Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þrír lögreglumenn mættu í frosti og niðamyrkri: „Þetta er svo mikið stofnanaofbeldi“

Þrír lögreglumenn mættu í frosti og niðamyrkri: „Þetta er svo mikið stofnanaofbeldi“

„Við hjónin tókum þá ákvörðun að rækta hamp með til­skyldum leyfum og vildum sýna almenn­ingi að ræktun af þessu tagi væri mögu­leg hér á norð­ur­hveli,“ segir Oddný Anna Björns­dóttir. Hún er við­skipta­fræð­ingur að mennt og starfar sem sjálf­stæður ráð­gjafi á sviði mat­væla og land­bún­aðar. Samhliða sjálf­stæðum verk­efnum á sviði ráð­gjafar gegnir hún starfi fram­kvæmd­ar­stjóra Samtaka smá­fram­leið­enda mat­væla og rekur, í sam­vinnu við eig­in­mann sinn, býlið Gautavík í Berufirði en þar opnar fyrsta fræðslu­mið­stöð um ræktun og nytjar á iðn­að­ar­hampi þann 1. júlí næst­kom­andi.

Að baki standa þau Oddný og Pálmi Ein­ars­son, eig­in­maður Oddnýjar, og iðn­hönn­uður en um er að ræða ákveðna bylt­ingu í land­bún­að­ar­málum sem þau hjón hafa ötul­lega unnið að und­an­farin ár.

„Það er hægt að rækta hamp hér á landi og hefur verið gert áður. Fyrstu land­náms­menn­irnir fluttu þannig hamp­fræ til lands­ins með sér og plantan var um langt skeið leyfi­leg, en þegar kanna­bis til reyk­inga var bannað var iðn­að­ar­hamp­ur­inn bann­færður um leið, þó hamp­ur­inn hafi verið rækt­aður sem frum­hrá­efni í árþús­undir. Samkvæmt kín­verskri goð­sögn færðu guð­irnir þannig mann­fólk­inu eina jurt að gjöf sem átti að full­nægja öllum þörfum þess. Þessi jurt sem goðsagan hermir á um er iðn­að­ar­hampur.“

Hampurinn gleymdist

Oddný segir að þegar bann­árin skullu á með fullum þunga í mál­efnum iðn­að­ar­hamps hafi fram­leiðsla færst yfir í hrá­efna­nýt­ingu óum­hverf­is­vænni efna. Hamp­ur­inn hafi að mestu gleymst í áranna rás en alltaf hafi þó ein­hverjir haldið umhverf­is­vænu nota­gildi hams­ins á lofti. „Það var alltaf ein­hver sem sagði þar að hamp­ur­inn gæti hjálpað okkur í bar­átt­unni við umhverf­is­vána,“ segir Oddný jafn­framt.

Beru­fjörður varð fyrir val­inu, en þau Oddný og Pálmi flutt­ust frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir þremur árum síðan. „Við vorum að leita að ein­hverju nær höf­uð­borg­inni en þegar mað­ur­inn minn benti mér á þessa og bað mig að gefa jörð­inni séns þó hún væri svona langt í burtu þá fann ég að þetta væri rétti tím­inn fyrir okkur að taka þetta skref og að þetta væri jörðin sem við höfðum beðið eftir. Að þetta myndi henta okkur best, hefði allt sem þurfti.“

Úr borg í sveit flutt­ist því fjöl­skyldan og segir Oddný breyt­ing­una kær­komna.

„Okkur hafði lengi langað að yfir­gefa þétt­býlið, við áttum bústað til margra ára og eyddum þar jólum, páskum og oft­lega um helgar. Þar leið okkur alltaf best og fannst alltaf jafn ömur­legt að þurfa að aka heim til borg­ar­innar á sunnu­dags­kvöldum. Við höfðum lengi rætt þann mögu­leika að flytj­ast í sveit okkar á milli en sjálf var ég á Bifröst í háskóla­námi og þótti nær­veran við nátt­úr­una alveg æðis­leg. Maðurinn minn hafði dvalið sum­ar­langt í sveit sem barn og ílengd­ist þar eftir þriðja sum­arið. Hann flutti ekki aftur til borg­ar­innar fyrr en á full­orð­ins­árum.“

Þá segir Oddný umskiptin hafa verið auð­veld, kær­komin og tíma­bær.

„Þetta hefur verið æðis­legt allt frá fyrsta degi. Ég var ótrú­lega ánægð þegar ég komst úr borg­inni, burtu frá mengun og stressi og umferð­arnið. Ég fann mik­inn mun á heilsu og líðan við flutn­ing­ana en sá lífs­stíll sem við lifum í dag er mun streitu­minni, þó verk­efnin séu ansi mörg hér í nátt­úr­unni. Það er brjálað að gera hjá okkur alla daga en með til­komu fjar­funda og sam­skipta yfir netið, sam­fé­lags­miðla og því að geta sinnt öllum störfum sam­hliða því að reka bæinn, það er ynd­is­legt. Að ekki sé minnst á þetta góða sam­fé­lag, en hér ríkir sam­heldni og sátt“.

Ástríða fyrir hampi

Hvað fær þá við­skipta­fræð­ing í félagi við iðn­hönnuð til að reisa hér­lent fræðslu­setur um iðn­að­ar­hamp?

„Við hjónin höfum lengi haft mik­inn áhuga á og mikla ástríðu fyrir hampi og þeim mögu­leikum sem hann gefur. Við höfum barist fyrir breyt­ingum á reglu­verki tals­vert lengi, hófum til­rauna­ræktun árið 2019 en þá var reglu­verkið ekki með öllu skýrt. Þá stóð til að mynda hvergi að þetta mætti ekki og mað­ur­inn minn hafði áður fengið und­an­þágu og leyfi til að rækta hamp hér­lendis ásamt öðrum, sum­arið 2013. Til­rauna­rækt­unin sú fór reyndar ekki hátt á sínum tíma og engar athuga­semdir bár­ust. En þegar við réð­umst til atlögu aftur árið 2019 og byrj­uðum að segja frá verk­efni okkar í fjöl­miðlum með það að mark­miði að vekja athygli á hamp­ræktun og fjöl­breyti­legu nota­gildi plönt­unnar höfðum við vit­und­ar­vakn­ing­ar­verk­efni í huga.

Til­raunin árið 2019 var ekki sú að við­skipta­legs eðlis heldur gerð að opna augu Íslend­inga fyrir nota­gildi hamps­ins og þetta gerðum við til að vekja athygli á hag­nýtu gildi hamps­ins.“

Sjálf jörðin að Gautavík telur 860 hekt­ara en ekki allt svæðið er rækt­an­legt.

„Við ræktum hamp á einum hekt­ara nú í sumar,“ svarar Oddný. „Þetta er áfram til­rauna­verk­efni og við viljum prófa ólíkar aðstæður, hvaða yrki henti best til rækt­unar og hvað okkur hentar sem rækt­endum.“ Oddný situr einnig í stjórn Hamp­fé­lags­ins og segir að sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum megi reikna með að 150 hekt­arar iðn­að­ar­hamps verði rækt­aðir nú í sumar hér á landi. „Það kom ágætis reynsla á ræktun iðn­að­ar­hamps í fyrra en þá var fyrst gerð breyt­ing á reglu­gerð sem heim­il­aði inn­flutn­ing.“

„Þegar við fórum af stað var ekk­ert sem bann­aði ræktun af þessu tagi og það eina sem vant­aði var for­dæmi. Við fengum leyfi frá Mat­væla­stofnun en sóttum ekki sér­stak­lega um und­an­þágu til Lyfja­stofn­unar, okkur var ein­fald­lega ekki sagt að slíkt þyrfti. Í fram­hald­inu komum við svo fram í fjöl­miðlum og greindum ítar­lega frá verk­efn­inu og í heila sex mán­uði gekk verk­efnið athuga­semda­laust áfram.“

Meðal þeirra ráða­manna sem heim­sóttu rækt­un­ar­bú­garð þeirra hjóna voru ráð­herrar og þing­menn ásamt því sem Oddný og félagar hennar í stjórn Hamp­fé­lags­ins höfðu setið fundi með ráðu­neytum.

„Við fengum meðal ann­ars styrk frá Atvinnu­vega- og Nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu til að kaupa tæki til að afhýða hamp­inn. Allt í einu ákveður þá Lyfja­stofnun að túlka lögin þannig að ræktun af þessu tagi sé ekki heimil og að við hefðum þurft að sækja um und­an­þágu. Í fram­hald­inu er lög­regl­unni svo sigað á okkur en Lyfja­stofnun sendi erindi til lög­reglu þar sem þau sögðu grun leika á því að við stæðum að ræktun ólög­legra jurta. Þeir töldu þannig iðn­að­ar­hamp falla undir lög um ávana- og fíkni­efni ein­ungis vegna þess að orðið cannabis er að finna í lögum um ávana- og fíkni­efni en iðn­að­ar­hampur er af sömu plöntu­teg­und.“

Svo fór að þrír lög­reglu­menn mættu fyr­ir­vara­laust að bænum Gautavík í myrkri og frosti í nóv­em­ber á síð­asta ári og ósk­uðu aðgengis að iðn­að­ar­hamp­inum.

„Maðurinn minn var sá sem tók á móti lög­regl­unni og bauð þeim bara inn, sýndi þeim leyfi og leiddi þá um allt. Toll­ur­inn var búinn að stimpla send­ing­una þar sem við fram­vís­uðum leyfi frá Mat­væla­stofnun. Lög­reglan tók sýni úr jurt­unum sem reynd­ust inni­halda 0.0 pró­sent af THC. Ekki einu sinni snef­il­magn mæld­ist hjá okkur en lög­reglan hafði verið send á grund­velli laga um ávana- og fíkni­efni. Þeir urðu undr­andi sjálfir því þeir sáu að við vorum með tilkskilin leyfi, lög­reglu­menn­irnir.“

Þau hjónin urðu að vonum fyrir von­brigðum. „Við ætl­uðum okkur alltaf að ryðja veg­inn og ef eitt­hvað myndi ger­ast þá myndum við vinna að því að reglu­verki yrði breytt. En á þessum tíma­punkti og á þessum stað, þetta þótti okkur allt frekar und­ar­leg atvika­röð og stóðum bara gap­andi hissa eftir alla atburða­rás­ina og störðum á hvort annað.“

Oddný er ómyrk í máli þegar talið berst að afskiptum Lyfja­stofn­unar.

„Þetta er svo mikið stofn­ana­of­beldi,“ segir hún hugsi. „Og sam­ræm­ist ekki með­al­hófs­regl­unni á nokkurn máta. Við vorum ekk­ert að pukrast með neitt; það hefði gagn­ast Lyfja­stofnun jafn vel að hringja í okkur eða senda erindi, kalla okkur á fund eða leið­beina okkur um fram­haldið. En að senda lög­regl­una til okkar rétt eins og við værum glæpa­menn þótti okkur ein­kenni­legt.“

Atvikið hlaut umfjöllun fjöl­miðla og segir Oddný þá opin­beru umfjöllun hafa stutt við bæði mál­stað þeirra og allra sem eru hlynntir hamp­ræktun á Íslandi. „Þetta hjálp­aði áhuga­sömum um hamp­inn að vekja enn meiri athygli á þágild­andi reglu­verki. Ég fór strax með málið í fjöl­miðla sem fjöll­uðu um málið. Hamp­fé­lagið, Bænda­sam­tökin og Samtök iðn­að­ar­ins voru komin í málið með okkur og ég, sem var þá nýbúin að funda með iðn­að­ar­ráð­herra, hafði strax sam­band við land­bún­að­ar­ráð­herra. Öllum fannst okkur atvika­röðin fárán­leg og vorum á einu og sama máli; þessu yrði að finna út úr strax.“

Sak­sókn­ari á Aust­ur­landi felldi málið gegn þeim Oddnýju og Pálma að lokum niður þar sem eng­inn grund­völlur var fyrir sak­fell­ingu, þar sem ekk­ert brot hafði verið framið. „Við vorum bara grun­lausir borg­arar með til­skilin leyfi, höfðum for­dæmi í höndum og höfðum hlotið styrk frá ráðu­neyti. En auð­vitað urðum við engu að síður að fara í skýrslu­töku. Um hríð ætl­uðum við að kvarta til Umboðs­manns Alþingis en þegar lengra var haldið féllum við frá þeirri hug­mynd þar sem málið hlaut gíf­ur­lega mikla athygli og mark­miði okkar, sem var aukin vit­und­ar­vakn­ing, hafði verið náð“.

Vitundarvakning

Aðspurð hvort hún telji að vit­und­ar­vakn­ing sú sem hér er rætt um, hafi hjálpað öðrum segir Oddný það ekk­ert vafa­mál vera.

„Já, það teljum við. Lög­regl­una bar hér að garði um hávetur og engin ræktun á sér stað á þeim árs­tíma hér­lendis. Fólk bara beið þess að leyst yrði úr þessu svo hægt yrði að rækta hér á landi. Svo kom vorið að nýju og þá hafði kapp­hlaupið við reglu­gerð­ar­breyt­ingu staðið yfir allan vet­ur­inn“.

Í fram­haldi ákváðu þau hjón að opna fræðslu- og mennta­setur fyrir ræktun á iðn­að­ar­hampi. Kemur sú ákvörðun í fram­haldi af þessum atburðum?

„Það sem ger­ist er að fólk byrjar að streyma til okkar. Fólk sem vildi sjá, skoða og snerta. Við byrj­uðum á því setja upp borð hér í Gautavík í afmörk­uðu rými, sem við settum hamp og nytja­hluti úr hampi, þar sem fólk gat komið, séð og skoðað. Við hjónin fengum svo styrk frá Upp­bygg­ing­ar­sjóði Aust­ur­lands til að inn­rétta haug­hús undir inni­ræktun, fram­leiðslu og pökkun á iðn­að­ar­hampi. Á það svæði erum við búin að færa þetta og ákváðum við í fram­haldi að gera þetta form­lega og gera þetta bara almenni­lega. Við erum búin að aug­lýsa opnun fræðslu­set­urs og nú, frá 1. júlí, getur fólk komi og fengið leið­sögn gegn vægu gjaldi“.

Hug­myndin að fræðslu­setri byggir á komu gesta á til­teknum tíma dags en þá leggja þau hjónin af stað í kynn­ingar- og fræðslu­ferðir með gesti og gang­andi um rækt­un­ar­svæðið sjálft.

„Við erum að rækta fleiri jurtir hér líka, kart­öflur með sér­stakri aðferð og erum með kúlu­hús líka. En þegar skoð­un­ar­ferð úti er lokið færum við okkur inn í sjálft fræðslu­setrið og þar má sjá inni­ræktun á hampi. Svo bjóðum við gestum að líta í smá­sjá þar sem hægt er að skoða sjálfan hamp­inn í smá­sjá. Þannig er hægt að skoða og greina kanna­bíóð­ana sem gera okkur heil­brigð­ari.“

Í Gautavík má líka sjá og skoða fjöl­breyttan varn­ing úr hampi sem Oddný og Pálmi hafa flutt inn; fatnað og vörur úr hampi og fleiri vöru­flokkar munu bæt­ast við. „Við erum líka með sam­rækt, eða aquaponics, svo í Gautavík er líka fræðslu­setur um sam­rækt. Hér erum við með 900 lítra fiska­búr með sil­ungi en í sam­ræktun fær hamp­ur­inn ein­göngu nær­ingu frá úrgangi fiska. Hér er risið fræðslu­setur um hamp og sam­rækt undir sama þaki.“ Samrækt mætti gjarna tengja við vatns­rækt en Oddný segir þó ekki um sömu rækt­un­ar­að­ferð að ræða. „Vatns­rækt felur í sér vökva með auð­leystum áburð­ar­söltum; það er kemískum, til­búnum áburði. Samrækt snýst nýt­ingu líf­rænnar nær­ingar frá fiskum og samnýt­ingin er fólgin í því að fisk­ur­inn nærir plönt­urnar.“

Markaðurinn að myndast

Upp­skeran í Gautavík verður fjöl­breytt í haust en Oddný og Pálmi nota blómin og laufin í ljúf­fengt hampte, hampsalt og hamp­krem. Ætli slík starf­semi rísi hér á landi og gæti hinn almenni borg­ari farið út í slíka nytja­ræktun í atvinnu­skyni á næstu miss­erum? Oddný efast ekki um það og telur nokkuð ljóst er að fram­tíðin blasi við áhuga­sömum um hamp­ræktun. „Mark­að­ur­inn er að mynd­ast,“ segir hún að end­ingu. „Fólk er að byrja ræktun og fram­leiðslu á ólíkum vörum á hampi, þess­ari stór­kost­legu plöntu.“

Áhuga­samir um fræðslu­setur í Gautavík geta kynnt sér starf­sem­ina HÉR

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi