Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hæstiréttur segir standpínu föður ósjálfráða- Meintri tálmunarmóður dæmd forsjá

Hæstiréttur segir standpínu föður ósjálfráða- Meintri tálmunarmóður dæmd forsjá

Hæsti­réttur dæmdi nú í þess­ari viku móður fullt for­ræði dóttur sinnar, en móðir stúlkunnar hefur hindrað umgengni barns­ins við föður þess allt frá því að grunur um kyn­ferð­is­brot föður gagn­vart litlu stúlkunni kvikn­aði. Úrskurður Hæsta­réttar er á þá veg að ekki sé mögu­legt að dæma sam­eig­in­lega for­sjá vegna djúp­stæðs ágrein­ings og sam­skipta­örð­ug­leika for­eldra. Því verði að dæma öðru for­eldri for­sjá barns­ins en í skýrslu mats­manns segir að báðir for­eldrar séu full­hæfir til að ann­ast upp­eldi barns­ins.

Leitaði til Barnaverndar vegna gruns um alvarleg kynferðisbrot

Það var í sept­em­ber árið 2018 sem móðir stúlkunnar leit­aði til Barna­verndar Reykja­víkur og greindi frá að henni grun­aði að fað­ir­inn hefði brotið kyn­ferð­is­lega gegn litlu stúlkunni. Í októ­ber 2018 lagði móð­irin svo fram form­lega kæru á hendur föð­urnum hjá lög­reglu í kjöl­far skýrslu­töku. Meðal þess sem móð­irin greindi frá var kyn­ferð­is­brot manns­ins gegn sam­feðra hálf­systur sinni þegar hann var sjálfur 13 ára en systir hans 5 ára.

Litla stúlkan kvartaði undan „pabba skeggi“ við bleyjuskipti

Játaði mað­ur­inn að hafa brotið gegn hálf­systur sinni í bernsku fyrir hér­aðs­dómi en neit­aði með öllu að hafa brotið gegn dóttur sinni. Þá greindi móð­irin frá því að föð­urnum hefði risið hold í návist litlu stúlkunnar og að barnið hefði meðal ann­ars látið orðin: „En ekki margir puttar“ falla fyr­ir­vara­laust þegar hún var að skipta um bleyju á stúlkunni sum­arið 2018. Í sept­em­ber það sama ár hefði litla stúlkan greint móður sinni frá eymslum í klofi og sagt að „pabba skegg kitl­aði“ en morg­un­inn eftir segir móðir stúlkunnar að útferð hafi verið í nær­buxum litla barns­ins.

Sagðist viðkvæmur og oft rísa hold að tilefnislausu

Faðir stúlkunnar neit­aði allri sök og sagð­ist við­kvæmur, sér gæti til­efn­is­laust risið hold án þess að kynörvun ætti sér stað. Slíkt hold­ris hefði ekk­ert með kenndir til barna að gera. Felldi lög­regla rann­sókn máls niður þar sem ekki var talið að nokkuð sak­næmt athæfi hefði átt sér stað og voru meint kyn­ferð­is­brot föður ekki tekin til greina við máls­með­ferð fyrir dóm­stólum.

Í dóms­orði Hæsta­réttar kemur einnig fram að mats­maður hafi rætt við nafn­greindan þvag­færa­skurð­lækni vegna hold­riss föður, sem sagði alkunna að körlum risi oft hold fyr­ir­vara­laust án þess að kyn­löngun væri ástæða. Þá gerði mats­maður einnig að umfjöll­un­ar­efni hvernig feður ræddu sín á milli gegnum sam­fé­lags­miðla um slíkt hold­ris sem ekki yrði rakið til kyn­ferð­is­legrar örv­unar og sagði vand­ann útbreiddan.

Kærði móður fyrir tálmun í apríl 2019

Faðirinn höfð­aði sjálfur mál fyrir hér­aðs­dómi í apríl 2019, þar sem hann sagði móður tálma umgengni og krafð­ist þess að fá fulla for­sjá barns­ins, en móð­irin and­mælti og krafð­ist einnig for­sjár. Úrskurður Hér­aðs­dóms féll hins vegar á þann veg að for­eldrar skyldu báðir fara með for­sjá og hafa jafna umgengi. Málinu var áfrýjað til Lands­réttar sem stað­festi dómúr­skurð hér­aðs­dóms að mestu en úrskurð­aði umgengni föður aðra hverja viku frá laug­ar­degi til þriðju­dags. Hæsti­réttur komst að annarri nið­ur­stöðu; barnið skuli dvelja aðra hverja viku frá síð­degi fimmtu­dags til mánu­dags­morg­uns og skuli barnið á tveggja mán­aða tíma­bili dvelja hjá föður í viku í senn. Þá skuli stúlkan dvelja fjórar vikur sam­fleytt hjá föður í sum­ar­leyfi hvert ár.

Dómur telur rétt að barni njóti ríkulegrar umgengi við föður

Í úrskurði Hæsta­réttar segir hafið yfir allan vafa að aðilar hafi um langa hríð átt erfitt með öll sam­skipti sín á milli og að milli þeirra ríki djúp­stæður ágrein­ingur sem snerti mál­efni barns­ins. Af þeim sökum verði að fall­ast á þá nið­ur­stöðu hins áfrýj­aða dóms að ekki séu fyrir hendi for­sendur til að aðilar fari saman með for­sjána. Verði því að fela öðrum hvorum máls­að­ila hana [for­sjánna] en hæfni móður sem upp­alanda, tengsl hennar við barnið og svo mik­il­vægi þess að varð­veita stöð­ug­leika í lífi litlu stúlkunnar hefði mesta vægi. Þó taldi dómur rétt að barnið nyti áfram ríf­legrar umgengi við föður svo við­halda og efla mætti tengsl þeirra. Kemur fram í dóms­orði að móður beri að hlíta úrskurð­inum og stuðla að umgengi litlu stúlkunnar við föður sinn í þágu barns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi