lok síð­ustu viku. Iðn­að­ar­hampur verður á borði land­bún­að­ar­ráð­herra, en ekki heil­brigð­is­ráð­herra, héðan í frá og með­för mála um iðn­að­ar­hamp verða færð frá Lyfja­stofnun og til Mat­væla­stofn­unar, en héðan í frá mun ræktun iðn­að­ar­hamps lúta sömu lögum og eft­ir­lit með fóðri, áburði og sáð­vöru í hefð­bundnum land­bún­aði.

„Þetta er hænu­skref í rétta átt,“ segir Kristinn Sæmunds­son, hamp­bóndi á Suð­ur­landi. „Jú, og þetta breytir vissu­lega því að nú megum við hamp­bændur vinna lög­lega CBD olíu úr upp­skeru og setja á íslenskan markað. Hamp­ur­inn er ekki lengur skil­greindur sem lyf, en þannig var hamp­ur­inn skil­greindur áður, sem afurð „ill­vígrar has­s­plönt­unnar“ eins og hamp­ur­inn hefur kall­ast gegnum árin. Plantan þótti ógeðs­leg í augum ein­hverra, sem er bara hrein og klár sturlun,“ segir Kristinn jafn­framt og á þar við eðli iðn­að­ar­hamps og inni­halds­efni nytja­jurt­ar­innar.

„Ég hef þó spurnir af því að enn sé verið að leita að fyrsta fórn­ar­lambi þess­arar ill­vígu plöntu sem svo ekki enn hefur fund­ist.“

Laga­breyt­ingin fellur undir breyt­ingu á lögum í sam­ræmi við frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra um breyt­ingu á lögum um ávana- og fíkni­efni, en sam­kvæmt nýrri skil­grein­ingu er iðn­að­ar­hampur ekki ávana- og fíkni­efni heldur nytja­planta. Reglu­gerð sem snýr að ávana- og fíkni­efnum var breytt á síð­asta ári og fól í sér heim­ild til Lyfja­stofn­unar til und­an­þágu svo leyfi­legt yrði loks að flytja inn fræ til rækt­unar iðn­að­ar­hamps. Und­an­þágan var bundin ströngum skil­málum sem snúa að leyfi­legu magni THC í nýt­an­legu magni, eða því sem nemur 0.2 pró­sent.

Sjálfur vinnur Kristinn íslenska CBD olíu úr heima­rækt­uðum hampi til einka­nota og segir undra­vert hversu nær­andi olían er fyrir hör­undið. „CBD olían getur unnið á húð­meinum, exemi og útbrotum. Ég hef mjög góða reynslu af henni sjálfur og jafn­vel ofnæmi sem ég held að hafi stafað af ofnotkun á þvotta­efni og mýk­ing­ar­efni.“

Þó reglu­gerð­ar­breyt­ingin sé tíma­bundin ráð­stöfun er nú ljóst að iðn­að­ar­hamp­ur­inn á ekki heima á vinnu­borði Heil­brigð­is­ráðu­neytis og því þarf að skýra reglu­gerð­ina og ábyrgð­ar­hluta við­eig­andi stofn­ana sem koma að leyf­is­veit­ingu og eft­ir­liti með ræktun iðn­að­ar­hamps héðan í frá. Land­bún­að­ar­ráðu­neytið og Mat­væla­stofnun fara fyrir þeim hópi sér­fræð­inga héðan í frá og því senni­lega ein­hverjir farnir að renna hýru augu til gróð­ur­yrkju með ræktun og fram­leiðslu á nú loks lög­legum iðn­að­ar­hampi hér á landi. En hvað segja hamp­bændur þeir sem hafa komið sér hag­an­lega fyrir nú þegar og fylgj­ast með opin­berri með­för mála­flokks; breytir ákvörðun rík­is­stjórnar við þing­lok nú ein­hverju fyrir íslenskan markað?

„Jú, vissu­lega, hingað til hef ég bara setið við nettan heim­il­is­iðnað en nú get ég farið að huga að mark­aðs­setn­ingu og fram­leiðslu á olí­unni minni opin­ber­lega. Nú má það loks,“ segir Kristinn Sæmunds­son, hamp­bóndi og nátt­úru­unn­andi á Suð­ur­landi hæstá­nægður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi