Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Karlmenn geta líka fengið krabbamein tengd HPV-veirunni

Karlmenn geta líka fengið krabbamein tengd HPV-veirunni
Krabba­meins­fé­lag Íslands. Mynd / Krabb.is

Karlmenn geta, ekki síður en konur, fengið krabba­mein sem tengj­ast HPV-veirunni. Ber þar að nefna krabba­mein í enda­þarmi, radd­böndum og vél­inda. Þessi krabba­mein geta auð­vitað komið fyrir hjá konum líka. Eins og er stendur ekki til að bólu­setja drengi því þátt­taka stúlkna í HPV bólu­setn­ing­unni er það góð að hún mun nægja til þess að útrýma þeim veirum sem bólu­sett er fyrir svo lengi sem þátt­takan breyt­ist ekki, sam­kvæmt Ágústi Inga Ágústs­syni, kven­sjúk­dóma­lækni og fyrr­ver­andi yfir­lækni og sviðs­stjóra á Leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags Íslands. Þá geta konur látið bólu­setja sig gegn veirunni á heilsu­gæslu­stöðvum. 

„Það eru ekki til nein vís­inda­leg rök sem sýna fram á að það gagn­ist konum að fá bólu­setn­ingu þegar þær hafa fengið HPV-smit,“ segir segir Ágúst Ingi. „Ég myndi aftur á móti hik­laust ráð­leggja konum sem fara í skimun og fá út nei­kvætt HPV-svar að fá sér bólu­setn­ingu. Varðandi keilu­skurð þá er nú farið að mæla með því að konur fái bólu­setn­ingu innan fimm til sjö daga frá keilu­skurði og talið er að það geti verndað leg­háls­inn. Ef lengri tími er lát­inn líða er tæki­færið farið og ekki hægt að ráð­leggja bólu­setn­ingu.

Mark­miðið með keilu­skurð­inum er að fjar­lægja frumu­breyt­ingar sem eru til staðar. Konur sem hafa farið í keilu­skurð eru svo í auk­inni áhættu á að fá aftur frumu­breyt­ingar. Ég myndi því ekki geta sagt að keilu­skurður minnki lík­urnar á að kona fái aftur frumu­breyt­ingar en með því að fá bólu­setn­ingu strax í tengslum við keilu­skurð er verið að minnka lík­urnar á að það geti aftur mynd­ast frumu­breyt­ingar.“

Til eru rúm­lega 100 stofnar af HPV-veirunni sem getur smit­ast við kyn­líf og er talið að um 80% fólks sem stundar kyn­líf smit­ist af ein­hverjum þeirra. Tæplega 30 teg­undir geta valdið frumu­breyt­ingum í kyn­færum kvenna. Karlmenn geta einnig fengið krabba­mein sem tengj­ast HPV og má þar nefna krabba­mein í enda­þarmi, radd­böndum og vél­inda. Konur geta líka fengið þau krabba­mein. Þá geta ein­hverjir stofnar veirunnar valdið kyn­færa­vörtum. Bólu­efnið sem stúlkum er boðið upp á ver þær ekki gegn vört­unum en það bólu­efni er dýr­ara en það sem þær fá. Ef konur hafa farið í keilu­skurð vegna frumu­breyt­inga sem ganga ekki til baka þá getur það aukið hættu á fyr­ir­bura­fæð­ingum.

Þess má geta að stúlkur fá Cerverix-bólu­efni sem ver þær ekki gegn kyn­færa­vörtum. Gardasil-bólu­efnið, sem er dýara, ver hins vegar bæði gegn hættu­leg­ustu teg­undum veirunnar sem og kyn­færa­vörtum.

Mannlíf hafði sam­band við Land­lækn­is­emb­ættið og sagði Kamilla Sigríður Jós­efs­dóttir, barna­smit­sjúk­dóma­læknir á sótt­varna­sviði eft­ir­far­andi: 

„Til­gangur bólu­setn­ingar við HPV hefur verið vörn gegn leg­hálskrabba­meini, ekki vörtum. Vörnin gegn vörtum hefur því ekki verið reiknuð inn í fyrri útboðum sem kostur Gardasil umfram Cervarix. Ef upp­lýs­ingar um vörtur og byrði þeirra hér eða þátt HPV 6 og 8 í krabba­meinum væru til­tækar væri ef til vill hægt að reikna ávinn­ing af vörn­inni inn við næsta útboð sem verður senni­lega á næsta ári.

Þegar síð­asta útboð var gert var enn fjór­gilt Gardasil sem var ef eitt­hvað örlítið síðri vörn gegn leg­hálskrabba­meini en Cervarix þótt við hefðum alls ekki afþakkað það ef verðið hefði verið sam­bæri­legt eða hag­stæð­ara en Cervarix. Nú er komin ný útgáfa með breið­ari virkni gegn leg­hálskrabba­meini en upp­runa­lega Gar­dasilið og virkara gegn ákveðnum týpum HPV en Cervarix, Gardasil 9. Gardasil 9 er um það bil tvö­falt dýr­ara en Cervarix sam­kvæmt lyfja­verð­skrá er raun­munur enn meiri vegna samn­ings um Cervarix en það er þó ekki víst að svo yrði í næsta útboði.“

Meiri hætta á fyr­ir­bura­fæð­ingum

„Mér er ekki kunn­ugt um hvort það liggi fyrir rann­sóknir sem skoða hvort það sé aukin áhætta á frumu­breyt­ingum við að smit­ast af fleiri en einni háá­hættu-HPV sam­an­borið við það að smit­ast af aðeins einni teg­und. Almennt getur maður sagt að smit­ist kona af háá­hættu HPV þá getur hún fengið frumu­breyt­ingar. Þá skiptir ekki máli hvort það sé sú sama eða önnur teg­und. Ef hún losar sig við veiruna þá getur hún smit­ast aftur af þeirri sömu – og fengið frumu­breyt­ingar af því. Ef kona er ekki smituð af þeim teg­undum sem bólu­sett er fyrir þá verndar bólu­setn­ingin gegn þeim en hún verndar ekki gegn öllum teg­undum HPV. Það bólu­efni sem ver gegn flestum HPV-teg­undum er Gardasil 9 en það ver gegn sjö háá­hættu HPV. Þessar sjö valda 90% allra leg­hálskrabba­meina. Í við­bót eru svo um 10 teg­undir sem ekki er bólu­sett fyrir en þær valda sam­an­lagt aðeins um 10% leg­hálskrabba­meina.“

Konur sem fara í keilu­skurð eru í auk­inni áhættu á fyr­ir­bura­fæð­ingum. 

„Áhættan á fyr­ir­bura­fæð­ingum er almennt lítil og hún helst áfram lág hjá konum eftir keilu­skurð þó hún sé aukin miðað við heild­ar­þýðið,“ segir Ágúst Ingi. „Það er ekki mælt með því að setja fyr­ir­byggj­andi leg­háls­saum hjá öllum konum sem hafa farið í keilu­skurð því þá þyrfti að með­höndla tugi eða jafn­vel hund­ruði kvenna með slíku inn­gripi til að hindra eina fyr­ir­bura­fæð­ingu. Í stað­inn er fylgst með leg­háls­inum og ef það sjást merki um að hann haldi ekki þá er brugð­ist við því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi