Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rannsakar íslenskar einbyrjur: „Hvernig eiga mæður að vera, haga sér og hugsa?“

Rannsakar íslenskar einbyrjur: „Hvernig eiga mæður að vera, haga sér og hugsa?“
Sunna Sím­on­ar­dóttir í aðal­bygg­ingu Háskóla Íslands / Mynd: Vísindavefur

Hríð­lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni á Íslandi er rann­sókn­ar­efni Sunnu Sím­on­ar­dóttur, nýdokt­ors og aðjúkt í félags­fræði við Háskóla Íslands en hún leitar kvenna sem velja að eign­ast eitt barn. Í við­tali við MBL segir Sunna að ekki sé vitað af hverju fólk velji að eign­ast færri börn en á árum áður en und­an­farin tíu ár hafi fæð­ing­ar­tíðni lækkað mjög á Íslandi.

Sunna, sem er nýdoktor og aðjúnkt í fé­lags­fræði við Há­skóla Íslands, leit­ar að kon­um sem völdu að eign­ast eitt barn, þar sem fæð­ing­artíðni hafi lækkað mikið á Íslandi og leit­ast hún eft­ir að út­skýra það. „Það sem mig lang­aði að gera er að skyggn­ast í ástæður þar að baki. Ég tala við ein­stak­linga til þess að fá þeirra upp­lifun, reyni að kort­leggja þá aðeins. Hvaða ástæður og sam­fé­lags­legu breyt­ingar, hug­mynda­fræði­legu breyt­ingar er að baki svona stórum breyt­ingum í sam­fé­lag­inu?“ Þá veltir Sunna upp spurn­ingum á borð við hvaða sam­fé­lags­legu og menn­ing­ar­legu hug­myndir um móð­ur­hlut­verkið séu ríkj­andi í dag. „Hvað felst í því að vera góð móðir? Hvernig eiga mæður að vera, haga sér og hugsa?“

Þá segir hún einnig val kvenna um barn­eignir birt­ast á marga vegu. Að sífellt fleiri konur velji að ljúka námi og hrinda af stað eigin starfs­ferli áður en hugað er að móð­ur­hlut­verk­inu. „Mér finnst ekki endi­lega rétt að stilla því þannig upp að konur séu ekki með­vit­aðar um að það sé ekki endi­lega hægt að eign­ast þrjú börn eftir fer­tugt. Ég held að þetta sé val hjá flestum.“ Þeir sam­fé­lags- og menn­ing­ar­legu þættir sem hafi áhrif á val sömu kvenna sé verð­ugt rann­sókn­ar­efni. „Er það að kon­ur upp­lifa að þær muni ein­fald­lega ekki ná að gera allt sem þær lang­ar til að gera með stóra fjöl­skyldu? Er meiri ein­stak­lings­hyggja í sam­fé­lag­inu? Viðhorf til fjöl­skyld­unn­ar er kannski að breyt­ast?“

Sandra Kristín Jón­as­dóttir, nemi, vinnur að rann­sókn­ar­verk­efn­inu ásamt Sunnu en þær hlutu nýverið styrk frá Nýsköp­un­ar­sjóði Náms­manna. Þær mæður sem eru á aldr­inum 25 til 45 ára geta allar tekið þátt í rann­sókn­inni og eru hvattar til að senda póst á [email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi